Franska & ítalska rivíeran

Töfrandi ferð um frönsku og ítölsku rivíeruna þar sem heillandi umhverfi lætur enga ósnortna. Ferðin hefst í fallega bænum Lerici við La Spezia flóann á Ítalíu en hann ber viðurnefnið Skáldaflóinn. Skemmtilegar dagsferðir eru í boði, m.a. ævintýraleg sigling úti fyrir brattri klettaströnd Cinque Terre með viðkomu í þorpunum Riomaggiore, Monterosso og Porto Venere. Komið er til gömlu virkisborgarinnar Lucca í Toskana héraði sem er fæðingarborg tónskáldsins Puccini og þar um slóðir förum við í skemmtilega heimsókn til vínbónda. Það er alltaf svo yndislegt að koma til borgarinnar Pisa þar sem skakki turninn, basilíkukirkjan og skírnarkapellan verða skoðuð. Sælan heldur áfram frá hinum þekkta bæ San Remo við blómaströndina. Við upplifum glæsileika frönsku rivíerunnar í furstadæminu Mónakó og könnum yndislegu borgina Nice við Côte d’Azur ströndina og borgina Cannes, þar sem við fetum í fótspor kvikmyndastjarnanna. 

Verð á mann í tvíbýli 336.600 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 69.200 kr.


Innifalið

  • 10 daga ferð.
  • Flug með Icelandair og flugvallarskattar.
  • Gisting í 2ja manna herbergi með baði.
  • Morgunverðir allan tímann á hótelum.
  • Átta kvöldverðir á hótelum.
  • Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aðgangseyrir inn í söfn, hallir, spilavíti og kirkjur.
  • Siglingar.
  • Hádegisverðir.
  • Einn kvöldverður.
  • Vínsmökkun.
  • Þjórfé.

Valfrjálst

  • Sigling með Cinque Terra ströndinni u.þ.b. € 35.
  • Hádegissnarl hjá vínbónda u.þ.b. € 22.
  • Spilavíti í Monte Carlo u.þ.b. € 17.
  • Höll furstafjölskyldunnar í Mónakó u.þ.b. € 10.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

3. október | Flug til Mílanó & Lerici við Liguraströndina

Brottför frá Keflavík kl. 8:20. Mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í Mílanó kl. 14:30 að staðartíma. Ekin verður fögur leið til Lerici sem er yndislegur bær á austurhluta ítölsku rivíerunnar við La Spezia flóann. Hann er rómaður fyrir fegurð og ber viðurnefnið Skáldaflóinn. Þar verður gist í fimm nætur á góðu hóteli. Hótelið er í 300 m fjarlægð frá sögulega miðbænum í Lerici og þar er verönd með sjávarútsýni yfir Skáldaflóann.

4. október | Sigling við Cinque Terre ströndina

Þessi dagur er heilt ævintýri því nú verður farið í ótrúlega siglingu úti fyrir brattri Cinque Terre ströndinni, einu stórfenglegasta svæði ítölsku rivíerunnar þar sem litríkum húsunum er tyllt utan í klettana. Siglt verður til bæjanna Porto Venere, Riomaggiore, Manarola, Corniglia, Vernazza og Monterosso. Auðvitað verður stoppað einhvers staðar til að fá sér hádegishressingu og til að kanna líf bæjarbúa í nokkrum bæjum.

5. október | Ferð til Lucca í Toskana & hádegissnarl hjá vínbónda

Í dag heimsækjum við gömlu virkisborgina Lucca í Toscana en á 13. og 14. öld var hún ein valdamesta borg Evrópu. Tilkomumiklir virkisveggir hennar standa enn frá því á miðri 17. öld, vitnisburður um glæsta tíma. Tónskáldið Puccini er fæddur í borginni og hefur fæðingarstaður hans verið gerður að áhugaverðu safni. Við höldum í stutta skoðunarferð um helstu staði og að henni lokinni gefst tími til að kanna borgina á eigin vegum. Á leið aftur á hótel munum við heimsækja vínbónda í bænum Montecarlo í nágrenni Lucca, þar sem boðið verður upp á dæmigert ítalskt snarl og auðvitað fáum við að bragða á framleiðslu bóndans.

Opna allt

6. október | Pisa & Kraftaverkatorgið

Það er alltaf svo yndislegt að koma til borgarinnar Pisa sem er þekktust fyrir skakka turninn á torginu, Piazza dei Miracoli. Bygging turnsins hófst árið 1173 og var þessum frístandandi klukkuturni, sem tilheyrir dómkirkjunni í Pisa, ætlað að standa lóðrétt en eftir byggingu annarrar hæðar hans tóku undirstöður turnsins að síga. Turninn er eitt af þremur mannvirkjum á Campo dei Miracoli eða Kraftaverkatorginu í Pisa. Við höldum í góða skoðunarferð um svæðið en eftir það er tími til að kanna staðinn á eigin vegum og fá sér hressingu. Eftir góðan tíma hér verður ekið til baka á hótelið.

7. október | Gönguferð um Lerici & rólegheit

Rólegheit og slökun eru á dagskrá hjá okkur í dag í bænum Lerici. Upplagt að kanna umhverfið á göngu með fararstjóra en glæstar byggingar og kastalavirki frá veldi Pisa- og Genúabúa prýða borgina. Eftir það verður frjáls tími til að skoða sig um á eigin vegum og jafnvel skreppa á ströndina.

8. október | San Remo við Liguraströndina & blómaströndin

Kveðjum Lerici eftir ljúfa daga og nú heldur sælan áfram því ekið verður til fræga bæjarins San Remo. Hann er einn vinsælasti ferðamannastaður Ligurastrandarinnar við svonefnda blómaströnd en hún dregur nafn sitt af einstakri blómaræktun þar um slóðir. Þar verður gist í fjórar nætur á góðu hóteli í miðbænum, stutt frá baðströnd bæjarins. Á hótelinu er útsýnispallur á þakinu með borðum, stólum og nuddpotti. Einnig er líkamsrækt og heilsulind með sauna og tyrknesku baði.

9. október | Nice & Cannes við Cote d´Azur ströndina

Í dag heimsækjum við dásamlegu borgina Nice við Cote d´Azur í Frakklandi. Það er ekki annað hægt en að hrífast af bæjarstæði hennar við Englaflóann og eins að borginni sjálfri. Nice er í hópi gömlu, grísku borganna en víðsvegar um hana standa glæsilegar byggingar, einskonar minnisvarðar liðins tíma. Hér er alltaf mikið um að vera og borgin bókstaflega iðar af mannlífi allt árið um kring. Eftir góðan tíma og áhugaverða skoðunarferð um Nice verður ekið til glæsiborgarinnar Cannes, sem er hvað þekktust fyrir hina alþjóðlegu kvikmyndahátíð sem haldin er þar ár hvert. Að sjálfsögðu munum við feta í fótspor kvikmyndastjarnanna og ganga á rauða dreglinum að kvikmyndahöllinni. Síðdegis gefst frjáls tími til þess að kanna borgina á eigin vegum, sýna sig og sjá aðra.

10. október | Slökun í San Remo & stutt ganga með fararstjóra

Nú er rólegheitadagur hjá okkur í San Remo sem er líflegur og skemmtilegur bær. Við byrjum á því að kanna líf bæjarins og skoða glæstar byggingar sem prýða bæinn, m.a. Sanremo Casino spilavítið, San Siro dómkirkjuna og rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna svo eitthvað sé nefnt. Eftir það er upplagt að fá sér hressingu, líta inn á kaupmenn bæjarins sem eru fjölmargir eða fá sér göngutúr eftir ströndinni en þar eru margir skemmtilegir veitingastaðir. Einnig er hægt að fá sér sundsprett í Miðjarðarhafinu sem er aðeins nokkrum skrefum frá hótelinu okkar. Kvöldverður á eigin vegum.

11. október | Furstadæmið Mónakó & spilavítin í Monte Carlo

Þennan skemmtilega dag heimsækjum við furstadæmið Mónakó, stundum kallað dvergríkið Mónakó. Við höldum í skoðunarferð um klettaborgina en þar er að finna höll furstafjölskyldunnar og dómkirkjuna þar sem Grace Kelly var borin til grafar. Einnig verður komið við í Monte Carlo hverfinu þar sem glæsileg bygging Grand Casino spilavítisins stendur.

12. október | Heimferð frá Mílanó

Nú er komið að heimferð eftir ljúfa daga. Ekið verður til Mílanó en brottför þaðan er kl. 15:30 og lending í Keflavík kl. 17:45 að staðartíma.

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Marianne Eiríksson

Marianne fæddist 1964 í Schaffhausen í Sviss, við landamæri Þýskalands. Hún er menntaður ferðamálafræðingur en kom til Íslands í fyrsta skipti árið 1985 og dvaldist þá á sveitabæjum í nokkra mánuði. Síðan 1992 hefur Marianne búið á Íslandi með íslenskum eiginmanni sínum. Hún er útskrifuð frá leiðsöguskólanum og starfar m.a. sem leiðsögumaður.
Marianne segist sjálf vera orðin meiri Íslendingur en Svisslendingur en hún talar þýsku, ensku, frönsku, ítölsku og að sjálfsögðu reiprennandi íslensku.
Áhugamál Marianne eru ferðalög, tungumál og hestamennska.

Senda fyrirspurn um ferð

bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790

 

Tengdar ferðir




Póstlisti