Pétur Óli Pétursson

 

Pétur Óli Pétursson er sérfróður um Pétursborg og Rússland almennt, enda einn fárra Íslendingasem hefur búið á þessum slóðum. Myndin er af Pétri Óla í Vetrarhöllinni í Pétursborg.
Pétur Óli Pétursson hefur búið í mörg ár í Pétursborg, Rússlandi og er einn fárra Íslendinga á þessum slóðum. Hann á og rekur fyrirtæki í nágrenni Pétursborgar og byrjaði fyrir nokkrum árum, eiginlega fyrir tilviljun, að taka á móti íslenskum hópum og vinna sem fararstjóri. Þetta hefur vafið upp á sig og er Pétur Óli orðinn í dag líklega þekktasti íslenski fararstjórinn í Pétursborg.

Hann er sérlega fróður um borgina, þekkir hreinlega hvern krók og kima og segir skemmtilega frá. Hann er skipulagður og skeleggur þegar á þarf að halda. Pétur er fæddur og uppalinn í Skagafirði, nokkuð sem hann er stoltur af og lætur gjarnan koma fram þegar tækifæri gefst.

Pétur Óli fór í fyrstu ferðina sem fararstjóri fyrir Bændaferðir í september 2006 og tókst sú ferð einstaklega vel, en síðan þá hefur hann farið í margar ferðir við góðan orðstýr. Má þar sérstaklega nefna ferðirnar til Pétursborgar og Tallinn og í glæsilega siglingu frá Moskvu til Pétursborgar.

 

 
 

  
Árið 2012 fer Pétur Óli í ferðirnar

 

 

 

Umsagnir farþega um Pétur Óla: 

„Get alveg hiklaust mælt með honum, mjög fróður um svæðið og kom því vel til skila, skemmtilegur og hélt vel utan um hópinn.“

„Sá albesti!“

„Hann er ákveðinn, öruggur, fróður og veit alveg hvað hann er að gera. Hann er líka mjög skemmtilegur sem er auðvitað mikill plús.“

„Pétur Óli er frábær fararstjóri og hafði góða stjórn á hópnum. Hann er ákveðinn án þess þó að sýna ósanngirni af neinu tagi. Hann býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu, sem hann miðlar mjög vel til samferðamanna. Sem sagt, það verður vart á betur kosið og við vildum gjarnan taka þátt í öðrum ferðum undir hans leiðsögn.“

„Pétur Óli er framúrskarandi fararstjóri.“

 

 

 

Til Péturs Óla með innilegu þakklæti fyrir frábæra leiðsögn:

Pétur Óli okkar leysir
allra vanda snilli með.
Út um trissur allar þeysir
ekkert truflar ljúflings geð.

Miðlar fróðleik mildri raustPétur Óli á sér mörg áhugamál og er hestamennskan þar á meðal
margt er gaman hjalað.
Má það teljast makalaust
hvað maðurinn fær talað.

Hefur með sér heilladísir
honum létta störfin mörg.
Valentína af visku lýsir
veitir Hugrún mörgum björg.

Geta fáir bætt um betur
brátt ég felli lofsöngshjal.
Eini gallinn á þér Pétur
er þitt ”Skagafjarðar tal”.

Megi þú ætíð lýði leiða
land um Péturs mikla, vítt.
Farþeganna ólund eyða
ætíð móta skapið blítt.

Þú sem öðrum vísar vegi
virtur sért í himnarann.
Á upprisunnar efsta degi
öll við kjósum Pétur þann.


Eitt erindi barst aðeins seinna og er sem hér segir:

”Við látum hugann reika”, er leiðir okkar skilja
og lifum upp þær stundir, er áttum saman hér.
Því endurminningarnar, sem erfiðleika hylja
er allra besta nesti, sem lífið býður þér.


Höfundur: Gunnar Kolbeinsson



Flýtileiðir




Skipta um leturstærð