Októberfest í München

 

2. – 6. október 2012    
Fararstjóri: Marianne Eiríksson

 
Á hverju ári frá lok september og fram í október klæðist München hátíðarbúningi og býður til stærstu bjórhátíðar í heimi. Hátíðin á sér langa hefð og hefur verið haldin frá árinu 1810, þó með nokkrum hléum. Fyrsta hátíðin var í tilefni brúðkaups þeirra Ludwigs krónprins og Therese prinsessu, 17. október 1810. Þá var efnt til kappreiða á stóru túni rétt fyrir utan München og eftir þetta var túnið nefnt Theresienwiese. Til að
gleðja almenning ákvað bæverska konungshirðin að endurtaka kappreiðarnar á Theresienwiese á sama stað og sama tíma ári síðar. Þar með skapaðist hefðin fyrir Októberfest. Ferð okkar hefst á flugi til höfuðborgar Bæjaralands, München, þar sem ætlunin er að kynnast töfrum borgarinnar, skemmta sér á Októberfest og kynnast bjórgerð. Gist verður á vel staðsettu hóteli í München og gist þar í 4 nætur. Boðið verður uppá skoðunarferð um München og farið verður í heimsókn til Benediktklaustursins Andechs þar sem löng hefð er fyrir bjórgerð. Þar verður farið í skoðunarferð um brugghús klaustursins og bjórgerð eldri og nýrri tíma kynnt. Nægur tími verður líka til að versla og gleðjast á Októberfest í góðra vina hópi.
 
 

 

 

 
2. október                    Flug til München
Brottför frá Keflavík kl. 7.20. Mæting í Leifsstöð um 2 klst. fyrir brottför. Lending í München kl. 13.05 að staðartíma (+ 2 klst). Ekið frá flugvelli á hótel í München.
 
3. október                        Bæjarferð í München – Heimsókn í klausturbrugghús
Eftir morgunverð verður farið í skoðunarferð um borgina en í henni er margt áhugavert að sjá. Helsta kennileiti borgarinnar er gotneska dómkirkjan með laukturnunum tveimur, Marienkirche. Ráðhús borgarinnar sem er staðsett á torginu Marienplatz í hjarta München er ægifagurt og hljómar klukknaspil úr turninum 2 -3 sinnum á dag. Kirkjan St. Peter, eða „Alter Peter“, eins og borgarbúar kalla hana, er ákjósanlegur útsýnisstaður en sá sem kemst upp allar 306 tröppurnar verður ekki svikinn af útsýninu yfir miðbæ München. Eftir hádegishlé í miðbænum verður ekið til klaustursins Kloster Andechs sem er í um 45 km fjarlægð frá München. Bjórgerð í klaustrum hefur verið stunduð frá 9. öld og förum við í skoðunarferð um brugghúsið í Kloster Andechs þar sem við kynnumst sögu bjórgerðar þar. Brugghúsið tilheyrir Benedikt munkunum í Sankt Bonifaz klaustrinu í München og Andechs klaustrinu og gegnir mikilvægu hlutverki í rekstri þeirra beggja. Eftir skoðunarferðina er upplagt að fá sér bita á veitingastað klaustursins og smakka á klaustursbjórnum. Við ökum síðan aftur til München.
 
4. október                      München - Októberfest
Í dag er frjáls dagur í München. Fararstjórinn mun bjóða þeim sem vilja upp á rölt á sjálfa Októberfest hátíðina og mun að sjálfsögðu fræða gesti um sögu þessa merkilega atburðar. Búið verður að taka frá pláss fyrir hópinn í einu af hinum risastóru bjórtjöldum, svo hægt verði að njóta hátíðarinnar sem best. Allir þeir sem ætla á Októberfest þurfa að gera ráð fyrir miklum fólksfjölda, svo það er gott að hafa upplýsingar um heimilisfang hótelsins í vasanum og gæta vel að verðmætum. Skemmtum okkur á hátíðinni og síðan heldur hver og einn heim á hótel þegar að hentar.
 
5. október                      München – Októberfest
Frjáls tími til að njóta þess að vera í München og skemmta sér á Októberfest.
 
6. október                    Heimferð        
Eftir skemmtilega ferð verður ekið með rútu út á flugvöll og flogið heim frá München kl. 14.05. Lending í Keflavík kl. 16.00 að staðartíma. 
 
Gist verður á Hótel Ibis München City:
Ibis München City Hotel er huggulegt hótel sem er staðsett nálægt miðbæ München og var hótelið allt endurnýjað árið 2011. Á hótelinu eru 202 nýtískuleg herbergi sem eru öll með sturtu, hárblásara, síma, útvarpi og gervihnattasjónvarpi. Alls staðar á hótelinu er aðgangur að interneti. Á hótelinu er bar sem er opinn allan sólarhringinn.
 

   
 
 


 
 
 
Verð: 168.200 kr. á mann í tvíbýli.    
Aukagjald fyrir einbýli er 63.580 kr. 
 
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
•    Flug með Icelandair til München og flugvallaskattar
•    Ferðir milli flugvallar og hótels
•    Gisting í 2ja manna herbergi með baði á miðbæjarhóteli
•    Morgunverður
•    Bæjarferð í München og heimsókn í Benediktklaustrið Andechs
•    Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Hádegis- og kvöldverðir. Forfalla- og ferðatryggingar.


 
 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 
 
 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð