Íran - hjarta Persíu



6. - 20. maí 2012 
Fararstjóri: Jóhanna Kristjónsdóttir

 
Íran á sér langa og merka sögu og þar er að finna margt sögulegra minja en ekki er nútíðin síður spennandi. Í þessari ferð er flogið til Teheran í Íran. Við skoðum borgina, m.a. heimili síðustu keisarafjölskyldunnar. Þá er farið til Kashan en þar eru margar eftirminnilegar byggingar og hefðarhús. Höldum því næst til Yazd, borgar eyðimerkurarkítektúrs og mikillar sögu. Þar er aðalaðsetur Zorostriana sem sumir kalla elddýrkendur. Við skoðum Turn þagnarinnar og Eldhofið, sem og ævaforna tækni Vindturnanna  fjögurra og neðanjarðarhús vatnsins. Sjáum Föstudagsmoskuna sem er undurfögur og er upplýst á kvöldin. Næsti áfangastaður er hin fagra listaborg Shiraz, oft nefnd „Borg skálda, næturgala og rósa“ Við vitjum grafhýsis tveggja helstu skálda Írana, Hafez og Saadi. Auk þess verður Fjólubláa moskan sótt heim. Næst liggur leiðin til Persepolis þar sem við skoðum eina best varðveittu rústaborg heims, borg Akkamenida. Dvalarstaður okkar næstu 4 daga verður Esfahan, hin fagra og töfrandi borg Bláu mosknanna. Þar ber óþrjótandi fegurð fyrir augu, fallegustu moskur heims, hið stóra Imamtorg og sjálft Lífsgjafarfljótið. Yfir það eru margar brýr sem eru einstakar að gerð og tign. Göngum um armenska hverfið og heimsækjum dómkirkjuna og hina sérstöku Skjálfandi mínarettu. Góður tími gefst svo til að skoða stóran markað Esfahan borgar sem á sér fáa líka. Í lok ferðar verður dvalið síðasta daginn í Teheran, þar sem tími gefst til að rannsaka þjóðminjasafnið og nýlistasafnið áður en flogið verður frá Teheran og heim.  

 

 
 
6. maí             Flug til Teheran
Flug með Icelandair frá Keflavík kl. 07.40. Mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst fyrir brottför. Lending í London kl. 11.45. Seinna um daginn eða kl. 14.10 tekur við flug áfram til Teheran með British Midland. Lending í Teheran kl. 1.15 að staðartíma 7. maí og ekið sem leið liggur á hótel Laleh sem er 5* hótel.
 
7. maí             Skoðunarferð um Teheran
Eftir hádegi er haldið í skoðunarferð um Teheran, stærstu borg Írans og miðstöð viðskipta. Byrjað verður á að skoða Sa'dabad hallirnar þar sem síðasti keisari Írans bjó fyrir byltinguna. Þar getur að líta gnægð dýrgripa, hvort sem eru teppi, keramik eða málverk. Síðan farið að heimili Khomeinis trúarhöfðingja  og sjást þar athyglisverðar andstæður.
 
8. maí             Kashan – Vin í Esfahan eyðimörkinni
Í dag er stefnan tekin til Kashan sem er einna frægust fyrir framleiðslu á fallegum teppum og hinu fræga rósavatni. Í borginni hafa margir af fyrirmennum Írans haft búsetu vegna
hins einstaklega góða loftslags. Margir fallegir garðar eru í borginni auk eftirminnilegra bygginga og hefðarhúsa.
 
9. maí             Yazd - Hjarta Zorostriana
Eftir morgunverð höldum við af stað til Yazd sem er borg með einstakan eyðimerkurarkítektúr. Yazd á sér merka sögu og þar er miðstöð Zorostriana sem við köllum elddýrkendur, en það er ævaforn átrúnaður sem tengist árstíðunum fjórum. Skoðum m.a. Turn þagnarinnar, áhrifamikinn stað sem Zorostrianar notuðu sem hvílustað hinna látnu, en turninn er opinn almenningi. Á leið okkar til Yazd stoppum við í Nain og skoðum fallegt handverk og teppagerð. Endum daginn á sameiginlegum kvöldverði. Gistum á sérstæðu og fallegu 3*hóteli sem heitir Moshir ol Mamalek.
 
10. maí             Yazd – Eldhofið - Föstudagsmoskan
Dveljum allan daginn í Yazd.  Gönguferð um gamla borgarhlutann. Heimsækjum Hús eldsins en þar á eldurinn að hafa logað síðan 470 fyrir Krist. Skoðum neðanjarðarhús vatnsins og vindturnana 4 og sjáum þar einstaka tækni fyrri tíma. Borgin er þekkt sem miðstöð vefnaðar frá örófi alda. Föstudagsmoskan sem reist var á 14. öld er einstaklega falleg upplýst á kvöldin. Um kvöldið er svo í boði að fara á sérstakan íþróttaleik Írana „Zoorkaneh“ þar sem karlmenn sýna listir sýnar.
 
11.maí             Shiraz – Borg skálda, næturgala og rósa
Nú liggur leiðin til hinnar fögru listaborgar Shiraz. Shiraz er merkasta borgin í Fars héraði. Til gamans má geta þess að vínþrúgan Syrah er upprunnin í Fars héraði og er ræktuð nú til dags víðsvegar um heim. Gistum á Parshótelinu sem er 5* hótel og vel í sveit sett.
 
12. maí             Shiraz – Narjenjehstan og fjólubláa moskan
Í dag heimsækjum við Narjenjehstan sem þýðir appelsínustaður, en setrið var reist sem móttökuhús fyrir hefðarfólk árið 1886. Við skoðum fjólubláu moskuna og grafhýsi skáldanna Hafez og Saadis sem eru frægustu ljóðskáld Persa. Seinna um daginn gefst farþegum tími til hvíldar eða heimsóknar á markaðinn í Shiraz.
 
13. maí             Persepolis – Rústir borgarinnar Akkamenida
Í dag verður farið til Persepolis sem jafnan er talinn vera hápunktur Íransheimsókna. Persepolis er ein best varðveitta rústaborg hins forna veldis Akkamenida sem stýrði hinni fornu Persíu milli 559 og 330 f.Kr. Heimsækjum einnig Nekropolis en þar eru gríðarlega tilkomumikil grafhýsi nokkurra konunga Akkamenida hogginn í klettaveggi. Á leiðinni aftur til Shiraz verður stoppað við Kóranhliðið.
 
14. maí             Shiraz - Esfahan 
Í dag verður keyrt til Esfahan, vöggu lista landsins. Á leiðinni er stoppað í Pasargadae við grafhýsi Kýrusar mikla, stofnanda persneska heimsveldisins. Endum svo daginn í Esfahan. Gist verður næstu 4 nætur á 4* hóteli í Esfahan, Aseman sem stendur rétt við Lífgjafarfljótið.
 
15. maí             Esfahan – Fallegar moskur og Imamtorgið
Esfahan þykir fegurst allra borga í Íran og verður ekki ýkt um töfra hennar og fljótið sem rennur um hana. Í borginni er tvímælalaust að finna margar fallegustu moskur heims og er oft talað um borgina sem borg hinna bláu moska vegna þess hve margar hvelfingar þeirra eru bláar. Skoðum hið gríðarstóra Imamtorg sem hýsir m.a. tvær moskur og er eitt hið stærsta í heimi. Í dag heimsækjum við einnig Ali-Qapu og Cheel Sotun hallirnar. Eftir kvöldverð er svo í boði útsýnisferð um borgina og fallegu brýrnar Si-o-Se og Khaju.
 
16. maí              Armenska hverfið – dómkirkjan – bazar
Byrjum daginn á að heimsækja armenska hverfið og dómkirkjuna sem reist var á 17. öld. Við skoðum Skjálfandi mínarettuna  og fleiri eftirtektarverða staði. Í Esfahan er mjög stór og glæsilegur markaður og gefum við okkur góðan tíma þar. Heimsækjum m.a. listamenn sem teikna smækkaðar eftirmyndir. 
 
17. maí             Esfahan – Frjáls dagur
Frjáls dagur í Esfahan og fararstjóri verður innan seilingar. Upplagt að fara á markað og rölta um borgina. Einnig gaman að ganga meðfram fljótinu en þar er afar líflegt á kvöldin. 
 
18. maí             Esfahan - Teheran
Í dag ökum við til Teheran. Á leið okkar verður áð við kastalarústir í borginni Izadkhast og einnig ökum við framhjá Qom, hinni helgu borg og miðstöð trúarlífs í Íran.
 
19. maí              Teheran –Þjóðminjasafnið og nýlistasafnið
Hefjum daginn á að skoða þjóðminjasafn Írana þar sem gefur á að líta mikið magn merkra þjóðargersema Írana. Í framhaldi af því skoðum við gullfallegt teppasafn og svo
nýlistasafnið sem var byggt á árunum 1970-80 af frumkvæði Farah Diba keisaraynju, en hún safnaði listaverkum frá öllum heimshornum. Skipt er um sýningar með reglulegu millibili enda hefur verið keyptur fjöldi nýrra verka. Kveðjukvöldverður. Tími til hvíldar fram að brottför út á flugvöll.
 
20. maí             Heimferð
Eftir ævintýralega ferð er komið að heimferð. Haldið út á flugvöll um nóttina og flogið til London kl. 2.45 með British Midland og lent þar kl. 7.25 að staðartíma. Síðan er flogið áfram heim með Icelandair kl. 13.00 og lending í Keflavík kl. 15.00. 
 
 
 

 
 
 
Verð: 549.700  kr. á mann í tvíbýli.                  Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli kr. 92.800
 
 
Innifalið:
• Flug með Icelandair til og frá London
• Áætlunarflug með British Midland á almennu farrými
   London – Teheran – London
• Flugvallarskattar fyrir alla ferðina
• Akstur til og frá flugvelli í Teheran
• Allar rútuferðir samkvæmt ferðalýsingu í loftkældri rútu
• Skoðunarferðir og aðgangseyrir samkvæmt ferðalýsingu
• Gisting í 2 nætur í Teheran ( 5* hótel )
• Gisting 1 nótt í Kashan eða Abyaneh ( 2* hótel )
• Gisting í 2 nætur í Yazd ( 3* hótel )
• Gisting í 3 nætur í Shiraz (5* hótel)
• Gisting í 4 nætur í Esfahan (4* hótel)
• Gisting í 2 nætur í Teheran ( 5* hótel)
• Fullt fæði allan tímann, þ.e. morgunverður, hádegisverður og kvöldverður Farangursþjónusta, þÞjórfé fyrir farangursþjónustu  og á veitingastöðum .
• Enskumælandi staðarleiðsögumaður
• Vegabréfsáritun
• Íslensk fararstjórn
• Undirbúningsfundur með fararstjóra fyrir ferð
 
Ekki innifalið: 
• Minibar/kaffi á hótelum og persónuleg útgjöld.
• Þjórfé fyrir erlenda fararstjórann og rútubílstjóra
• Forfalla- og ferðatryggingar
 

 
 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 
 
 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð