Páskar í Dresden & Berlín
1. - 8. apríl 2023 (8 dagar)
Það eru ekki nema rúm 30 ár síðan gaddavírar og múrsteinar skildu að þessa tvo ólíku menningarheima, öðrum megin lýðræðisríki og frjálshyggja, hinum megin strangt lögregluríki. Í þessari áhugaverðu ferð verður ferðast um slóðir þessa fyrrum ríkis kommúnismans, Austur-Þýskalands, þar sem við njótum leiðsagnar Kristínar Jóhannsdóttur en hún bjó sjálf í bæði Vestur- og Austur-Þýskalandi á árunum í kringum fall múrsins og lýsir hún búsetuárum sínum vel í bók sinni, Ekki gleyma mér. Við kynnumst sögulegu borgunum Dresden og Leipzig sem náðu, eftir fall múrsins, á undraverðan hátt fyrri dýrð eftir sprengjuregn bandamanna í lok seinni heimsstyrjaldarinnar árið 1945. Förum í þjóðgarðinn Sächsische Schweiz sem þykir eitt fallegasta landsvæði Þýskalands með stórfenglegt landslag sorfinna kletta með litlum, fallegum þorpum og fornum kastölum allt í kring. Seinni hluta ferðarinnar dveljum við í höfuðborginni Berlín en á leiðinni þangað verður komið við í Dessau, hjarta Bauhaus byggingarlistarinnar. Heimsborgin Berlín hefur upp á ótal margt að bjóða en menning og listir blómstra þar sem aldrei fyrr.