Alpenhotel Rainell

Alpenhotel Rainell

Hótelið Alpenhotel Rainell er 4* hlýlegt og nútímalegt hótel, sem er uppi í hlíð skammt frá miðbæ St. Ulrich í Suður-Tíról. Herbergin eru rúmgóð, öll með svölum og búin sturtu/baðkari, flatskjá, öryggishólfi, hárþurrku, míníbar og síma. Hugguleg heilsulind með sundlaug, sauna, eimbaði og innrauðum klefa er á hótelinu en þar er gott að slaka á eftir góðan göngudag. Gestir hafa aðgang að líkamsræktarsal hótelsins og legubekkir eru til reiðu í garðinum. Hótelið er staðsett á stórfenglegum stað í Dólómítunum og njóta gestir glæsilegs útsýnis frá herbergjum sínum og úr heilsulindinni. Tíu mínútna gangur er niður í miðbæ St. Ulrich, þar sem finna má helstu verslanir og þjónustu ásamt veitinga- og kaffihúsum. Á hótelinu er hægt að fá lánaða göngustafi og létta bakpoka. Ókeypis þráðlaus nettenging er á hótelinu. 




Póstlisti