Go to navigation .
Gist verður á 4* hótelinu Füred Spa & Conference í bænum Balatonfüred með fallegt útsýni yfir Balaton vatn. Hótelið opnaði árið 2016 og er alveg við vatnsbakkann, með legustóla á grasflötinni og útisundlaug. Dásamleg heilsulind er á hótelinu með nokkrar sundlaugar, eimbað, sauna, saltbað og líkamsrækaraðstöðu. Boðið er upp á ýmsar heilsumeðferðir gegn gjaldi. Herbergin eru öll með svölum, baði/sturtu hárþurrku, loftkælingu, síma, flatskjá og öryggishólfi. Kvöldverðir og morgunverðir eru með hlaðborðsformi.