30. september Flug til Beirút
Flug með Icelandair frá Keflavík kl. 07.40. Mæting í Leifsstöð 2 klst fyrir brottför. Lending í London kl. 11.45 að staðartíma (+1 klst). Seinna um daginn eða kl. 16.05 tekur við flug áfram til Beirút með British Midland. Lending í Beirút kl. 22.55 að staðartíma ( +3 klst) og farið beint á afar fallegt hótel skammt frá „Ægissíðunni“ þar sem gist er í 2 nætur.
1. október Jeita Grotto dropasteinshellarnir – flóttamannabúðirEftir morgunverð

er haldið í Jeita Grotto dropasteinshellana norður af Beirút. Jeita hellarnir eru 9 km langir, ljósir sandsteinshellar. Neðri hellirinn fannst um 1836, en efri hellirinn ekki fyrr en 1958 og þar má sjá einn stærsta dropastein í heimi. Einnig heimsækjum við Shabra og Shatilla flóttamannabúðirnar þar sem fjöldamorðin á Líbönum og Palestínumönnum voru framin 16. til 18. september 1982. Keyrt um Beirút og skoðum m.a. armenska hverfið.
2. október Khalil Gibran og Tripoli Í dag er stefnan tekin í norður og fallegur sedrusviðarskógur skoðaður. Líbanon er frægt fyrir þessa trjátegund. Að því loknu er komið við í sérstæðu safni um Khalil Gibran (1883-1931) en hann var þekktur spekingur, listamaður og rithöfundur í Líbanon og skrifaði m.a. Spámanninn.
Seinnipartinn er haldið til borgarinnar Tripoli sem er í norðvesturhluta Líbanons en þar skoðum við m.a. skemmtilegan markað og fagrar byggingar. Gistum eina nótt á hóteli í fallegri og ljúfri vík skammt frá Tripoli.
3. október BeirútEftir morgunverð er haldið aftur til Beirút. Farið á þjóðminjasafnið. Seinnipartinn gefst frjáls tími til að skoða sig um í höfuðborg Líbanons en borgin var gjarnan kölluð „París Mið- Austurlanda“ fyrir borgarastríðið 1975-1990 vegna þess hve andrúmsloftið þar var alþjóðlegt og frjálslegt. Borgin er ævaforn og eru elstu heimildir til um hana frá 15. öld. f. Krist. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í borginni og í ár var Beirút valin númer eitt af stöðum til að heimsækja af New York Times. Það er kannski ástæðan fyrir því að eitt stærsta og dýrasta hótel í heimi á nú að rísa við smábátahöfnina í borginni í staðinn fyrir í Dubai og er því líst sem 10 stjörnu hóteli. Gistum næstu tvær nætur í Beirút.
4. október Sídon
Í dag verður farin dagsferð suður til Sídon. Sídon er þriðja stærsta borgin í Líbanon og stendur við Miðjarðarhafið. Sídon var mikilvægust og hugsanlega elsta borg Fönikumanna en síðar lögðu Grikkir og Rómverjar borgina undir sig. Seinnipartinn er haldið aftur til Beirút.
5. október Byblos og Beqaa dalurinnVið byrjum daginn á að skoða Byblos þar sem Fönikumenn sátu til forna. Talið er að Byblos hafi byggst um 5000 f. Krist og er talin ein elsta samfellda borgarbyggð veraldar þótt ýmsar borgir í þessum heimshluta keppi um þann titil. Höldum aftur til Beirút og þaðan er stefnan tekin á Bekaa-dalinn en hann er mjög gróðursæll og eru þar m.a. þekktustu vínekrur Líbanons. Gistum á 5 stjörnu hóteli í eina nótt.
6. október SýrlandÍ dag skoðum við Baalbek, einstakan og einn frægasta fornminjastað í Líbanon. Grikkir og Rómverjar kölluðu borgina „borg sólarinnar“ og þar skoðum við sólarhofið með sínum 58 súlum sem er eina eftirstandandi hof hins rómverska guðs Júpíters. Keyrt að landamærum Sýrlands en þar kveðjum við líbanska leiðsögumanninn okkar og hittum þann sýrlenska. Höldum ferðinni áfram til höfuðborgarinnar Damaskus sem er talin ein elsta borg í heimi sem hefur verið í stöðugri ábúð frá upphafi. Gistum næstu þrjár nætur í Damaskus.
7. október Damaskus
Við heimsækjum handverksmarkað sem er í grennd við hótelið og keyrum svo upp á Kassioun-fjall þar sem er stórkostlegt útsýni yfir Damaskus. Förum í skoðunarferð um gamla borgarhluta Damaskus, skoðum Ananíaskirkjuna og Omijad-moskuna sem er ein helsta moska múslimaheimsins. Í Damaskus eru rúmlega 200 moskur en aðeins 70 þeirra eru í notkun í dag. Endum daginn á að kíkja á markað og prúttum þar hressilega.
8. október Þorpið Maalula
Í dag verður farin hálfs dags ferð til Maalula sem er sérstætt þorp í fjöllunum norður af Damaskus en íbúar þorpsins tala enn tungumál Jesú Krists, arameisku. Höldum aftur til Damaskus og seinnipartinn er frjáls tími.
9. október PalmyraByrjum daginn á að stefna inn í austureyðimörkina til Palmyra se m er frægasti sögu- og fornminjastaður Sýrlands. Þar sjáum við verðmæta dýrgripi, frægar byggingar, styttur og aldagömul minnismerki, en mörg konungs- og keisaradæmi stóðu í Palmyra þó frægustu minjarnar séu frá tímum Rómverja. Komum einnig við í Bagdad Café sem er sérstæður staður í miðri eyðimörkinni. Um kvöldið verður farið upp á fjallið fyrir ofan Palmyru til að upplifa einstakt sólarlag. Gist og borðað á indælishóteli rétt við fornminjarnar.
10. október Palmyra og DamaskusSkoðum okkur um í Palmyra fram eftir degi og keyrum svo aftur til Damaskus. Gist verður næstu fjórar nætur á góðu hóteli í Damaskus.
11. október Frjáls dagur í Damaskus
Frjáls dagur í Damaskus og fararstjóri verður innan seilingar. Upplagt að fara á markað eða skella sér í notalegt tyrkneskt bað eða hvaðeina sem fólk hefur áhuga á.
12. október Crac des Chevaliers
Í dag verður farin heils dags ferð til Crac des Chevaliers sem er einn frægasti og tignarlegasti kastalinn frá tímum krossfaranna. Á kastalanum eru 13 turnar og þegar inn er komið taka við mikilfenglegar vistarverur, hesthús, baðhús ofl. Tekist hefur að varðveita kastalann að mestu leyti í upprunalegri mynd. Bygging kastalans tók um hundrað ár en hafist var handa að byggja hann um 1150 og bjuggu allt að fjögur þúsund manns í kastalanum á uppgangstímum krossfaranna.
13. október Þjóðminjasafnið og frjáls dagurFyrir hádegi skoðum við þjóðminjasafnið í Damaskus. Frjáls tími það sem eftir er dagsins. Um kvöldið verður farið á hakavati sem er ævagömul arabísk sögustund og horfum á Dervisj-dansa sem eru sérstakir trúardansar. Borðaður eðal matur á Omijad veitingahúsinu.
14. október Heimferð
Eftir ævintýralega ferð er komið að heimferð. Haldið snemma út á flugvöll, flogið til London kl. 10:25 með British Midland og lent þar kl. 14:00 að staðartíma. Síðan er flogið áfram heim með Icelandair kl. 21.10 og lending í Keflavík kl. 23.10.
Sjá allar upplýsingar um verð og innifalið á næsta flipa hér fyrir ofan.