MS Carissima

MS Carissima

Fljótaskipið MS Carissima **** er einstaklega glæsilegt skip. Þar er frábær  veitingastaður, setustofa og bar með útsýni til þriggja átta, heilsulind með gufubaði og  nuddpotti ásamt útisundlaug á útsýnisdekki, en þaðan er einstaklega góð sýn á árbakkana beggja megin. Káeturnar eru 14 m2 að stærð og allar hafa þær sérbaðherbergi, hárþurrku, sjónvarp og öryggishólf. Stilla má hitastig í hverri káetu fyrir sig. Greiða þarf fyrir nettengingu um borð, en hafa skal í huga að gæði tengingarinnar fer mjög eftir því hvar skipið er staðsett. 




Póstlisti