Go to navigation .
MS Rhône Princesse hefur siglt um árnar Rhône og Saône í meira en 20 ár en það var sérstaklega hannað til að sigla um þrengri hluta árinnar. Skipið bættist í flota franska útgerðarfyrirtækisins Croisi Europe árið 2001 og fékk um leið glæsilega yfirhalningu. Á aðalþilfarinu er að finna huggulega setustofu með bar og veitingastað, þar sem morgunverðurinn er borinn fram. Á sólarþilfarinu er einnig fínasta líkamsræktaraðstaða. Allar káeturnar eru með sér baðherbergi, hárblásara, sjónvarpi og öryggishólfi. Loftræstikerfi er að finna í öllum káetum.
Hér má sjá myndir og lesa nánar um skipið.