18. - 26. september 2024 (9 dagar)
Gengið og siglt er skemmtileg ferð sem tengir á einstakan hátt saman kosti siglingar og fallega náttúru í gönguferðum um fegurstu fljótadali Þýskalands. Við siglum á fljótunum Saar, Mósel og Rín og förum daglega í 8 - 10 km langar gönguferðir. Flogið verður til Frankfurt og haldið inn í Móseldalinn til hins glæsilega bæjar Tríer þar sem gist verður í þrjár nætur. Förum þaðan í gönguferðir og tækifæri gefst til að skoða sig um og fara í vínsmökkun. Höldum síðan til Saarlouis í Saardalnum og um borð í skipið MS Leonardo da Vinci þar sem gist verður í fjórar nætur. Gengið verður um fjölbreytt landsvæði, s.s. vínakra, skóglendi og á stígum eftir hamraveggjum. Landslagið er stórkostlegt og útsýnið yfir bæi, ár, dali, vínakra og kastala ægifagurt og eins fáum við notið þess að sigla og virða fyrir okkur tilkomumikla fegurð þessara svæða. Skipsferðinni lýkur í Strassborg. Þessi ferð er fyrir alla sem hafa gaman af að hreyfa sig í fallegri náttúru, sigla og njóta lífsins í góðum hópi.