1. desember Flug til München – Rosenheim
Brottför frá Keflavík kl. 7.20. Mæting í Leifsstöð um 2 klst. fyrir brottför. Lending í München kl. 12.05 að staðartíma (+ 1 klst. tímamismunur). Byrjum á því að fara inn í München og fá okkur hressingu og líta á mannlíf borgarbúa. Þaðan verður ekið til Rosenheim þar sem áin Inn og Mangfall mætast, ein af perlum Inndalsins með suðrænum blæ og fjallafegurð, en borgin á eflaust eftir að koma flestum á óvart. Upplagt að líta á jólamarkað borgarinnar sem hefur um 60.000 íbúa eftir að komið er inn á hótel.
2. desember Dagsferð til Salzburg 
Eftir morgunverð heimsækjum við fæðingarborg Mozarts, Salzburg. Borgin er þekkt fyrir byggingar í barokkstíl og var hún skráð á heimsminjaskrá UNESCO árið 1996, en Salzburg er í hugum margra sannkölluð perla Austurríkis. Við byrjum á að fara í stutta skoðunarferð um borgina, um Mirabell garðinn og göngum eftir Getreidegasse sem er með elstu og þekktustu götum borgarinnar, en þar er mjög áhugavert Mozartsafn. Einnig verður hægt að fara upp í kastalann Hohensalzburg, en þar var hluti kvikmyndarinnar Söngvaseiðs eða „Sound of Music“ tekin upp. Stórkostlegt útsýni er þaðan yfir Salzburgerland og borgina. Auðvitað verður frjáls tími til að kanna iðandi mannlíf borgarinnar og fá sér hressingu, en aðventumarkaðir eru víða um borgina.
3. desember Frjáls dagur í Rosenheim
Í dag er frjáls dagur í Rosenheim. Fararstjórinn mun bjóða upp á bæjarrölt og leiðsögn fyrir hádegi fyrir þá sem vilja en síðan verður frjáls tími til að ganga um götur bæjarins. Verslunarhverfi borgarinnar er mjög skemmtilegt, en einnig er hægt að fara að Aicher park sem samanstendur af mörgum verslunum á einu svæði. Gott úrval veitingastaða og kaffihúsa er í bænum og ekki má gleyma jólamarkaðnum sem teygir sig um miðborgina með úrvali af handverki, gjafavöru og góðgæti.
4. desember Heimferð
Eftir skemmtilega ferð verður ekið með rútu út á flugvöll og flogið heim frá München kl. 13.05. Lending í Keflavík kl. 16.00 að staðartíma.
Gist verður á Hótel Best Western Grand City í Rosenheim
Hótel Best Western Grand City er glæsilegt 4* stjörnu hótel í hjarta Rosenheim. Það tekur einungis um 5 mínútur að ganga í miðbæinn frá hótelinu þar sem finna má fjölmargar verslanir, kaffi- og veitingahús. Á hótelinu eru 89 nýtískuleg herbergi og hafa þau öll bað/sturtu, hárblásara, útvarp, síma, gervihnattasjónvarp, minibar og internetaðgang. Á hótelinu er að finna fallegan vetrargarð og huggulegan bar.
|
 |
Verð: 104.400 kr. á mann í tvíbýli. Skoðunarferðin til Salzburg er innifalin!
Aukagjald fyrir einbýli er 16.600 kr.
Innifalið í þátttökugjaldinu: 
• Flug með Icelandair til München og flugvallaskattar
• Ferðir milli flugvallar og hótels
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði á miðbæjarhóteli í Rosenheim
• Morgunverður
• Skoðunarferð til Salzburg
• Íslensk fararstjórn
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Hádegis- og kvöldverðir. Forfalla- og ferðatryggingar.
Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.