Verð á mann í tvíbýli 299.900 kr.
Aukagjald fyrir einbýli 61.900 kr.
Athugið að ef til þess kemur að Bændaferðir þurfi að fella niður ferðina er hún endurgreidd að fullu.
Innifalið
- 8 daga ferð.
- Flug með Icelandair og flugvallarskattar.
- Rútuferð til og frá flugvelli
- Gisting í 7 nætur í tveggja manna herbergi með baði.
- Morgunverður allan tímann á hóteli.
- Fjórir kvöldverðir – vatn og ¼ flaska vín á mann.
- Fjórar ferjusiglingar á Como vatni – fram og til baka.
- Íslensk fararstjórn.
Ferðin inniheldur léttar til miðlungserfiðar gönguferðir.
Mikilvægt er að þátttakendur séu í ágætis gönguformi, en besti undirbúningurinn fyrir þá sem búa á höfuðborgarsvæðinu er að ganga upp að Steini í Esjunni einu sinni í viku, a.m.k. tvisvar til þrisvar sinnum fyrir ferðina. Þeir sem búa fjær velja sér sitt staðarfjall til að ganga á og sameina þar með undirbúning og útiveru. Því fylgir mikil ánægja að æfa fyrir gönguferð af þessu tagi og farþegar njóta sjálfrar ferðarinnar betur ef þeir æfa og undirbúa sig vel fyrir ferðina.