MS Amalia Rodrigues

MS Amalia Rodrigues

Skipið er nefnt eftir portúgölsku söng- og leikkonunni Amalia Rodrigues og var byggt árið 2018 og tekið í notkun ári seinna. Á skipinu eru 66 káetur sem allar eru með sérbaðherbergi, sjónvarpi, öryggishólfi, loftræstingu og þráðlausri nettengingu. Stórir útsýnisgluggar eru á miðju og efsta þilfarinu. Á aðalþilfarinu er glæsilegur veitingastaður þar sem morgun-, hádegis - og kvöldverður er borinn fram og á miðjuþilfarinu er hugguleg setustofa og bar þar sem hin ýmsu skemmtiatriði fara fram. Á sólarþilfarinu er sundlaug og sólbekkir. Fullt fæði er innifalið og eins allir drykkir með mat og á barnum meðan á siglingu stendur.
Vinsamlegast athugið að dagskrá ferðarinnar getur raskast vegna breytinga á vatnsyfirborði siglingaleiða, bilunar í skipastigum eða annarra óvæntra aðstæðna.




Póstlisti