Marianne Eiríksson


 


Marianne Eiríksson fæddist 1964 í Schaffhausen í Sviss, við landamæri Þýskalands. Hún  er menntaður ferðamálafræðingur frá Sviss og hefur dvalið í Bretlandi, Ítalíu, Bandaríkjunum og víðar.  Hún kom til Íslands í fyrsta skipti 1985 og dvaldist á sveitabæjum í nokkra mánuði.  Siðan vann hún við að taka á móti svissneskum ferðamönnum á Íslandi 1989 og 1990.  Hún hefur búið á Íslandi síðan 1992 með íslenskum eiginmanni sínum.
Hún vann hjá Flugleiðum í Sviss og á Íslandi, og einnig á ferðaskrifstofum hér á landi.   Hún er útskrifuð frá leiðsöguskólanum og vinnur sem leiðsögumaður á Íslandi á sumrin og sem fararstjóri erlendis á veturna.

Undanfarin ár hefur hún  farið jólaferðir fyrir Ferðaþjónustu Bænda til Þýskalands, ásamt öðrum ferðum um Þýskaland, Sviss og Frakkland.

Marianne er Svisslendingur og hefur því eins og margir samlandar hennar verið á skíðum í Ölpunum frá barnsaldri.

Hún er orðin meiri Íslendingur en Svisslendingur og talar  þýsku, ensku, frönsku, ítölsku og að sjálfsögðu reiprennandi íslensku. Marianne hefur gaman af ferðalögum, tungumálum og hestamennsku.
 
Marianne hóf störf á skrifstofu Bændaferða í nóvember 2010.
 


 

Árið 2012 fer Marianne í ferðina:  Októberfest í München 2. – 6. október  

 

 

Umsagnir farþega um Marianne:

"Marianne var alveg einstök, lipur, skemmtileg og í alla staði Bændaferðum til sóma."

"Gæti mælt með Marianne hvenær sem er. Hún er indæl í alla staði. Létt í lund og spjallar við alla. Hún skipulagði saman kvöldverði og stuttar skoðunarferðir fyrir þá sem vildu og sinnti öllu af alúð."

"Marianne vill allt fyrir alla gera, hún er brosmild með notalega nærveru."

"Hún er mjög þægileg, segir skemmtilega og fróðlega frá landi og þjóð."

"Marianne er vel skipulögð og skýr, svo er hún glöð og hress í framkomu."

 



Flýtileiðir




Skipta um leturstærð