Jónína Guðmundsdóttir

 


Jónína Guðmundsdóttir
 er fædd árið 1951 og alin upp í Borgarfirðinum. Hún hefur alltaf haft brennandi áhuga á ferðalögum innanlands jafnt sem utan. Hún er stúdent frá MR og lauk síðan kennaranámi frá KHÍ.

Jónína hefur verið búsett í Keflavík og kennt ungmennum þar dönsku um margra ára skeið þar til hún tók við skólastjórn. Nú hefur hún söðlað um eftir rúmlega 30 ára starf að skólamálum og útskrifaðist sem leiðsögumaður frá Leiðsöguskóla Íslands vorið 2008.

Jónína hefur áhuga á fólki og mismunandi menningarheimum, tónlist og dansi m.a. og hefur farið sem fararstjóri til Egyptalands á vegum Bændaferða. Hún hefur ferðast víða, einkum um Evrópu ýmist með fjölskyldunni eða með hópa. Jónína talar einnig ensku og dönsku og er vön skipulagningu og mannlegum samskiptum.





Árið 2012 fer Jónína í ferðina Leyndarmál Egyptalands 14. - 28. október.
 


 
Umsagnir farþega um Jónínu:  

 
„Jónína er góður fararstjóri sem kemur öllu vel til skila.“

„Jónína var vel undirbúin og óskaði óspart eftir spurningum frá farþegum sem hún svarið samviskusamlega.  Er röggsöm og góður ferðafélagi.“

„Jónína stóð sig frábærlega vel að öllu leyti sem fararstjóri.  Hún er ákveðin, dugleg, samviskusöm og stuðlaði að léttleika og ánægju hjá farþegum.“

„Jónína leysti úr hvers manns vanda og var eins og ein úr hópnum , jákvæð, lífleg og mannleg."

 





Flýtileiðir




Skipta um leturstærð