Hotel Schattauer

Hotel Schattauer

Hotel Schattauer er huggulegt fjölskyldurekið fjögurra stjörnu alpahótel í austurrískum stíl. Herbergi hótelsins eru hlýlega innréttuð og öll með sturtu/baðkeri, flatskjá, öryggishólfi, hárþurrku og síma. Á hótelinu er heilsulind með sauna, gufubaði og hvíldarsvæði þar sem gott er að slaka á eftir góðan dag í fjöllunum. Einnig er þar notalegur veitingastaður. Hótelið er staðsett 300 m frá miðbæ Wagrain sem liggur í ríflega 800 m hæð yfir sjávarmáli. Stutt ganga er í bæjarkjarnann þar sem finna má verslanir, pósthús og fjölmarga aprés-ski bari. Til að komast að helstu skíðalyftunum á svæðinu má annað hvort taka kláf sem er í göngufæri frá hótelinu eða taka fríu skíðarútuna sem gengur frá hótelinu, einungis 5 mín. akstur.
 
 Vefsíða Hotel Schattauer 




Póstlisti