2610. Feneyjar til Barcelona - október

Flogið til Feneyja með Icelandair, brottför kl.08:20 og lent í Feneyjum kl.15:00. Gistum í Mestre (Feneyjum) þrjár nætur á Ambasicatori Mestre sem er glæsilegt fjögurra stjörnu hótel. Förum síðan í 9 nátta siglingu með NCL Viva frá Feneyjum þar sem komið er við í Kotor í Svartfjallalandi, Dubrovnik í Króatíu, Salerno, Róm (Civitavecchia) og Livorno á Ítalíu, Nice í Frakklandi, Monaco, Palma á Mallorka á Spáin og endað í Barcelona þar sem við gistum í tvær nætur áður en við fljúgum heim með Icelandair.

Glæsiskipið Norwegian Viva
Norwegian Viva er 155,873 brúttótonn, 294 metrar á lengd og tekur 3.195 farþega. Áhöfnin er 1.506 og ganghraði er 20 hnútar. Viva er glæsilegur farkostur þar sem smekkleg hönnun og lúxus er einkenni þess. Það er hreint ævintýri að sigla með skipinu. Viva er næst nýjasta skip Norwegian Cruise Line, byggt 2023 og er afar smekklega innréttað.

Verð á mann í tvíbýli í innklefa 690.000 kr. 

Verð á mann í tvíbýli í svalaklefa 810.000 kr. 

Innifalið

  • Flug fram og til baka.
  • Allur akstur milli flugvallar, hótels og skips.
  • Gisting með morgunverði á hótelinu.
  • Níu nátta sigling.
  • Íslensk fararstjórn.
  • Fullt fæði í skipinu.
  • Öll skemmtidagskrá um borð.
  • Þjórfé.
  • More At Sea drykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum drykkjum með örfáum undantekningum. Allir gosdrykkir og óáfengir drykkir innifaldir nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar.Innifelur ekki Mini Bar í klefum, Connoisserur‘s Collection, léttvíns og vínkynningar eða sértilboð á bjórfötum. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskum.
  • Matarpakkinn: Út að borða á sérreknu veitingastöðunum: Svalaklefi: 7 daga sigling 3 sinnum út að borða, 8-11 daga sigling 4 sinnum út að borða og 12 dagar og meira 5 sinnum út að borða. Gildir fyrir allt að 3 í svalaklefa. Innklefi og Stúdío: 7 daga sigling: 1 sinni út að borða, 8-11 daga sigling: 2 sinnum út að borða og 12 dagar og lengra, 3 sinnum út að borða.
  • WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð. Gildir fyrir allt að 3 saman í klefa.
  • Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa per höfn til að nota í skoðunarferðir. Safnast ekki upp ef ekki er notað.

Ekki innifalið

  • Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.
  • Ferða- og forfallatryggingar.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

2. október | Keflavík – Feneyjar

Flogið með Icelandair til Feneyja. Ekið til hótels í Mestre (Feneyjar). Gistum þar í þrjár nætur.

3. október | Feneyjar

Notum daginn til að skoða Feneyjar enda margt og mikið að sjá í þeirri merku borg. Fararstjóri fer annan daginn með þá sem það vilja til Feneyja og röltir þar um.

4. október | Feneyjar

Frjáls dagur, skoða Mestre eða kíkja aftur á Feneyjar.

Opna allt

5. október | Siglingin hefst

Brottför frá hóteli um kl.09:00. Um tvo tíma tekur að aka til Ravena. Viva leggur úr höfn klukkan 16:00.

6. október| Kotor í Svartfjallalandi

Komið til Kotor 13:00 og farið kl. 23:59. Kotor í Svartfjallalandi hét einu sinni “Cattaro” og tilheyrði Ítalíu. Hér búa um 13.000 manns og er bærinn afar fallegur og hefur mikla sögu. Bærinn stendur við Kotor flóa og umhverfið er afar mikilfenglegt og fallegt að sigla þar inn. Kotor er afar vinsæll komustaður skemmtiferðaskipa í Króatíu er oft kölluð “Perla Eyjaálfunnar” og er einhver skemmtilegasta borg sem skemmtiferðaskip koma til. Borgin er girt 13. aldar virkisveggjum, fræg fyrir gamlar sögufrægar byggingar, götur iðandi af mannlífi, veitingastöðum og fallegri strandlengju.

7. október | Dubrovnik í Króatíu

Komið til Dubrovnik 07:00 og farið kl. 16:39. Tökum rútu upp að múrunum í gamla bænum og röltum um hann.

8. október | Á siglingu

Um að gera að njóta alls þess sem í boði er um borð.

9. október| Salerno Ítalíu

Komið kl.07:00 og farið kl.18:00. Salerno er forn borg við Salerno flóa. Landslagið umhverfis borgina er afar fallegt og stutt frá er hin fræga Amalfi strönd. Í Salerno var fyrsti læknaskóli Evrópu og borgin býr yfir mikilli sögu. Borgin státar af fjölda veitingahúsa, mannlífi og mörgu fleiru.

10. október| Róm (Civitavecchia)

Komum til Civitavecchia kl 06:45 og farið aftur kl 17:00. Hin sögufræga Róm er ein frægasta borg í heimi. Hægt er að bóka skemmtilegar skoðunarferðir til borgarinnar á vegum skipsins. Öryggið við að bóka í skipsferð er að ef seinkun verður þá bíður skipið en ekki eftir þeim sem eru á eigin vegum.

11. október| La Spezia á Ítalíu

Komið til La Spezia kl.06:15 og farið kl.22:00. La Spezia er hafnarborg á norðvesturströnd Ítalíu við Miðjarðarhafið. Borgin er mikilvæg inngangsleið að Cinque Terre sem er þekkt fyrir falleg strandþorp La Spezia sameinar sjómenningu sögulegar byggingar og ítalskt daglegt líf. Hún er vinsæl viðkomuhöfn skemmtiferðaskipa og góður upphafspunktur til að kanna svæðið.

12. október | Nice (Monaco)

Komið til Nice kl.07:00 og farið kl. 18:00. Nice hefur viðurnefnið “Nice la Bella” sem þýðir Nice fallega. Ein af fegurstu borgum Frakklands og þaðan er stutt að fara til Monaco eða um háftíma akstur. Hægt að bóka sig í margar skoðunarferðir frá skipinu til Monaco og víðar.

13. október| Palma Mallorka

Komið til Palma kl. 13:00 og farið kl. 21:00. Palma er höfuðborg Mallorka, afar falleg og skemmtileg borg sem gaman er að skoða.

14. október| Barcelona – Siglingu lýkur

Komið til Barcelona kl. 06:30 og við förum til hótels um kl.10:00 eftir að hafa snætt morgunmat um borð. Gistum hér í tvær nætur. Barcelona er höfuðborg Katalóníu, þekkt fyrir sögufrægar byggingar, iðandi mannlíf og fallega strönd.

15. október| Barcelona

Notum daginn til að skoða Barcelona, röltum niður Römbluna eða förum á ströndina.

16. október | Heimferð / Barcelona – Keflavík

Flogið heim með Icelandair.

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Skúli Unnar Sveinsson

Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.

Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti