Astoria Park Hotel

Astoria Park Hotel

Gist verður á 4* hótelinu Astoria Park Hotel, sem staðsett er steinsnar frá miðbæ Riva del Garda og um 1 km frá vatnsbakkanum. Umhverfis hótelið er 15 hektara stór garður með sundlaug. Hótelið er með smekkleg og björt herbergi sem öll eru með gervihnattasjónvarpi, hárþurrku, síma, nettengingu, öryggishólfi, míníbar og loftkælingu. Á hótelinu er að finna líkamsrækt og heilsulind þar sem gestir geta látið líða úr sér í finnskri sauna, íssturtu og gufubaði sem endurnærir bæði sál og líkama. Hægt er að panta sér nudd og líkamsmeðferðir gegn gjaldi.

Hér er tengill á heimasíðu hótelsins.




Póstlisti