Hotel New Otani

Hotel New Otani

Gist verður á 4* Hotel New Otani sem er á frábærum stað skammt frá Imperial Palace og endamarki maraþonsins. Við hótelið er 400 ára gamall japanskur garður sem er á lista Tripadvisor yfir athyglisverðustu staði borgarinnar. Morgunmatur, bæði vestrænn og japanskur, er innifalinn í dvölinni og að morgni hlaupadags er boðið upp á snemmbúinn morgunmat. Hótelið er vel staðsett til þess að skoða helstu kennileiti Tókýó og er nálægt hlaupaleiðinni. Boðið er upp skutlu þjónustu til og frá endamarki sem hluta af ferðapakkanum. Hótelið er ekki langt frá helstu verslunar- og skemmtisvæðum borgarinnar, 5 mínútur með neðanjarðarlestinni til Ginza sem er aðal verslunarhverfið og 10 mínútur til Shinjuku lestarstöðvarnar sem er önnur af tveimur stærstu lestarstöðvum borgarinnar og þaðan getur þú farið svo til hvert sem er innan Japans.

Hótelið er með ríflega 1400 herbergi, búið öllum nútíma þægindum og er einn af morgunverðasölunum á 40. hæð með stórkostlegu útsýni yfir borgina. Á hótelinu er tennisvöllur, gufubað, líkamsræktaraðstaða, sundlaugar og heilsulindir þar sem hægt er að panta sér allskyns líkamsmeðferðir og nudd gegn gjaldi. Einnig er mikill fjöldi verslana og veitingastaða á hótelinu og aðeins er örstutt á næstu lestarstöðvar sem ferja þig hvert sem er innan stærsta þéttbýlissvæðis veraldar.




Póstlisti