2705. Stóra Ameríkusiglingin um Panamaskurðinn apríl 2027

Stórkostleg sigling og margir frábærir viðkomustaðir. Flogið með Icelandair til New York, brottför kl.16:45 og lent í New York kl.20;45 og gist þar í tvær nætur. Siglt er frá New York 9. apríl suður á bóginn í Karíbahaf, komið við á Purerto Plata í Dóminíska Lýðveldinu, Cartagena í Kólombíu og siglt upp Panama skipastigann, Gatum vatn,, Puerto Caldera Puntarenas í Costa Rica, Puerto Quetzal í Guatemala, Acapulco í Mexikó, Puerto Vallarta í Mexikó, Cabo San Lucas í Mexíkó, San Francisko, Victoria í Kanada og síðan Seattle þar sem siglingu lýkur. Flogið heim í beinu flugi með Icelandair.

Glæsiskipið Norwegian Bliss
Norwegian Bliss var smíðað 2018, skipið tekur 4.000 þarþega, í áhöfn eru 1.700. Bliss er 168.000 brúttótnn, 333 metra langt og er með 20 þilför eða hæðir.
Norwegian Bliss er stórt og glæsilegt skemmtiferðaskip frá Norwegian Cruise Line
Skipið var tekið í notkun árið 2018 og er þekkt fyrir mikla afþreyingu og gott útsýni. Á skipinu er go kart braut, sundlaugar, rennibrautir, heilsulind og stór útsýnissalur
Mikið úrval er af veitingastöðum. Einnig eru sýningar í leikhúsinu og lifandi tónlist á börum skipsins.

Verð á mann í tvíbýli í svalaklefa 1.199.900 kr. 

Aukagjald fyrir einbýli í svalaklefa 549.900 kr.

Innifalið

  • Flug fram og til baka.
  • Allur akstur milli flugvallar, hótels og skips.
  • Gisting með morgunverði á hótelinu.
  • 22 nátta sigling.
  • Íslensk fararstjórn.
  • Fullt fæði í skipinu.
  • Öll skemmtidagskrá um borð.
  • Þjórfé.
  • More At Sea pakkinn:
  • Drykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum og óáfengum drykkjum, gosdrykki en ekki vatn á flöskum, nýkreistan aldinsafa og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar. Innifelur ekki Mini Bar í klefum, léttvíns og vínkynningar eða sértilboð á bjórfötum. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskum.
  • Matarpakkinn: Fimm sinnum út að borða á sér veitingastöðunum í svalaklefa en þrisvar sinnum fyrir innklefa.
  • WiFi: 300 mínútur á þráðlausa netinu um borð.
  • Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa per höfn til að nota í skoðunarferðir. Safnast ekki upp ef ekki er notað.

Ekki innifalið

  • Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.
  • Ferða- og forfallatryggingar.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

7. apríl | Keflavík – New York

Beint flug með Icelandair. Brottför kl. 16:45 og lent í New Yoik kl. 20:45. Þar gistum við í tvær nætur. New York er ein stærsta og þekktasta borg Bandaríkjanna staðsett á austurströndinni. Borgin er þekkt fyrir skýjakljúfa líflegt mannlíf og mikla menningarlega fjölbreytni. Helstu kennileiti eru Times Square, Central Park, Frelsisstyttan og Brooklyn brúin. New York er miðstöð fjármála lista tísku og afþreyingar og er oft kölluð borgin sem aldrei sefur.

8. apríl | New York

Frjáls dagur í New York, nú er hægt að skoða margt spennandi. Frelsistyttan, Ground Zero, Time Square, Central Park og ótalmargt fleira.

9. apríl | Sigling hefst

Farið frá hótelinu eftir morgunverð og niður á höfn þar sem Bliss bíður okkar. Lagt úr höfn kl. 16:00. Fundur með fararstjóra um borð og síðan sameiginlegur kvöldverður.

Opna allt

10. – 11. apríl | Á siglingu

Verðum á siglingu báða dagana og um að gera að njóta alls þess sem skipið hefur upp á að bjóða. Fararstjóri labbar með hópinn um skipið að morgni fyrri dagsins.

12. apríl | Puerto Plata

Komið kl. 10:00 og farið kl. 18:00. Puerto Plata er strandborg í Dóminíska lýðveldinu við Atlantshafið. Borgin er þekkt fyrir fallegar strendur og afslappað andrúmsloft. Helstu áhugaverðir staðir eru kláfurinn upp á Isabel de Torres fjallið, Fortaleza San Felipe og Dorada ströndin.

13. apríl | Á siglingu

Sundlaugin, heitu pottarnir og sól og blíða.

14. apríl | Cartagena Colombia

Koma kl.12:00 og farið kl.19:00. Cartagena er söguleg strandborg í Kólumbíu við Karíbahafið. Borgin er þekkt fyrir litrík hús steinlagðar götur og vel varðveittan gamla bæ. Hún sameinar ríka sögu menningu strendur og líflegt andrúmsloft.

15. apríl | Colon

Komið kl. 11:30 og farið kl.22:00. Colón er hafnarborg í Panama við Karíbahafið. Borgin er þekkt fyrir Panama skurðinn eina stærstu fríverslunarsvæði heims og mikilvæga sögu. Hún er algeng viðkomuhöfn skemmtiferðaskipa og tengist bæði verslun og siglingum. Colón býður upp á innsýn í menningu Panama og verkfræðiundrið Panama skurðinn.

16. apríl | Panama skurðurinn

Panama skurðurinn er manngerður skipaskurður í Panama sem tengir Atlantshaf og Kyrrahaf. Hann er eitt mikilvægasta verkfræðiundur heims og styttir siglingaleiðir verulega. Skurðurinn var opnaður árið 1914 og hann gegnir lykilhlutverki í alþjóðlegri verslun og siglingum.

17. apríl | Á siglingu

Á siglingu allan daginn og um að gra að njóta þess sem í boði er um borð.

18. apríl | Puerto Caldera Puntarenas

Komum kl. 07:00 og förum kl. 18:00. Puerto Caldera Puntarenas er mikilvæg höfn á Kyrrahafsströnd Kosta Ríka. Hún er aðallega iðnaðar og flutningshöfn en þjónar einnig skemmtiferðaskipum. Svæðið er nálægt fallegum ströndum og stutt er í fallega garða með miklu fuglalífi.

19. apríl | Á siglingu

Hvers vegna ekki að prófa kappaksturbrautina?

20. apríl | Puerto Quetzal

Komið kl.07:00 og farið kl.18:00. Puerto Quetzal er hafnarborg á Kyrrahafsströnd Gvatemala. Þaðan er stutt að fara til Antigua sem er söguleg borg og fyrrum höfuðborg landsins.

21. apríl | Á siglingu

Það er gaman í rennibrautunum um borð.

22. apríl | Acapulco

Komið kl.07:00 og farið kl.17:00. Acapulco er strandborg á Kyrrahafsströnd Mexíkó. Borgin var lengi einn vinsælasti ferðamannastaður landsins. Hún er þekkt fyrir fallega flóa og strendur.

23. apríl | Á siglingu

Sigling allan daginn.

24. apríl | Puerto Vallarta

Komið kl.07:00 og farið kl.15:00. Puerto Vallarta er strandborg við Kyrrahafsströnd Mexíkó í ríkinu Jalisco. Borgin er þekkt fyrir fallegar strendur og Malecón strandgatan er skemmtileg.

25. apríl | Carbo San Lucas

Komið kl.07:00 og farið kl.15:00. Cabo San Lucas er strandbær á suðurenda Baja California skagans í Mexíkó. Borgin er þekkt fyrir fallegar strendur og „El Arco“ klettinn við ströndina.

26. – 27. apríl | Á siglingu

Í dag hlöðum við batteríin og slökum á eða skellum okkur á fjörugt diskótek.

28. apríl | San Francisco

Komið kl. 07:00 og farið kl. 16:00. San Francisko er ein frægasta borg Bandaríkjana. Fræg fyrir hæðótt stræti. Í flóanum er hin eyjan Alcatrash með fangelsinu fræga. Við mælum með skoðunarferð þangað, hverrar mínútu virði. Golden Gate brúin fræga er ekki langt undan, sæljónin við höfnina eru skemmtileg og engum ætti að leiðast í þessari frábæru borg.

29. apríl | Á siglingu

Nú eru síðustu forvöð að krækja sér í smá brúnku.

30. apríl | Victoria í Kanada

Komið kl. 14:00 og farið kl. 23:59. Viktoria er höfuðborg Bresku Kólumbíu í Kanada staðsett á suðurenda Vancouver-eyju við Kyrrahafið. Borgin er þekkt fyrir fallegan garða, sögulegar byggingar og rómantískt strandumhverfi.

1. maí | Seattle – Siglingu lýkur.

Komið kl. 06:00 og farið frá skipi kl.10:00 og boðið verður uppá skoðunarferð um borgina áður en haldið er til flugvallar en brottför til Keflavíkur er kl.19:00. Seattle er stærsta borgin í Washington ríki í Bandaríkjunum við Puget Sound á Kyrrahafsströndinni. Borgin er miðstöð viðskipta, tækni og menningar í Norður‑Ameríku með um 780 þúsund íbúa í borginni og yfir 4 milljónir í borgarsvæðinu. Seattle er fræg fyrir Space Needle útsýnisturninn og Pike Place Market markaðinn.

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Hólmfríður Bjarnadóttir

Hólmfríður heiti ég, alltaf kölluð Hófý, og er fædd á Patreksfirði en ólst upp í Reykjavík. Ég er móðir þriggja drengja og er búsett í Bæjaraskógi í Þýskalandi. Ég er búin að starfa hjá Bændaferðum síðan 2004 í skipulagningu á utanlandsferðum og sem fararstjóri. Þetta hefur verið dásamlegur tími með frábæru fólki, yndislegu samstarfsfólki og vinum. 

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti