Aðventudýrð í Salzburg & München

Glæsileg aðventuferð til Salzburg í Austurríki og München þar sem ljósadýrðin birtir upp skammdegið og ilmurinn af jólaglöggi og ristuðum möndlum skapar einstaka jólastemningu. Byrjum ferðina í Salzburg í Austurríki sem er fæðingarborg Mozarts og þykir vera einn af gimsteinum Evrópu. Salzburg er ein af ævintýraborgum aðventunnar og trúlega er borgin sjaldan eins heillandi eins og á þessum tíma með fagurlega skreyttum, upplýstum götum og ilm af jólagóðgæti og glöggi sem leggur yfir stræti og torg. Hohensalzburg kastalinn er sem kóróna borgarinnar en þar var hluti kvikmyndarinnar Söngvaseiður tekinn upp. Aðventutöfrar taka á móti okkur í bænum Hallstatt við Hallsättersee vatnið og einnig verður áð við Hellbrunn höllina, þar sem finna má einn fallegasta jólamarkaðinn í Salzburg. Endum þessa ljúfu ferð í München höfuðborg Bæjaralands sem er glæsileg á aðventunni en hún skartar fallegum jólamörkuðum og sá stærsti breiðir úr sér hjá ráðhúsi borgarinnar á Marienplatz torginu. Úr turni ráðhússins hljómar ægifagurt klukknaspil tvisvar sinnum á dag. Ljómi og ilmur aðventunnar kemur okkur í jólastemningu í þessari menningar- og listaborg Þýskalands en tákn borgarinnar er Maríukirkjan með sínum háu turnum. Njótum dýrðar hennar og upplifum listaverka- og handverksmarkað í Schwabing einu dáðasta hverfi borgarinnar. Einnig gefum við okkur tíma til að sækja heim Hofbräukeller, eitt frægasta brugg- og veitingahús borgarinnar.

Verð á mann í tvíbýli 329.900 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 122.000 kr.

 
Innifalið

  • 8 daga ferð.
  • Flug með Icelandair og flugvallarskattar.
  • Gisting í 2ja manna herbergi með baði.
  • Morgunverður allan tímann á hótelum.
  • Fjórir kvöldverðir.
  • Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur.
  • Hádegisverðir.
  • Tveir kvöldverðir í Vínarborg.
  • Einn kvöldverður í Grinzing.
  • Þjórfé.
  • Forfalla- og ferðatryggingar.

Valfrjálst

  • Aðgangseyrir að Schönbrunn höllinni ca € 17.
  • Skoðunarferð um óperuhúsið í Vín ca  € 8. 
  • Ferð í hestakerru um Vínarborg ca € 14. 
  • Kláfur upp í kastalann Hohensalzburg ca € 16.

Nánari upplýsingar

Vert er að hafa í huga að þrátt fyrir að Bændaferðir séu alla jafna þægilegar rútuferðir er alltaf einhver ganga, t.d. í bæjarferðum. Margar evrópskar borgir eru bæði hæðóttar og ójafnar undir fæti og aðgengi að áfangastöðum þannig að leggja þarf rútunni mislangt frá. Ef þú hefur einhverjar vangaveltur varðandi þetta vinsamlegast ekki hika við að hafa samband við skrifstofu Bændaferða.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

24. nóvember │ Flug til München & Salzburg

Brottför frá Keflavík kl. 7:20. Mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför. Lent í München kl. 12:05 að staðartíma. Þaðan er haldið til Salzburg í Austurríki sem þykir vera einn af gimsteinum Evrópu. Borgin er þekkt fyrir byggingar í barokkstíl og var skráð á heimsminjaskrá UNESCO árið 1996. Gist verður í fjórar nætur á hóteli. Sameiginlegur kvöldverður.

25. nóvember │ Gönguferð um Salzburg & frjáls tími

Í dag ætlum við að fara í skemmtilega göngu um hina fögru borg Salzburg sem er sérlega heillandi á aðventunni. Borgin sem er þekktust sem fæðingarborg Mozarts er líka fræg fyrir mikilfenglegar byggingar í barokkstíl. Göngum í gegnum Mirabellgarðinn og eftir Getreidegasse sem er með elstu og þekktustu götum borgarinnar en þar er að finna mjög áhugavert Mozartsafn. Upplifum einnig Mozart torgið með klukkuspili, Residenz hallirnar og Dómkirkjuna. Gaman er að koma upp í kastalann Hohensalzburg en hluti kvikmyndarinnar Söngvaseiðs eða Sound of Music var tekinn hér upp. Hér er líka einn af fjölmörgum aðventumörkuðum borgarinnar og héðan er falleg sýn yfir borgina, Salzburgerland og stórfenglegt umhverfi Alpanna í kring. Aðventudýrðin blasir hvarvetna við í borginni og auðvitað gefst tími til að kanna mannlíf borgarinnar á eigin vegum og líta inn á kaupmenn. Fyrir þau sem vilja snæða saman á einhverjum af veitingahúsum borgarinnar er mælt með að bóka borð fyrirfram.

26. nóvember │ Hallstatt við Hallstätter vatnið & Hellbrunn höllin í Salzburg

Aðventutöfrar taka á móti okkur í bænum Hallstatt við Hallsättersee vatnið. Bærinn og landsvæðið umhverfis hann var skráð á heimsminjaskrá UNESCO árið 1996. Þetta er yndislegur bær sem gaman er að rölta um og sér í lagi á þessum tíma. Hér gefst góður tími til að njóta þess að vera á þessum dásamlega stað og fá sér hressingu og einnig er hægt að taka kláf upp á Salzberg fjallið en í góðu veðri er þaðan stórkostlegt útsýni yfir Dachstein fjöllin. Eftir það verður stefnan tekin aftur á Salzburg en á leiðinni verður áð við Hellbrunn höllina. Þar leikur rómantíkin um okkur og þar er jafnframt einn fallegasti jólamarkaður Salzburg. Við Helbrunn höllina eru um 700 grenitré skreytt með 10.000 rauðum kúlum og ljósaseríum sem baða svæðið í sérstökum aðventuljóma. Annar hápunktur er framhlið hallarinnar þar sem 24 gluggum er breytt í aðventudagatal. Í hallargarðinum er sjarmerandi handverks- og aðventumarkaður. Áætlað er að vera hér og sjá allt upplýst, njóta aðventustemmingar og fá sér hressingu áður en ekið verður á hótelið okkar.

Opna allt

27. nóvember │ Aðventudekur í Salzburg á eigin vegum

Í dag er frjáls dagur svo nú er um að gera að skoða sig betur um í borginni á eigin vegum og njóta alls þess sem hún hefur upp á að bjóða. Upplagt er að skella sér á söfn, líta í búðir eða setjast á kaffi- eða veitingahús og virða fyrir sér mannlífið.

28. nóvember │ München & skemmtileg gönguferð

Nú kveðjum við Salzburg eftir yndislega daga og stefnan er tekin á München, höfuðborg Bæjaralands, sem er töfrandi á aðventunni. Við byrjum á að fara í skemmtilega göngu um miðbæ München. Við röltum saman að fallega ráðhústorginu, Marienplatz, en þar er einn af stærstu aðventumörkuðum borgarinnar. Á leiðinni þangað lítum við inn á Viktualienmarkt sem er aðalmatarmarkaður borgarinnar. Eftir það verður frjáls tími til að skoða sig betur um í borginni og líta inn á kaupmenn borgarinnar sem eru ófáir. Eftir góðan tíma þar verður síðan ekið á hótel okkar þar sem gist verður í 3 nætur. Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu.

29. nóvember | München & skoðunarferð með rútu

Byrjum daginn á góðum morgunverð og rólegheitum en síðan verður farið í skemmtilega skoðunarferð um borgina þar sem ekið verður um helstu staði, m.a. að Ólympíusvæðinu sem var byggt fyrir Ólympíuleikana árið 1972 og að BMW byggingunni og safninu, Maximilianeum þinghúsi Bæjaralands, Gamla og Nýja Pinakothek listasöfnin, Wittelsbacher brunninum svo eitthvað sé nefnt. Áð verður síðan í gamla hverfinu í Schwabing sem er eitt vinsælasta hverfi borgarinnar og er þekkt fyrir notalega stemmingu, með líflegum krám, kaffi- og veitingahúsum. Hér er hrífandi listaverka- og handverksmarkaður en þar eru um 80 listamenn frá öllu Þýskalandi saman komnir með sína fjársjóði. Endum ferðina í miðbæ München og göngum saman að Hofbräukeller, einu frægasta brugg- og veitingahúsi borgarinnar, þar sem bæjarbúar hittast gjarnan og spjalla saman yfir góðum mat og drykk. Bæverski hertoginn Wilhelm V. stofnaði Hofbräukeller árið 1589 og átti það að sjá um bjór fyrir Wittelsbach ættina. Þar er upplagt að fá sér smá hressingu saman að hætti borgarbúa. Eftir það er frjáls tími og upplagt að skoða sig betur um í borginni og líta á aðventumarkaði í borginni. Fyrir þá sem vilja snæða saman á einhverjum af veitingahúsum borgarinnar þá er mælt með að bóka borð fyrirfram.

30. nóvember | Frjáls dagur í München

Í dag er frjáls dagur til að skoða sig betur um og jafnvel líta inn í verslanir. München er heillandi á þessum tíma með aðventuskreytingum, jólamörkuðum, kirkjum, söfnum, mjög skemmtilegum verslunargötum og óteljandi notalegum veitinga- og kaffihúsum.

1. desember │ Heimferð frá München

Eftir yndislega aðventuferð verður ekið til flugvallar í München. Brottför kl. 13:00 og lending í Keflavík kl. 16.00 að staðartíma.

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Hólmfríður Bjarnadóttir

Hólmfríður heiti ég, alltaf kölluð Hófý, og er fædd á Patreksfirði en ólst upp í Reykjavík. Ég er móðir þriggja drengja og er búsett í Bæjaraskógi í Þýskalandi. Ég er búin að starfa hjá Bændaferðum síðan 2004 í skipulagningu á utanlandsferðum og sem fararstjóri. Þetta hefur verið dásamlegur tími með frábæru fólki, yndislegu samstarfsfólki og vinum. 

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790

 

Tengdar ferðir




Póstlisti