Ferðalýsing

Ferðalýsing

  
Maraþon í Boston 2016Maraþonið 18. apríl 2016

Boston maraþonið hefst í bænum Hopkinton í Massachusetts fylki og á leiðinni fara hlauparar í gegnum átta borgir eftir kræklóttum vegum og m.a. upp brekkur Newton Hills, en frægust þeirra er án efa Heartbreak Hil nálægt Boston Collage. Glaðir hlauparar spretta svo úr spori til móts við bókasafnið í Boston þar sem mikil fagnaðarlæti áhorfenda taka á móti þeim yfir endamarkið.
 
Nánari upplýsingar um hlaupaleiðir og fyrirkomlag hlaupsins er að finna á vefsíðu Boston maraþonsins.

 
 
 
BostonBoston, höfuðborg Massachusetts

Boston, höfuðborg Massachusetts er afskaplega falleg borg sem býr yfir miklum evrópskum áhrifum á sviði byggingarlistar og menningar sem vert er að kynna sér nánar. Upplagt er að hjóla um borgina undir leiðsögn, fara í skoðunarferðir þar sem saga og mannlíf borgarinnar er rakin á skemmtilegan og áhugaverðan hátt, kynnast borginni hlaupandi eða með almenningssamgöngum, kíkja í verslanir á Newbury Street, fornminjar á Charles Street í nágrenni Beacon Hill eða setjast á einhver fjölmargra kaffi- eða veitingahúsa borgarinnar. Ef fólk er í verslunarhugleiðingum er hægt að ferðast örlítið út fyrir borgarmörkin og kíkja í Outlet Mall og gera góð kaup. Boston hefur svo sannarlega upp á margt að bjóða.

 
 
 
HóteliðGist verður á 4* hótelinu Sheraton Boston Hotel

Gist verður á 4* hótelinu Sheraton Boston Hotel sem er staðsett í miðbæ Boston í göngufjarlægð frá marki maraþonsins. Tvær helstu verslunargötur borgarinnar eru í nágrenni hótelsins, en þar er að finna fjöldan allan af litlum veitingastöðum, kaffihúsum og verslunum. 

 
20 mínútna gangur er í Public Garden og Boston Common garðinn. Á hótelinu eru 450 nýlega innréttuð herbergi, veitingastaður og kaffihús þar sem hægt er að kaupa léttar veitingar sem og morgunmat (morgunmaturinn er ekki innifalinn). Hótelið býður upp á glæsilega aðstöðu, líkamsræktarsal, eina stærstu upphituðu innanhússundlaug borgarinnar, spa og snyrtistofu, þar sem hægt er að panta alls kyns líkamsmeðferðir gegn gjaldi.

 
 



 
 
Verð: Bostonstart

139.600 kr. á mann í tvíbýli.

99.900 kr. á mann í þríbýli með tveimur aðskildum hjónarúmum.

88.400 kr. á mann í fjórbýli með tveimur aðskildum hjónarúmum.

248.400 kr. á mann í einbýli.

 
 
Innifalið:
• Gisting í 4 nætur á hótelinu Sheraton Boston Hotel.
• Réttur á skráningu í Boston maraþonið. Bændaferðum er skylt að selja hlaupanúmerið sem hluta af ferðapakka.

 
 
Ekki innifalið:
• Þátttökugjald í Boston maraþonið.
• Morgunmatur á hóteli.
• Flug til Boston.
• Forfalla- og ferðatryggingar.

 


 
 
Þátttökugjald í Boston maraþonið 72.000 kr.

Með bókun í ferðina öðlast farþegar rétt á öruggri skráningu í Boston maraþonið (athugið að skráningin í hlaupið er ekki innifalin í ferðapökkunum). Athugið að hlauparar sem ekki uppfylla lágmarkstíma fyrir Bostonmaraþonið fara í ráshólf fyrir aftan þá hlaupara sem eiga tíma innan tímatakmarkana. Aðeins ef hlaupari uppfyllir lágmarkstíma, færist hann sjálfkrafa yfir í betra ráshólf.

 
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Hlaupanúmer í Boston maraþonið, óháð tímatakmörkunum.
• Undirbúningsfundur með reyndum hlaupara.
• Tímaflaga.
• Rútuferð að rásmarki maraþonsins (aðeins hlauparar).
• Aðgangur að glæsilegri hlaupasýningu (Expo).
• Langermabolur.
• Pastaveisla kvöldið fyrir hlaup.
• Viðurkenningarskjal og bók að hlaupi loknu (sent í pósti).


 



Abbott World Marathon Majors 

Boston maraþonið er eitt af Abbott World Marathon Majors hlaupunum. Margir hlauparar „safna“ þessum hlaupum. Hinar borgirnar eru New York, Tókýó, Berlín, Chicago og Boston.
 
Bændaferðir eru umboðsaðilar fyrir World Marathon Majors á Íslandi.

 


 
 


Ferðaskilmálar Bændaferða

 

 

Tengdar ferðir




Póstlisti