Þórdís Erla Ágústsdóttir

Þórdís Erla Ágústsdóttir

Þórdís Erla er menntaður ljósmyndari og leiðsögumaður. Hún lærði ljósmyndun í Frakklandi í École Nationale Supérieure de la Photographie í Arles. Hún dvaldist langdvölum í Frakklandi eftir það við störf, gifti sig og átti dóttur sína, Lóu, í Marseille. Þórdís býr nú á Íslandi og starfar sem ljósmyndari, framhaldsskólakennari í ljósmyndun og leiðsögumaður.

Þórdís Erla Ágústsdóttir hefur starfað sem fararstjóri í fjölmörg ár. Hún starfaði fyrst á Íslandi með franska, spánska, breska og ameríska ferðamenn. Á árunum 1993 til 1995 starfaði hún sem fararstjóri í Túnis með íslenska ferðamenn; 1996 á Spáni, nánar tiltekið í Benidorm fyrir ferðaskrifstofuna Samvinnuferðir-Landsýn og 1997 og 1998 í Portúgal fyrir sömu ferðaskrifstofu.

Hún hefur farið í styttri ferðir með stóra hópa, svo sem til Rómar, Túnis og síðast á vegum Bændaferða sem fararstjóri til Frakklands, til Suður-Frakklands, Normandie & Bretagne og Avignon & Annecy.

Umsagnir farþega

Skörugleg, reynslumikil, glaðleg.

Skilar sínu starfi óaðfinnanlega, er fróð um land og sögu og tjáir sig létt og skemmtilega. Þórdís var í ljúfu sambandi við þátttakendur og hafði nöfn allra á hreinu frá upphafi ferðar.

Mjög fróð um staði sem heimsóttir voru. Talar frönsku. Glaðbeitt og skemmtileg.




Póstlisti