Hjólað um ítölsku rivíeruna

Í yfir heila öld hefur strandlengja Lígúríu verið einn vinsælasti ferðamannastaður Evrópu. Sólardagar ár hvert telja um 280 og loftslagið er einstaklega milt. Við heimsækjum fallegustu staði Ponente rivíerunnar eða hinnar svokölluðu blómarivíeru. Hjólað verður eftir gömlu lestarleiðinni til strandbæjarins San Remo en þar er frægt spilavíti í glæsilegri byggingu. Einnig komum við til smærri bæja líkt og San Lorenzo al Mare sem er frægur fyrir ólífuolíuna sína, fiskiþorpsins Arma di Taggia og nornabæjarins Triora. Litríkur gamli bæjarhluti Taggia tekur á móti okkur sem og listamannaþorpið Bussana Vecchia. Þau eru mörg sjarmerandi þorpin á Lígúríu ströndinni og við munum t.a.m. hjóla til miðaldaþorpsins Lingueglietta sem er á lista yfir fallegustu þorp Ítalíu. Á frídeginum gefst tækifæri til að heimsækja furstadæmið Mónakó. Í þessari töfrandi hjólaferð verða hvert sem litið er á vegi okkar skrautjurtir, pálmatré, ólífulundir, glæsihús, fallegir miðaldabæir og fornar hallir.

Verð á mann í tvíbýli 419.200 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 57.200 kr.


Innifalið

  • 8 daga ferð
  • Flug með Icelandair og flugvallarskattar.
  • Ferðir á milli flugvallarins í Nice og hótelsins. 
  • Gisting í tveggja manna herbergi með baði á 4 stjörnu hóteli.
  • Morgun- og kvöldverður allan tímann á hóteli.
  • Aðgangur að útisundlaug hótelsins.
  • Frí vatnsflaska inni á herbergi.
  • Þvottaþjónusta á hjólafatnaði. 
  • Leiga á rafhjóli í 6 daga ásamt hjálmi og einni hjólatösku.
  • Hjólaprógramm í 5 daga.
  • Skoðunarferð til Mónakó með rútu.
  • Innlend leiðsögn í hjólaferðum.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur.
  • Siglingar, lestarferðir og leigubílaakstur.
  • Hádegisverður.
  • Þjórfé.
  • Ferða- og forfallatrygging.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

Undirbúningur

Dagleiðirnar í þessari hjólaferð spanna um 40 -50 km. Ferðahraðinn er ekki meiri en svo að auðvelt er að upplifa umhverfið og njóta þess sem fyrir augu ber. Við ráðleggjum gestum okkar að æfa sig vel fyrir ferðina, fara í nokkra lengri dagstúra og festa kaup á gelhnakki eða hjólabuxum. Því fylgir mikil ánægja að æfa fyrir hjólaferð af þessu tagi og farþegar njóta sjálfrar ferðarinnar betur ef þeir æfa og undirbúa sig vel fyrir ferðina. Fararstjóri mun boða farþega sína í stutta hjólaferð eða ferðir hér heima áður en haldið verður utan.
Vinsamlegast athugið að ef þátttakendur hafa ekki þá getu sem nauðsynleg er fyrir hjóladaga ferðarinnar getur fararstjórinn farið fram á að viðkomandi komi ekki með í ákveðnar ferðir heldur dvelji á hótelinu eða fari í hjólatúra á eigin vegum.

Flug

Flogið verður með Icelandair til Nice þann 6. júní. Brottför frá Keflavík kl. 16:25 en mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst fyrir brottför. Lending í Nice kl. 22:30 að staðartíma. Frá flugvellinum í Nice eru u.þ.b. 80 km til hótelsins í Santo Stefano al Mare. Á heimleið 13. júní er flogið frá Nice kl. 23:30. Lending á Íslandi kl. 01:50 að staðartíma, aðfaranótt 14. júní.

Tillaga að dagleiðum

Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé fararstjóri er reyndur hjólari og mun hún skipuleggja hjólaferðirnar eftir aðstæðum hverju sinni í samráði við enskumælandi innlendan leiðsögumann sem fylgja mun hópnum alla hjóladagana. Eftirfarandi eru leiðarlýsingar til viðmiðunar fyrir fimm hjóladaga sem fararstjóri getur skipulagt ásamt því að breyta eða bæta við stöðum. Gert er ráð fyrir einum frídegi.

Opna allt

1. San Remo

Frá hótelinu liggur hjólaleið dagsins meðfram ströndinni og hjólað verður eftir gömlu lestarleiðinni til strandbæjarins San Remo. Þessi leið er einstök og bíður upp á dásamlegt útsýni yfir ströndina. San Remo er einn elsti vetrardvalarstaðurinn á þessum slóðum og þar er að finna frægt spilavíti í glæsilegri byggingu. Við upplifum þennan fallega bæ hjólandi og gefum okkur tíma til að fá okkur hressingu áður en hjólað er til baka á hótelið. 

  • Vegalengd: u.þ.b. 40 km

2. Nornabærinn Triora

Í dag förum við frá hótelinu og hjólum í úthverfi Taggia sem er með einstökum miðaldablæ. Þaðan liggur leiðin í svonefndan Argentínudal en um hann rennur samnefnd á. Skógivaxnar hlíðar eru til beggja handa með litlum þorpum, eins konar listaverk í guðsgrænni náttúrunni. Brátt komum við að fyrsta dæmigerða þorpi þessa dals, Badalucco, og skömmu síðar erum við í Malino di Triora. Senn náum við takmarki dagsins, þorpinu Triora sem er hrífandi miðaldabær í 800 m hæð yfir sjávarmáli. Þorpið er þekkt sem „þorp nornanna“ og fyrir einstaklega gómsætt brauð. Þaðan hjólum við svo til baka á hótel.

  • Vegalengd: u.þ.b. 40 km
  • Hækkun: 780 m

3. Arma di Taggia, Bussana Vecchia & Taggia

Frá hótelinu höldum við í notalegan hjólatúr um sveitir Lígúríu. Við þræðum litla bæi og byrjum á því að heimsækja litla sjávarþorpið Arma di Taggia. Áfram höldum við til listamannabæjarins Bussana Vecchia en bærinn fékk endurnýjun lífdaga snemma á sjöunda áratugnum eftir að hafa verið yfirgefinn draugabær. Að síðustu tekur litríki gamli bæjarhluti Taggia á móti okkur, sem er þekktur fyrir ólífur og söguminjar.

  • Vegalengd: u.þ.b. 40 km

4. Frjáls dagur & Mónakó

Þennan dag er tilvalið að láta hugsanlegar harðsperrur líða úr sér og njóta þess sem hótelið hefur upp á að bjóða, slappa af við sundlaugina eða kynna sér nágrennið á eigin vegum. Einnig stendur til boða að heimsækja furstadæmið Mónakó, stundum kallað dvergríkið Mónakó. Þar er m.a. hægt að skoða kaktusgarðinn en þaðan er glæsilegt útsýni yfir borgina og klettinn sem gamli bærinn var reistur á. Fara í skoðunarferð um klettaborgina en þar er að finna höll furstafjölskyldunnar og dómkirkjuna þar sem Grace Kelly var borin til grafar. Einnig er gaman að skoða glæsilega byggingu Grand Casino spilavítisins í Monte Carlo hverfinu.

5. Lingueglietta, Cipressa & Castellaro

Í dag hjólum við fyrst til miðaldaþorpsins Lingueglietta sem er í 325 metra hæð yfir sjávarmáli og er á lista yfir fallegustu þorp Ítalíu. Þaðan förum við á virkilega fallegan stað í miðjum furuskógi þar sem við njótum stórkostlegs útsýnis yfir Liguria ströndina. Enn hjólum við fram hjá ólífulundum og í gegnum litlu, sjarmerandi þorpin Cipressa, Pompeiana og Castellaro. Lokaáfangastaður dagsins áður en hjólað er til baka á hótelið er Lampedusa helgistaðurinn 

  • Vegalengd: u.þ.b. 40 km
  • Hæðarmunur: 700 m

6. San Lorenzo al Mare, Imperia & Dolcedo

Frá hótelinu hjólum við í gegnum ólífuekrur til Dolcedo en staðurinn er þekktur fyrir framleiðslu á ólífuolíu. Á leiðinni sjáum við líka rómverska steinakapellu og heillandi miðaldaþorp. Síðdegis komum við að strandbænum Imperia, skoðum gamla bæjarhlutann Porto Maurizio og njótum lífsins á þessum fallega stað. Við hjólum til baka eftir strandlengjunni til Santo Stefano al Mare og munum þá hjóla fram hjá Oneglia, fornu höfn Imperia.

  • Vegalengd: u.þ.b. 50 km

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé

Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé er viðskiptafræðingur og starfar á velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Hún hefur verið þjálfari hjá Náttúruhlaupum frá 2014 og var þjálfari hjá Hlaupahópi Stjörnunnar frá 2018-2022. Hún hefur mikinn áhuga á hreyfingu og útivist og elskar að leiðbeina fólki að stíga sín fyrstu skref í hreyfingu. Halldóra hefur lokið fimm Ironman keppnum, átta götumaraþonum, 18 ultra utanvegahlaupum og er Landvættur númer 8 og 663 og Sænskur Klassiker númer 10834. Halldóra hefur klárað Vasaloppet 90 km keppnina í Svíþjóð þrisvar sinnum, auk þess að klára Nattvasan 90 km, Öppet spår 90 km og Birkebeinerennet 54 km skíðagöngurnar.

Hótel

Best Western Hotel Anthurium

Gist verður á 4* Best Western Hotel Anthurium í Santo Stefano al Mare. Hótelið er staðsett 100 m frá ströndinni á milli Imperia og San Remo. Herbergin eru með loftkælingu, míníbar, sturtu, hárþurrku, sjónvarpi með gervihnattastöðvum og öryggishólfi. Í garðinum er þægileg sundlaug og hugguleg sólbaðsaðstaða með bekkjum.

Senda fyrirspurn um ferð

bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790

 

Tengdar ferðir




Póstlisti