Fimmtudagur Flug til Frankfurt
Brottför frá Keflavík kl. 07.35 og lending í Frankfurt kl. 12.00 að staðartíma. Rútan flytur okkur sem leið liggur til Wiesbaden (ca. 30 km) sem er einstaklega falleg borg með merka sögu og fallegar byggingar. Eftir komuna til Wiesbaden er upplagt að rölta á jólamarkaðinn í bænum. Gist verður á snyrtilegu hóteli sem er staðsett við aðal verslunargötuna.
Föstudagur Dagsferð til Rüdesheim 
Nú verður ekið til Rüdesheim sem er einn vinsælasti ferðamannabærinn við Rín. Rüdesheim er þekkt fyrir sín gömlu og fallegu bindiverkshús og skemmtilegar þröngar götur (Drosselgasse) sem iða af mannlífi. Bærinn verður kominn í sannkallaðan jólabúning með „Jólamarkaði þjóðanna“, þar sem gaman er að skoða handgerða muni frá 12 mismunandi þjóðum eða fá sér ilmandi heitt „Glühwein“. Einnig er hægt að fara í stutta ferð með kláfi upp vínhæðirnar sem liggja fyrir ofan bæinn, en þaðan er fallegt útsýni yfir Rínardalinn.
Laugardagur Frjáls dagur í Wiesbaden
Í dag er frjáls dagur í Wiesbaden. Fararstjórinn mun bjóða upp á bæjarrölt og leiðsögn fyrir hádegi fyrir þá sem vilja en síðan verður frjáls tími til að ganga um götur bæjarins. Gott úrval veitingastaða og kaffihúsa er í bænum og ekki má gleyma jólamarkaðnum sem teygir sig frá ráðhústorginu inn í litlu hliðargöturnar með úrvali af gjafavöru og góðgæti.
Sunnudagur Heimferð
Eftir morgunverð er farið með rútu út á flugvöll og síðan er flug frá Frankfurt kl. 13.40. Lent í Keflavík kl. 16.15.
Gist verður á Ibis hotelinu í Wiesbaden
Ibis Wiesbaden City hótelið er staðsett í miðbæ Wiesbaden, alveg við göngugötuna. Fjöldi veitingastaða og verslana er í nágrenninu og ekki má gleyma jólamarkaðinum.
Á hótelinu sem er tveggja stjörnu eru 131 nýtískuleg herbergi með baði, sjónvarpi, síma og loftkælingu. Morgunverðarsalurinn er opinn frá kl. 4.00 – 12.00, en móttakan ásamt hótelbar þar sem hægt er að panta létta rétti og drykki er opin allan sólarhringinn. Þráðlaust internet er á öllum herbergjum og í móttökunni.
Sjá allar upplýsingar um verð og innifalið á næsta flipa hér fyrir ofan.