Jólaferðir til Mainz

 
29. nóvember – 2. desember 2012
6. – 9. desember 2012
Fararstjóri: Íris Sveinsdóttir 

 
Jólaferðir Bændaferða til Þýskalands hafa öðlast fastan sess í hjörtum margra og hafa verið geysivinsælar í gegnum árin. Ferðinni er að þessu sinni heitið til borgarinnar Mainz sem stendur við ána Rín. Mainz sem oft er kölluð Gutenbergerborgin hefur upp á margt að bjóða og skartar miðbærinn fallegum jólamarkaði sem á sér 200 ára gamla sögu. Þar má einnig sjá einstaklega fallegan 11 metra háan jólapíramída sem prýddur er englum, jólasveinum og þekktum hetjum úr sögu Mainz. Við markaðstorgið stendur hin fallega St. Stephans dómkirkja með sínum einstaklega fallegu, bláu glergluggum eftir listamanninn Chagall. Boðið verður upp á stutta bæjarferð um Mainz og eftir það er upplagt að njóta aðventustemningarinnar, kíkja í verslanir eða ylja sér við jólaglögg. Einnig verður farið í dagsferð til háskólaborgarinnar Heidelberg, þar sem kastali frá 13. öld gnæfir tignarlega yfir borginni en í miðbænum er einnig þekktur jólamarkaður þar sem kaupa má allskyns fallegar jólavörur.

 

 

 

 
Fimmtudagur             Flug til Frankfurt
Brottför frá Keflavík kl. 07.35 og lending í Frankfurt kl. 12.00 að staðartíma þaðan sem rúta flytur okkur beint á gott og vel staðsett hótel í hjarta Mainz. Eftir komuna til Mainz er upplagt að rölta á jólamarkaðinn í bænum og fá sér ilmandi „Glühwein“ og brenndar möndlur. Jólamarkaðurinn hefur verið árlegur viðburður síðan 1788 og er þekktur sem „Nikolose Markt“ og stendur aðallega við dómkirkjutorgið þar sem einnig má sjá þekkt útskorið trélistaverk úr lindartré af jesúbarninu í jötunni í fullri stærð.
 
Föstudagur              Dagsferð til Heidelberg
Haldið af stað eftir morgunverð til borgarinnar Heidelberg sem er falleg háskólaborg við ána Neckar. Yfir bænum gnæfir fallegur kastali frá 13. öld en þessi kastali er einn merkasti og stærsti kastali Þýskalands en var eyðilagður af Frökkum 1693. Miðbærinn er einstaklega fallegur með gömlum byggingum og fallegri dómkirkju en litlar sem engar skemmdir urðu á borginn í seinni heimsstyrjöldinni. Fallegur jólamarkaður eins og í ævintýri breiðir úr sér í gamla bænum með fallega skreyttum jólahúsum þar sem hægt er að kaupa allskyns jólaskraut og handunna jólamuni.
 
Laugardagur              Frjáls dagur í Mainz
Í dag er frjáls dagur í Mainz. Fararstjórinn mun bjóða upp á bæjarrölt og leiðsögn fyrir hádegi fyrir þá sem vilja en síðan verður frjáls tími til að ganga um götur bæjarins. Helstu verslanirnar eru við Ludwigstrasse og Schillerplatz og am Brand sem er skemmtileg göngugata sem liggur upp frá dómkirkjunni. Gott úrval veitingastaða og kaffihúsa er í bænum og ekki má gleyma jólamarkaðnum sem teygir sig í kringum dómkirkjuna með úrvali af gjafavöru og góðgæti.
 
Sunnudagur              Heimferð
Eftir morgunverð er farið með rútu út á flugvöll og síðan er flug frá Frankfurt kl. 13.40. Lent í Keflavík kl. 16.15. 
 
 
Gist verður á Hilton City hótelinu í Mainz
Hilton City Mainz hótelið er staðsett í hjarta Mainz, rétt við eina af hinum mörgu göngugötum í miðbænum. Fjöldi veitingastaða og verslana er í nágrenninu og ekki má gleyma jólamarkaðinum. Á hótelinu sem er fjögurra stjörnu eru 127 nýtískuleg herbergi með baði, sjónvarpi, síma, og loftkælingu. Morgunverðarsalurinn ásamt veitingastað er opinn frá kl. 06.30 – 23.00, en vinsæll hótelbar þar sem panta má m.a létta rétti er opinn frá 17.00 – 01.00 alla daga. Þráðlaust internet er á öllum herbergjum og í móttökunni sem opin er allan sólarhringinn.

   

 Hilton City hótel

 Tveggja manna herbergi

 


 
 
Verð: 105.700 á mann í tvíbýli.                  Skoðunarferðin til Heidelberg er innifalin!
Aukagjald fyrir einbýli er 16.700 kr. 
 
 
Innfalið:
• Flug með Icelandair til Frankfurt og flugvallarskattar
• Ferðir milli flugvallar og hótels
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði á miðbæjarhóteli
• Morgunverður
• Skoðunarferð til Heidelberg
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Hádegis- og kvöldverðir. Forfalla- og ferðatryggingar. 
 
 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 
 
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð