Skíðaferðir

 
 

Á gönguskíðum við Achensee í Tíról



21. – 28. janúar 2012     
Fararstjórar: Anna Sigríður Vernharðsdóttir og Vernharður Anton Aðalsteinsson
 

Vetrarfrí á gönguskíðum í skemmtilegum félagsskap og fallegu umhverfi er sannkallaður draumur útivistarfólks, því hvað er betra en að vera úti, hreyfa sig og slaka síðan vel á í lok dags! Achensee er eitt af bestu skíðagöngusvæðum Austurríkis, enda eru skíðabrautir svæðsins 201 km langar og á öllum erfiðleikastigum. Svæðið við Achensee er einstaklega fallegt, enda dalurinn umlukinn tignarlegum fjöllum á nánast alla vegu. Gist verður á 4* hóteli í bænum Pertisau sem er sá bær við vatnið sem býður upp á bestu skíðagönguaðstöðuna. Brautirnar eru rétt fyrir utan hótelið, svo eftir morgunverð er bara að drífa sig út á skíði og njóta útivistarinnar. Aðstaðan á hótelinu er til fyrirmyndar, en þar er mjög góð heilsulind og er því hægt að njóta þess að fara í sundlaugina, prófa eitt af gufuböðunum eða bara slaka á eftir ánægjulegan dag. Flogið er með Icelandair til München, en þaðan eru rétt um 140 km til Achensee. Daglega verður farið í spennandi ferðir og er að sjálfsögðu hægt að velja hvort farið er með fararstjórum eða upp á eigin spýtur.
 


 

Á gönguskíðum við Lermoos í Tíról



21. – 28. janúar 2012     UPPSELT!
Fararstjórar: Íris Marelsdóttir sjúkraþjálfari og Árni Ingólfsson
 

Það má með sanni segja að Zugspitz Arena svæðið sé Tíról eins og það gerist best!  Svæðið liggur á breiðri og sólríkri hásléttu sem er umlukin fjórum tignarlegum fjallgörðum. Þar á meðal er Zugspitz, en fjallið sem er austurrískt og þýskt í senn, er hæsta fjall Þýskalands og jafnframt nyrsti jökull Alpafjallanna. Þetta svæði er eitt vinsælasta útivistarsvæðið í Tíról og býður upp á samtals 110 km langar skíðagöngubrautir á öllum erfiðleikastigum. Svæðið tengist síðan Reutte skíðagöngusvæðinu þar sem brautirnar eru samtals rúmlega 100 km. Zugspitz Arena er því tilvalið fyrir þá sem vilja njóta útivistar í  yndislegu alpalandslagi. Milli fjallanna liggja nokkrir ekta  austurrískir bæir og er Lermoos einn þeirra. Þessi fallegi og rómantíski bær liggur í 1000 m hæð rétt við tindana Zugspitz (2963m) og Grubigstein (2223m)  og telur hann um 1100 íbúa. Gist verður á glæsilegu 4*stjörnu hóteli í bænum en þar er fjölbreyttur matseðill og  þægileg herbergi.   Á hótelinu er heilsulind með gufubaði, sauna, nuddpotti, sundlaug og margt fleira. Flogið er með Icelandair til München og ekið sem leið liggur til Lermoos en þangað eru um 150 km. Daglega verður boðið uppá áhugaverðar ferðir með fararstjórum en auðvitað getur hver og einn farið á eigin vegum um svæðið. 

 

 

Á gönguskíðum í Ramsau við Dachstein



28. janúar - 4. febrúar 2012     UPPSELT!
Fararstjórar: Steinunn H. Hannesdóttir íþróttakennari og Hanna Marteinsdóttir sjúkraþjálfari
 

Vetrarlandslagið í bænum Ramsau við Dachstein er einstaklega fallegt. Bærinn liggur á Ramsauer Hochplateu hásléttunni í 1000 – 1300 m hæð þar sem tignarlegir hvítir alpatindar gnæfa til suðurs. Svæðið sem er mjög snjóöruggt og sólríkt var valið af ADAC SkiGuide sem eitt af 3 bestu gönguskíðasvæðum alpanna! Gönguskíðabrautirnar teygja sig yfir þrjú mismunandi hæðarsvæði og á því er svo sannarlega að finna brautir við allra hæfi. Flogið er með Icelandair til München en þaðan er tæplega 3 klst akstur til Ramsau.  Gist er í 7 nætur á ekta austurrísku 4* alpahóteli sem er að auki sannkallað heilsuhótel. Skíðagöngubrautir liggja beint við hótelið og stutt er í verslanir og aðra þjónustu. Daglega verður farið í spennandi ferðir og að sjálfsögðu er hægt að velja hvort farið er með fararstjórum eða upp á eigin spýtur. Í þessari ferð fer því saman útivist, hreyfing, góður matur og skemmtilegur félagsskapur í sannkölluðu ævintýralandslagi!.
 

 

Svigskíðaferð til Gerlos í Austurríki



4. – 11. febrúar 2012     UPPSELT!
Fararstjórar: Guðmundur K. Einarsson og Steingrímur Birgisson
 

Hinn sjarmerandi bær Gerlos er þekktur skíðabær í austurrísku Ölpunum, sem býður skíðafólki á öllum aldri upp á frábærar aðstæður og líflega fjallastemningu. Gerlos liggur í 1.300 m hæð og er einn hluti af fjórum skíðasvæðum í Zillertal Arena. Skíðasvæðið í Zillertal Arena liggur í allt að 2.500 m hæð yfir sjávarmáli og er því talið einstaklega snjóöruggt svæði. Tæplega 50 skíðalyftur er á svæðinu og skíðabrekkurnar sem eru um 166 km á öllum erfiðleikastigum eiga eflaust eftir að koma vönu skíðafólki skemmtilega á óvart. Flogið er með Icelandair til München og haldið sem leið liggur til Gerlos, en rútan fer að sjálfsögðu beint á hótelið okkar. Gist er á góðu 3* fjölskyldureknu hóteli í austurrískum stíl þar sem morgunverðarhlaðborð og fjögurra rétta kvöldverður með salathlaðborði er innifalið. Hótelið býður einnig upp á nýlega heilsulind. Stutt ferð er með skíðarútu sem stoppar rétt hjá hótelinu á öll helstu skíðasvæðin. Fararstjórar eru með hópnum alla ferðina, gista á sama hóteli og sjá um að skipuleggja skíðaferðir fyrir þá sem það vilja.
 


 

Svigskíði í Schladming í Austurríki

 

11. – 18. febrúar 2012      UPPSELT!
Fararstjórar: Sævar Skaptason og Guðmundur K. Einarsson
Skíðakennari: Ingi Jónsson 

Hinn fallegi bær Schladming er oft nefndur skíðahöfuðstaður svæðisins Steiermark í Austurríki. Bærinn sem liggur í 745 m hæð á sér langa sögu og tilheyrir hann einu stærsta skíðasvæði Austurríkis með aðgengi að 125 km löngum skíðabrekkum á öllum erfiðleikastigum. Á þessu fjölbreytta skíðasvæði ættu því allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi! Gist er á vel staðsettu 4* hóteli í austurrískum stíl í Schladming þar sem morgunverðarhlaðborð og kvöldverður með mismunandi valmatseðli er innifalið. Skíðalyftur eru staðsettar rétt hjá hótelinu og mikill kostur að geta farið beint í skíðalyfturnar á morgnana.  Flogið er með Icelandair til München og ekið sem leið liggur á hótelið í Schladming. Fararstjórar eru með hópnum alla ferðina og gista á sama hóteli. Jafnframt verður skíðakennarinn Ingi Jónsson með í för, en hann mun bjóða þeim sem vilja upp á skíðakennslu alla daga.



Flýtileiðir




Skipta um leturstærð