Hotel Flamingó Wellness és Konferencia

Hotel Flamingó Wellness és Konferencia

Gist verður í 6 nætur á 4* Flamingó Wellness és Konferencia Hotel í bænum Balatonfüred, við norðurströnd Balaton vatnsins. Við vatnið er sérsvæði sem tilheyrir hótelinu, lítil sandströnd, legustólar á grasflötinni beint við vatnið og útilaugar ásamt heitum pottum. Á innisvæðinu eru mismunandi laugar og nuddpottar og dásamleg heilsulind með eimbaði, sánu, saltbaði og líkamsræktaraðstöðu. Boðið er upp á ýmsar heilsu- og snyrtimeðferðir gegn gjaldi. Herbergin eru öll með svölum, baði/sturtu, hárþurrku, loftkælingu, síma, flatskjá og öryggishólfi. Kvöldverðir og morgunverðir eru í formi hlaðborðs. Gist í eina nótt á Mercure Hotel Korona í hjarta Búdapest. 

Vefsíða hótels 




Póstlisti