Gardavatn & Feneyjar

Gardavatn hefur verið einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga til margra ára, enda meðal allra fegurstu staða á Ítalíu. Sjálfur Goethe líkti staðnum við himnaríki og skal engan undra. Við hefjum ferðina á því að aka suður á bóginn upp í stórbrotin Alpafjöllin og gistum eina nótt í ljúfa bænum Brixen í Suður-Tíról .Riva del Garda tekur því næst á móti okkur við hið sægræna Gardavatn en bærinn stendur á fallegum stað við vatnið og er einn vinsælasti ferðamannastaður svæðisins. Í ferðinni munum við fara í áhugaverðar skoðunarferðir, yndislega siglingu á Gardavatni til bæjanna Limone og Malcesine, eiga ævintýralegan dag í Feneyjum og heimsækja Veróna, eina elstu borg Norður-Ítalíu. Við höldum til Seefeld í Tíról eftir góða daga við Gardavatn en á leiðinni þangað verður stoppað hjá vínbónda í Rovereto þar sem við snæðum léttan hádegisverð í miðaldakastala. Í Seefeld njótum við náttúrunnar milli hárra og tignarlegra fjalla síðustu daga ferðarinnar. Við heimsækjum Innsbruck, höfuðstað Tíról, og komum við í Mittenwald í Þýskalandi þar sem við skoðum  litlu myndskreyttu húsin en að koma þar er eins og að lenda í miðju ævintýri.

Verð á mann í tvíbýli 369.200 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 53.600 kr.

Innifalið

  • 10 daga ferð.
  • Flug með Icelandair og flugvallarskattar.
  • Gisting í 2ja manna herbergi með baði.
  • Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum.
  • Hádegisverður hjá vínbónda í Rovereto.
  • Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aðgangseyrir inn á söfn, hallir og kirkjur.
  • Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll.
  • Siglingar og vínsmökkun.
  • Strætisvagnaferð inn í Veróna.
  • Hádegisverðir.
  • Þjórfé.

Valfrjálst

  • Sigling í Feneyjum u.þ.b. € 20.
  • Sigling á Gardavatni u.þ.b. € 23.
  • Kláfur frá Malcesine upp á Monte Baldo u.þ.b. € 26.
  • Aðgangur að hringleikahúsinu í Veróna u.þ.b. € 16.
  • Kláfur upp á Rosshütte u.þ.b. € 18.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

21. september | Flug til München & Brixen

Brottför frá Keflavík kl. 7:20. Mæting í Leifsstöð um 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í München kl. 13:05 að staðartíma. Þaðan verður ekið upp í Alpafjöllin í gegnum Brennerskarð til Brixen í Suður-Tíról og gist þar í eina nótt á hóteli.

22. september | Dagur í Brixen & Riva del Garda á Ítalíu

Brixen er ein af perlum Suður-Tíról. Eftir morgunverð verður farið í gönguferð um elsta hluta borgarinnar en hún er höfuðstaður Eisackdalsins og liggur við rætur fjallsins Plose. Í þessum 20.000 manna sögufræga bæ má finna gamlar götur, brýr, kirkjur og söfn. Þar mætast árnar tvær Eisack og Rienz sem ásamt umlykjandi vínekrum og aldingörðum gera Brixen að einstaklega heillandi og fallegum stað. Við kveðjum því næst Brixen eftir góðan tíma og leggjum af stað til Riva del Garda við Gardavatn þar sem við munum gista í fimm nætur.

23. september | Skoðunarferð & frjáls dagur

Dagurinn verður rólegur en að loknum morgunverði förum við fótgangandi í skoðunarferð um bæinn Riva del Garda. Að henni lokinni er frjáls tími til að skoða sig um í þessum snotra bæ, ganga litlar og þröngar götur hans, staldra við í verslunum, rölta undir pálmatrjám með fram ströndinni eða skondra upp að virkinu Bastillione þaðan sem er einstakt útsýni yfir vatnið. Einnig er kjörið að njóta aðstöðunnar á hótelinu, annaðhvort í sundlaugargarðinum eða í heilsulindinni.

Opna allt

24. september | Ævintýralegur dagur í Feneyjum

Fyrir höndum er langur en stórskemmtilegur dagur. Við leggjum snemma af stað og ökum
til Feneyja. Á rölti um borgina, með fram síkjum og yfir brýr, verður á vegi okkar allt það sem gerir Feneyjar að eftirsóttasta ferðamannastað álfunnar. Við Canal Grande gefur að líta einar 200 glæsilegar hallir og við Markúsartorgið stendur Markúsarkirkjan, ein merkilegasta kirkjubygging veraldar, sem byggð er í austrænum stíl og minnir helst á höllina úr ævintýrinu Þúsund og ein nótt. Síðdegis mun hverjum og einum gefast tími til þess að skoða þessa fallegu borg betur, njóta mannlífsins og jafnvel líta inn á söfn. Komið verður aftur á hótel undir kvöld.

25. september | Sigling, Limone & Malcesine

Farið verður í ljúfa siglingu á Gardavatni. Haldið til Limone, eins fallegasta bæjarins við vatnið og þar áð í dágóða stund. Þaðan verður siglt yfir sægrænt Gardavatnið til Malcesine, sem er sögufrægur ferðamannabær við austurströnd vatnsins. Í Malcesine gefum við okkur góðan tíma, fáum okkur hressingu og skoðum okkur um í bænum. Áhugasamir geta farið með kláf upp á Monte Baldo, hæsta fjallið við Gardavatn, en þeir sem kjósa heldur að vera á jafnsléttu geta litið inn í mjög áhugaverðan gamlan kastala sem er að finna í bænum. Frá Malcesine verður siglt til baka til Riva.

26. september | Dagsferð til Veróna

Dagsferð til Veróna, elstu borgar Norður-Ítalíu, er einn hápunktur ferðarinnar. Veróna er borg menningar og lista en frægust er hún sem sögusvið leikrits Shakespeare um Rómeó og Júlíu. Farið verður í skoðunarferð um borgina og staldrað við helstu staði þessarar merku borgar. Þar má nefna þriðja stærsta hringleikahús veraldar, Arena, og Kryddtorgið en þar stendur fjöldi fagurra bygginga og minnisvarða. Miðbær borgarinnar eins og hann leggur sig er á skráður á heimsminjaskrá UNESCO og ekki að ástæðulausu.

27. september | Skómarkaður í Dro, Rovereto & Seefeld

Nú kveðjum við Gardavatn og höldum til Austurríkis. Á leiðinni komum við í forna smábæinn Dro og lítum þar inn á einn stærsta skómarkað Norður-Ítalíu. Þaðan liggur leið okkar í kastala fyrir ofan Rovereto þar sem við fáum stutta leiðsögn um höllina, snæðum léttan hádegisverð að hætti íbúanna í dalnum og aldrei að vita nema við fáum smá smakk
af afurðum vínbænda héraðsins. Áfram verður ekið yfir Brennerskarðið til Seefeld í Austurríki þar sem við gistum næstu þrjár nætur.

28. september | Frjáls dagur í Seefeld

Í dag tökum við það frekar rólega, hefjum daginn á staðgóðum morgunverði og höldum síðan í stutta skoðunarferð um Seefeld, sem er með eftirsóttustu ferðamannabæjum Tíról. Bærinn er umkringdur þverhníptum fjöllum en áður fyrr var hér mikið vatnasvæði og ber nafn bæjarins það með sér. Eftir stutta göngu með fararstjóranum er frjáls tími það sem eftir lifir dags. Hér er margt hægt að gera, fara með hestvagni um bæinn, ganga hringinn í kringum vatnið eftir þægilegri gönguleið eða fara með kláfi upp í Rosshütte sem er í 1.784 m hæð. Þar er að finna gott veitingahús og er upplagt að fá sér kaffi og svo sem eina tertusneið.

29. september | Dagsferð til Mittenwald & Innsbruck

Á dagskránni í dag er heimsókn til bæjarins Mittenwald sem á sér engan líka en þar er að finna ótal lítil myndskreytt hús, dásamlegan bæjarlæk og skemmtilegar verslanir. Bærinn er frægur fyrir smíði strengja- og plokkhljóðfæra og stendur minnisvarði af Matthias Klotz, upphafsmanni fiðlusmíði í Mittenwald, fyrir utan fiðlusafn bæjarins. Við höldum svo áfram til Innsbruck, höfuðstaðar Tíról, sem er umvafinn mikilli fjalladýrð. Innsbruck var ein af borgum Habsborgaranna, einnar valdamestu ættar Evrópu um aldir, og ber miðaldahluti borgarinnar þess greinilega merki. Blómatími Habsborgaranna var á 15. öld undir stjórn Maximilians I en hann lét byggja eitt helsta aðdráttarafl borgarinnar, húsið með gullþakinu, sem stendur við eitt fallegasta torgið í Tíról. Við höldum í stutta skoðunarferð um borgina en að henni lokinni verður hægt að kanna borgina á eigin vegum, líta inn til kaupmanna í Maria-Theresien-Straße eða setjast inn á kaffihús.

30. september | Heimferð frá München

Eftir indæla og skemmtilega ferð verður ekið til München. Brottför þaðan kl. 14:05 og lending í Keflavík kl. 16:00 að staðartíma.

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Marianne Eiríksson

Marianne fæddist 1964 í Schaffhausen í Sviss, við landamæri Þýskalands. Hún er menntaður ferðamálafræðingur en kom til Íslands í fyrsta skipti árið 1985 og dvaldist þá á sveitabæjum í nokkra mánuði. Síðan 1992 hefur Marianne búið á Íslandi með íslenskum eiginmanni sínum. Hún er útskrifuð frá leiðsöguskólanum og starfar m.a. sem leiðsögumaður.
Marianne segist sjálf vera orðin meiri Íslendingur en Svisslendingur en hún talar þýsku, ensku, frönsku, ítölsku og að sjálfsögðu reiprennandi íslensku.
Áhugamál Marianne eru ferðalög, tungumál og hestamennska.

Senda fyrirspurn um ferð

bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790

 

Tengdar ferðir




Póstlisti