Sigling frá Moskvu til Pétursborgar

 

20. ágúst - 1. september 2012     4 SÆTI LAUS! 
Fararstjóri: Pétur Óli Pétursson

 
Spennandi ferð til Rússlands þar sem okkur gefst einstakt tækifæri til að skoða það helsta sem þetta stórbrotna land hefur upp á að bjóða. Við fljúgum til Helsinki og höldum þaðan til Moskvu. Í upphafi ferðar tökum við næturlest frá Helsinki til Moskvu, höfuðborgar Rússlands. Moskvuborg með öllum sínum sjarma mun bjóða okkur velkomin en þar bíður okkar m.a. skoðunarferð um Kreml, Rauða torgið og margt fleira. Síðan tekur við glæsileg sigling þar sem við höldum áleiðis til Pétursborgar, sem er án efa miðstöð menningar og lista og hafa bókmenntir, tónlist og leiklist hennar mikla þýðingu um heim allan. Margir telja borgina eina þá fallegustu í heimi, en miðbær hennar er t.a.m. á heimsminjaskrá UNESCO. Á leið okkar þangað skoðum við ýmsa fallega og sögufræga staði, s.s. Kizhi eyjuna, Yaroslavl, Goritsy, Uglich og Mandrogi. Við skoðum það markverðasta í Pétursborg, s.s. Vetrarhöllina, dómkirkju heilags Ísaks, gosbrunnagarðinn í Peterhoff o.fl. Saga Rússlands er heill heimur ævintýra og um leið og við skoðum landið fáum við að skyggnast inn í þá veröld. 
 

 

 
 
20. ágúst              Flug til Helsinki og næturlest
Brottför frá Keflavík kl. 7.55. Mæting í Leifsstöð um 2 klst. fyrir brottför. Lending í Helsinki kl. 14.20 að staðartíma en flugið tekur rúma þrjá tíma. Farið með næturlest til Moskvu. Í lestinni eru allir farþegar á 1. farrými og í tveggja manna klefum. Þegar líður á morgun mun höfuðborg Rússlands, Moskva, taka á móti okkur í allri sinni dýrð. 
 
21. ágúst              Moskva
Í dag stígum við um borð í fljótaskipið MS Shashkow. Eftir að við höfum komið okkur fyrir í skipinu, fengið okkur hádegisverð og náð staðháttum er frjáls tími til hvíldar og / eða skoðunarferða. Íbúar Moskvuborgar telja um ellefu milljónir manna en á Stór-Moskvusvæðinu búa tæpar fimmtán milljónir, sem gerir borgina að þeirri stærstu í Evrópu. Moskva er miðstöð samgangna í lofti, á landi og á vatnaleiðum. Borgin er líka miðstöð stjórnmála og menningar allra landsmanna. Á leiðinni frá lestarstöðinni til skips skoðum við miðborg Moskvu og helstu kennileiti borgarinnar. Kvöldverður um borð í skipinu.
 
22. ágúst              Moskva
Eftir morgunverð höldum við áfram skoðunarferð okkar um Moskvu. Við skoðum þá St. Basil dómkirkjuna, Rauða torgið og Kreml. Til gamans förum við einnig í verslunarmiðstöð, enda má glögglega sjá lífsstíl fólksins í borginni með því að kíkja þar við. Komum aftur til skips um kvöldið. Boðið er upp á fleiri skoðunarferðir og leikhúsferðir af hálfu útgerðar skipsins, s.s. Moskva að nóttu, skoðunarferð í hina frægu neðanjarðarlestir Moskvuborgar, þjóðdansasýning o.fl. 
 
23. ágúst              Sigling hefst
Nú kveðjum hina fögru Moskvuborg. Ferð okkar hefst áleiðis til Pétursborgar, en við munum gista í skipinu í samtals í 11 nætur. Um borð eða á vegum skipsins er fullt fæði innifalið, þ.e.a.s. morgunverður, hádegisverður og kvöldverður það sem eftir er ferðarinnar til Pétursborgar.
 
24. ágúst              Uglich
Í dag komum við til bæjarins Uglich en þar búa um 40 þúsund manns. Við skoðum virki bæjarins og hlustum á fallegan kirkjusöng. Við kynnumst sögunni af yngsta syni Ívans grimma, Dimitry prins sem var myrtur af óvinum keisarans í þessum bæ. Saga Rússlands er mjög áhugaverð og þennan dag sem og aðra daga í ferðinni munum við fá nasasjón af þeirri stórbrotnu sögu.
 
25. ágúst              Yaroslavl
Þennan dag siglum við á Volgu, mesta stórfljóti Rússlands til borgarinnar Yaroslavl. Borgin er ein af perlum Rússlands og hér munum við gefa okkur góðan tíma til að skoða það helsta. Borgin var stofnuð árið 1010 og býr yfir afar fallegum kirkjum frá 17. öld. Marga háskóla er að finna í borginni. 
 
26. ágúst              Goritsy
Þennan dag komum við til bæjarins Goritsy og keyrum til borgarinnar Kirillov en þar búa um 8.000 manns. Borgin var stofnuð á 14. öld og hefur því að geyma mikla sögu. Hér er margt forvitnilegt að sjá, m.a. klaustrið St. Cyril sem liggur við Siverkoe vatnið og íkonasafn. Við stöldrum hér við í þrjár klukkustundir.
 
27. ágúst              Kizhi eyjan
Að morgni þessa dags er komið til hinnar sögufrægu eyju í Onegavatni sem heitir Kizhi og er ákaflega vinsæll ferðamannastaður. Eyjan er 7 km löng, 0,5 km á breidd og er umkringd 5000 öðrum eyjum sem eru af öllum stærðum og gerðum. Við skoðum skemmtilegt útisafn þar sem við kynnumst rússneskri byggingarlist, sjáum kirkju heilags Lazarusar og annað áhugavert. Við dveljum í nokkrar klukkustundir á eyjunni og siglum því næst áleiðis til Mandrogi.
 
28. ágúst              Fráls tími í Mandrogi
Komið er til bæjarins Mandrogi sem er einnig mjög vinsæll ferðamannastaður á vatnaleiðinni milli Pétursborgar og Moskvu. Í Mandrogi gefst frjáls tími fram eftir degi og hægt að skoða Vodkasafnið, forna rússneska byggingarlist, lítinn dýragarð og fleira áhugavert. 
 
29. ágúst              Pétursborg
Nú erum við komin til hinnar stórfenglegu Pétursborgar. Hér dveljum við til 1. september. Eftir morgunverð verður haldið í skoðunarferð um borgina og skoðum m.a. virki heilags Péturs og Páls, en þar eru allir meðlimir Rómanov fjölskyldunnar grafnir. Eiginlega má rekja upphaf borgarinnar til virkisins sem Pétur mikli lét reisa. Eftir léttan hádegisverð skoðum við okkur um í miðbænum en síðan verður haldið tilbaka í skipið.
 
30. ágúst              Pétursborg - Hermitage
Vetrarhöllin var byggð á árunum 1754–1762 og var heimili rússnesku keisaranna. Höllin hýsir í dag Hermitage safnið, sem er annað mesta listaverkasafn í heimi á eftir Louvre safninu í París, en Hermitage geymir um 3 milljónir hluta. Við förum að sjálfsögðu í safnið, sem státar m.a. af verkum eftir Rembrandt, Picasso og marga fleiri þekkta listamenn. Hér er því af nógu að taka. 
 
31. ágúst              Peterhoff og minnismerkið um 900 daga umsátrið
Á lokadegi okkar í Rússlandi förum við í skoðunarferð til Peterhoff. Þar er hinn frægi og einstaklega fallegi gosbrunnagarður sem oft hefur verið borinn saman við garðana við Versali. Höllin Peterhoff var ein af uppáhaldssumardvalarstöðum keisaranna og garðarnir hreint ólýsanlegir. Á annað hundrað gosbrunnastyttur eru í görðunum. Hér er því margt að sjá og upplagt að rölta um og njóta þess að vera til. Við skoðum einnig minnismerkið um 900 daga umsátrið um Leníngrad.
 
1. september              Pétursborg – Helsinki.
Snemma þennan dag kveðjum við hina fallegu Pétursborg og Rússland. Ekið er til Helsinki fyrir flug til Íslands sem fer kl. 15.30. Lending í Keflavík kl. 15.55.
 
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn. 
 
 
 

 
 
 
Verð: 409.900 kr á mann í tvíbýli.                  Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 54.200 kr.
 
Athugið að ekki er hægt að fá einbýli í lestinni frá Helsinki til Moskvu. 
 
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Gisting í tveggja manna herbergjum / klefum með baði og morgunverði
• Allar skoðunarferðir samkvæmt ferðalýsingu
• Sigling með fljótaskipi frá Moskvu til Pétursborgar
• Lestarferð frá Helsinki til Moskvu
• Rútuferð frá Pétursborg til Helsinki
• 11 hádegisverðir
• 11 kvöldverðir
• Aðgangseyrir að öllum söfnum sem nefnd eru í ferðalýsingu
• Staðarleiðsögn
• Íslensk fararstjórn
• Undirbúningsfundur með fararstjóra fyrir ferð
• Vegabréfsáritun
 
Ekki innifalið:
Þjórfé fyrir áhöfn skipsins, staðarleiðsögumenn og bílstjórar.
Aðrar máltíðir en þær sem nefndar eru undir innifalið. 
 
 

Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð