Hjólað um ítölsku rivíeruna
6. – 13. júní 2024 (8 dagar)
Í yfir heila öld hefur strandlengja Lígúríu verið einn vinsælasti ferðamannastaður Evrópu. Sólardagar ár hvert telja um 280 og loftslagið er einstaklega milt. Við heimsækjum fallegustu staði Ponente rivíerunnar eða hinnar svokölluðu blómarivíeru. Hjólað verður eftir gömlu lestarleiðinni til strandbæjarins San Remo en þar er frægt spilavíti í glæsilegri byggingu. Einnig komum við til smærri bæja líkt og San Lorenzo al Mare sem er frægur fyrir ólífuolíuna sína, fiskiþorpsins Arma di Taggia og nornabæjarins Triora. Litríkur gamli bæjarhluti Taggia tekur á móti okkur sem og listamannaþorpið Bussana Vecchia. Þau eru mörg sjarmerandi þorpin á Lígúríu ströndinni og við munum t.a.m. hjóla til miðaldaþorpsins Lingueglietta sem er á lista yfir fallegustu þorp Ítalíu. Á frídeginum gefst tækifæri til að heimsækja furstadæmið Mónakó. Í þessari töfrandi hjólaferð verða hvert sem litið er á vegi okkar skrautjurtir, pálmatré, ólífulundir, glæsihús, fallegir miðaldabæir og fornar hallir.