14. – 28. október 2012
Fararstjóri: Jónína Guðmundsdóttir
Egyptaland hefur að geyma marga leyndardóma úr fortíðinni. Í
þessari ferð er flogið til Kaíró í Egyptalandi og eftir að hafa skoðað borgina og heimsótt Egypska safnið er flogið áfram til Lúxor. Þar er farið um borð í fljótaskip og siglt næstu daga eftir fljótinu Níl. Á hverjum degi er farið í skoðunarferðir út frá skipinu og eru þær ekki af verri endanum, þar má nefna Konungadalinn með öllum þeim fornminjum sem þar hafa fundist, Hórusarhofið, hof Hatsepsutar, Abu Simbel hofin, Kom Ombo, Kitchener eyju, Philae hofið og margt fleira. Siglt er aftur til Lúxor og eftir að hafa skoðað það markverðasta þar s.s. Lúxor og Karnak hofin, gefst tími til að slappa aðeins af og kynnast lífinu í borginni, fara á ljósasýningu við Karnak hofin áður en flogið er aftur til Kaíró og haldið með rútu til hafnarborgarinnar Alexandríu sem dregur nafn sitt af Alexander mikla. Eftir skoðunarferð, m.a. í Bókasafnið, katakomburnar,rómverska hringleikahúsið, Pompey súluna og Quait virkið er haldið aftur til Kaíró þar sem pýramídarnir við Giza verða að sjálfsögðu skoðaðir ásamt Sfinxinum. Farið á Khan El Khalili basarinn áður en haldið er heim á leið.