13. október Keflavík – New York – Lima
Flug með Icelandair frá Keflavík kl. 17.00. Mæting í Leifsstöð um 2 klst fyrir brottför. Lending í New York kl. 19.00 að staðartíma, en flugið tekur um 6 klst. Flogið áfram til Lima þar sem lent er að morgni 14. október og farið beint á hótel til innritunar.
14. október Dagur í Lima (M/K)
Lima, sem er höfuðborg Perú, liggur miðsvæðis á strönd Perú. Borgin er yfirleitt kölluð borg konunganna, þó konungur hafi í raun aldrei ríkt þar í raun. Þetta undirstrikar hlutverk borgarinnar á nýlendutímanum þegar Spánverjar réðu lögum og lofum. Í Lima er að finna skemmtilega blöndu af örvandi lífsþorsta nútímans og fornum listrænum gersemum. Nýtískuleg íbúðahverfi í praktískum byggingarstíl eru rétt við gamlar kirkjur og villur í nýlendustíl, sem býr til hrópandi ósamræmi í umhverfinu – en þetta er Lima. Eftir hádegi er farið í skoðunarferð, sem hefst á Plaza de Armas þar sem við sjáum m.a. stjórnarhöllina og dómkirkjuna. Eftir heimsókn í gamla bæinn er haldið áfram til hinna fallegu íbúðahverfa Miraflores og San Isidro. Við förum m.a. á Larco Herrera safnið þar sem hægt er að fá góða yfirsýn yfir 3.000 ára sögu landsins. Gist í Lima í eina nótt.
15. október Lima - Arequipa (M / K)
Eftir morgunverð er haldið út á flugvöll og flogið með Lan Peru til Arequipa sem stendur við rætur Misti eldfjallsins. Borgin er nær eingöngu byggð úr hvítu „Sillar“ eldfjallagrjóti sem þarna er yfirgnæfandi. Hún er líka stundum nefnd hvíta borgin og er þekkt fyrir sérlega fallegar villur og kirkjur í þessum dæmigerða byggingarstíl. Förum í um 4 klst. bæjarferð um Arequipa sem minnir við fyrstu sýn á spænska borg, en besta dæmið er klaustrið „Santa Catalina“ frá 16.öld, sem var eingöngu byggt úr þessu hvíta „Sillar“ eldfjallagrjóti. Hefjum skoðunarferðina á því að heimsækja gömlu borgarhlutana San Lazaro og Carmen Alto fyrir utan miðbæinn, þar sem m.a. er að finna markverðar nýlendukirkjur með listrænum skrauthliðum, eins og Yanahuara kirkjuna með stórkostlegu útsýni frá Yanahuara Belvedere torginu. Í hjarta borgarinnar er hið fjölfarna torg Plaza de Armas, sem er umlukið bogagöngum á þrjá vegu, en á hinn fjórða er dómkirkjan, sem hefur tvo turna, beggja vegna kirkjuskipsins. Á einu horni torgsins stendur Jesúítakirkjan La Compania með sínu skrautlega aðalhliði og hana skoðum við. Hinir þykku múrar og hvelfing hennar hafa staðist alla jarðskjálfta ósködduð og innréttingarnar, s.s. gyllta aðalaltarið hafa líka varðveist. Skoðum einnig kirkju og torg Heilags Frans. Gist í Arequipa.
16. október Arequipa - Puno (M / H)
Í dag hefst ferð okkar upp í Andesfjöllin. Við ökum að hluta til yfir hrjóstrugar eyðimerkurauðnir þar sem sjá má hjarðir af lama- og alpökudýrum, framhjá eldfjöllum og sveitabæjum. Landslagið á leiðinni er heillandi og nú fáum við innsýn í hvernig fólk sem býr í fjöllunum lifir. Puno er stærsta borgin við Titicaca-vatnið og er í 3.850 m hæð. Gist í Puno í 2 nætur.
17. október Uros og Sillustani (M / K)
Snemma morguns er farið í skemmtilega bátsferð til Uros, hinna syndandi sefeyja í norðvesturhorni Titicaca-vatnsins. Á eyjunum búa ca. 300 fátækir indíánar af Uros-ættbálkinum. Eftir ánægjulega bátsferð er hádegishlé á hóteli áður en farið er í skoðunarferð til Sillustani við Lago Umayo, þar sem við skoðum sérstaklega Chullpas (grafhýsi). Auk grafhýsanna er þarna einnig sérstakur fórnarstaður, hinn svokallaði Sólarhringur, sem er umgirtur kransi úr tilhöggnum steinum.
18. október Puno – Copacabana – La Paz (M / H / K)
Við kveðjum Puno og ökum meðfram hinu risastóra Titicaca-vatni til hins heilaga þorps Copacabana í Bólivíu. Þar förum við í siglingu á vatninu til Sólareyjarinnar en sagan segir að eyjan sé vagga menningar Inkanna. Hér
skoðum við Inkarústirnar Pilkokaina en þaðan er einnig stórfenglegt útsýni yfir á Cordillera Real. Siglt áfram til Chua þaðan sem ekið verður til La Paz þar sem gist er í þrjár nætur.
19. október La Paz – Tiwanaku – La Paz (M / H / K)
Eftir morgunverð höldum ökum við til hinnar fornu borgar Tiwanaku sem er að finna við suð-austur enda Titikaka vatns. Við byrjum á því að skoða minjar Tiwanaku sem var hin trúarlega og stjórnarlega miðstöð fornkólumbísku menningarinnar 1500 f.Kr. til 1200 e.Kr. Á blómatíma menningarinnar náði vald og áhrif Tiwanaku frá Kyrrahafsströndinni, yfir Atacamasvæði Chile og langt inn í núverandi Argentínu. Þekktustu minjar Tiwanaku er hið risastóra Sólarhlið sem er tilhöggvið úr einum risastórum steini úr Andesfjöllunum sem vegur 10 tonn. Höfum nestispakka með okkur í dag og snæðum hádegisverð á vel völdum stað.
20. október Dagur í La Paz (M / K)
La Paz liggur í 4.000 m hæð og er þar með hæsta höfuðborg í heimi. Borgin stendur við rætur hins snævi þakta fjalls Illimani sem gnæfir yfir umhverfinu. Það er líka hægt að segja um La Paz að engin önnur borg sýni menningu indíánanna á eins sterkan hátt. Hér er líka auðvelt að lifa sig inn í fornar sögur og goðsagnir fyrri tíma. Við förum í bæjarferð þar sem við göngum m.a. um „nornamarkaðinn“ svokallaða. Keyrum til útsýnisstaðarins Killi, en þaðan er ægifagurt útsýni fyrir borgina umkringda fjöllum með snæviþöktum tindum. Eftir hádegisverð er haldið til bæjarhlutanna Obrajes og Calacoto þar við
sjáum m.a. markaðshverfi þar sem er að finna litlar verslanir sem bjóða vörur úr apalca ull. Í lok dags er stórfenglegt að sjá sólina setjast í Tungldalnum.
21. október La Paz – Cuzco (M / K)
Eftir morgunverð fljúgum við til Inkaborgarinnar Cuzco. Innritum okkur á hótel þar en eigum síðan það sem eftir lifir dags frjálsan til að skoða okkur um í Cuzco. Gist í 2 nætur í Cuzco.
22. október Cuzco - Sacsayhuaman (M / K)
Í dag verður farið í hálfs dags skoðunarferð um Cuzco, fyrrum höfuðborg Inkaríkisins. Dómkirkjan á Plaza de Armas er skoðuð og farið er að mikilvægasta stað Inkaríkisins, torgi sólardýrkunarinnar. Þar sem í dag stendur St. Domingo-kirkjan var áður Koricancha eða sólhofið, skrautlegasta byggingin í Cuzco á sínum tíma. Næst er San Blas-kirkjan heimsótt og síðan er farið til rústanna af Sacsayhuaman, sem eru þekktar fyrir hinn risavaxna steinarkitektúr.
23. október Urubamba – Pisac og Ollantaytambo (M / H)
Við kveðjum Cuzco í bili og höldum til Pisac þar sem við förum m.a. á einn þekktasta markað Suður-Ameríku. Snæðum einnig góðan hádegisverð. Höldum leið okkar áfram í gegnum hinn „Helga dal Inkanna“ til litla þorpsins Ollantaytambo, eina þorps Inkamenningarinnar sem enn er í byggð. Fyrir ofan Ollantaytambo gnæfa rústir kastala, þorpið er á mörgum pöllum og þar er merkilegt áveitukerfi. Gistum í eina nótt í Yucay.
24. október Machu Picchu (M / K)
Nú er komið að því sem allir Perúfarar verða að sjá, Machu Picchu. Machu Picchu er á stórkostlegum fjallasöðli hátt yfir Rio Urubamba-gilinu. Hvöss strýta Huayna Picchu gnæfir yfir borginni og allt er umlukið háum fjallgarði, sem oft er hulinn þoku. Þessi heils dags ferð hefst með ca. 3ja klst. lestarferð gegnum Urubamba-dalinn. Svo er farið með rútu á stað þar sem við blasir næsta ótrúleg sjón: Machu Picchu, Inkaborgin þar sem eitt sinn bjuggu 15.000 íbúar. Þessi týnda Inkaborg, bókstaflega grafin í skógarkjarr, fannst ekki aftur fyrr en árið 1911. Farið verður í 2ja klst. skoðunarferð um rústirnar. Gistum í eina nótt í Aguas Calientes sem er þorpið við rætur Machu Picchu.
25. október Machu Picchu – Urubamba - Cuzco (M / H)
Um morguninn gefst enn eitt tækifæri til að virða fyrir sér uppgröftinn af Machu Picchu en þá án leiðsagnar (aðgangseyrir og rútuferð innifalið). Einnig er t.d. hægt að skoða hið nýopnaða Machu Picchu safn. Um eftirmiðdaginn er síðan haldið með rútu og lest gegnum Urubamba-dalinn til Ollantaytambo og áfram til Cuzco. Gist í Cuzco í eina nótt.
26. október Cuzco – Lima – New York (M)
Eftir morgunverð er haldið út á flugvöll og flogið til Lima. Kveðjum Perú og fljúgum í næturflugi til New York.
27. október Frjáls dagur í New York 
Lendum í New York um morguninn og höldum beint á hótel þar sem við setjum farangurinn okkar í geymslu og eigum síðan frjálsan tíma í borginni. Hægt verður að fá herbergin þegar að líður á daginn og er þá kærkomið að leggja sig. Upplagt væri fyrir hópinn að fara saman út að borða um kvöldið.
28. október New York – Keflavík ( M )
Frjáls tími í New York fram eftir degi. Seinnipartinn er síðan farið með rútu út á flugvöll og flogið heim k. 21.00.
29. október Lending í Keflavík
Lending er í Keflavík kl. 06.45 að staðartíma.
Verð: 698.400 kr. á mann í tvíbýli. Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 128.500 kr.
Innifalið:
• Flug með Icelandair Keflavík – New York - Keflavík
• Áætlunarflug á almennu farrými New York – Lima – New York
• Flugvallarskattar fyrir alþjóðlegt flug
• Innanlandsflug: Lima – Arequipa, La Paz – Cuzco, Cuzco - Lima
• Almennir flugskattar fyrir innanlandsflug (sjá upplýsingar um komu- og brottfararskatt undir ekki innifalið sem verður að greiðast af farþega í reiðufé á staðnum)
• Allar rútuferðir samkvæmt ferðalýsingu
• Bátsferðir á Titicaca vatni samkvæmt ferðalýsingu
• Lestarferðir í Urubamba dalnum samkvæmt ferðalýsingu
• Skoðunarferðir og aðgangseyrir samkvæmt ferðalýsingu
• Gisting á góðum meðalklassahótelum í Perú og Bólivíu
• Máltíðir skv. ferðalýsingu. (M = morgunv. H = hádegisv. K = kvöldv.)
• Enskumælandi staðarleiðsögn í Perú og Bólivíu
• Gisting í eina nótt í New York með morgunverði
• Ferðir til og frá flugvelli í New York
• Undirbúningsfundur með fararstjóra fyrir ferð
• Íslensk fararstjórn
Ekki innifalið:
• Máltíðir og drykkir annað en það sem tilgreint er í ferðalýsingu
• Komuskattur í Bólivíu, ca. $ 25
• Brottfararskattur í Perú, ca. $ 31
• ESTA heimild til Bandaríkjanna ca. $ 14
• Ferða- og forfallatryggingar