Jóhanna Kristjónsdóttir

 

 
Jóhanna Kristjónsdóttir
er fædd í Reykjavík 1940. Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1959 og prófi í hebresku frá HÍ 1962.

Hún vann við blaðamennsku í áratugi og ferðaðist víða á þeim árum en ekki síst til Miðausturlanda og skrifaði mikið um málefni þess heimshluta. Árið 1995 hætti hún á Morgunblaðinu og fór  til Egyptalands til arabískunáms sem hún hélt síðan áfram í Sýrlandi og Jemen.

Jóhanna hóf að fara með hópa til Miðausturlanda 2002 og stofnað var Vináttu- og menningarfélag Miðausturlanda sem nú eru í á sjöunda hundruð félaga og farnar hafa verið 30 ferðir til tólf landa sl. fimm ár.

Jóhanna hefur einnig fengist við fyrirlestrahald og kennslu auk þess að vera fararstjóri og skipuleggjandi ferðanna.
Hún hefur skrifað allnokkrar bækur, þ.á. m um veru sína í Egyptalandi og Sýrlandi og bókina Arabíukonur ofl.
 


Árið 2012 fer Jóhanna í ferðirnar


 

Umsagnir farþega um  Jóhönnu:
 
 
„Jóhanna er skemmtileg, fróð, yfirveguð og traust.“
 
„Hún er mjög skipulögð og þekkir bæði menningu og áfangastaði af eigin raun.“
 
„Fræðandi, skemmtileg, umhyggjusöm og skipulögð.“
 
„Hún er létt og skemmtileg og vel kunnug á þeim slóðum sem farið var um.“
 
„Jóhanna er röggsöm og ákveðin og það er hægt að treysta henni.“
 
„Hún er skemmtileg og þekkir þetta svæði mjög vel.“



Flýtileiðir




Skipta um leturstærð