Ibis Bastille Opera

Ibis Bastille Opera

Hótel Ibis Bastille Opera er staðsett í hjarta Parísar, nálægt Bastillunni. Þar er að finna fjölda veitingastaða og verslana s.s. H&M, Zara, Chanel og Cartier. Einnig er stutt ganga að bökkum Signu þar sem upplagt er að fara í siglingu með einum af útsýnisbátunum. Á hótelinu, sem er 3ja stjörnu, eru 305 herbergi með baði, sjónvarpi og síma, en eins og almennt á hótelum í París eru herbergin lítil.

Morgunverðarsalurinn er opinn frá kl. 06:30 – 10:00, en móttakan er opin allan sólarhringinn.

Veitingarstaðurinn er opinn frá kl. 12:00 til kl. 22:30 og hótelbarinn til miðnættis.

Þráðlaust internet er í móttökunni.




Póstlisti