Guðrún G. Bergmann

 

 
Guðrún G. Bergmann hefur starfað sem fararstjóri í sérferðum hjá Ferðaþjónustu bænda frá árinu 2005 og farið með hópa í nokkrar ferðir til Egyptalands, Perú, Bólivíu og árið 2011 til Ástralíu og Nýja Sjálands. Guðrún hefur víðtæka þekkingu af báðum löndum og þekkir vel til siða og menningar þar. Hún ferðaðist í tæplega 3 vikur um Nýja-Sjáland árið 2004 og árið 2009 varði hún rúmum mánuði í ferðalög um Ástralíu, með viðkomu í Singapore.
Hún hefur opnað fyrir okkur spennandi markaði og nú er það Kalifornía sem leiðin liggur til vorið 2012.  
 
Guðrún hefur notið mikilla vinsælda sem fararstjóri, enda hafa góðir hæfileikar hennar í mannlegum samskiptum og skipulagshæfileikar hennar styrkt hana í því starfi. 
 
Hún stundaði nám við Verslunarskóla Íslands og lauk diplómanámi í ferðamálafræðum árið 2002 frá Háskóla Íslands. Hún hefur alltaf rekið sjálfstæðan atvinnurekstur og hefur komið að margs konar verslunarrekstri, bókaútgáfu, skipulagningu námskeiða og fyrirlestra, ráðgjöf í umhverfismálum, rekstri á ferðaskrifstofu og hótelrekstri í gegnum tíðina. Guðrún seldi nýverið Hótel Hellnar, sem hún rak í rúm 10 ár og sinnir nú ásamt fararstjórn, ritstörfum og helsta áhugamáli sínu, umhverfisvernd og aukinni umhverfisvitund.
 


 
Árið 2012 fer Guðrún í ferðirnar: 


 
Umsagnir farþega um Guðrúnu:
 
„Hún var fljót að þýða á gott mál. Hjálpleg, hress og skemmtileg.“
 
„Róleg og yfirveguð en þó ákveðin. Góður túlkur og vel að sér.“
 
„Var mjög örugg, hafði gott vald á enskunni, þekkti söguna, raddsterk og glæsileg kona.“
 
„Hún er einfaldlega frábær! Alltaf í góðu skapi og tilbúin til að gera allt til að öllum líði vel.“
 
„Guðrún var vel skipulögð og í góðu sambandi við allan hópinn.“
 
„Hún er glaðleg – ólöt að svara spurningum – góð í mannlegum samskiptum – gerir ekki mannamun = frábær!“
 
„Sem fararstjóri var Guðrún bæði fagmannleg, notaleg og sérlega umhyggjusöm við okkur öll.“
 
„Ég mæli alveg tvímælalaust með Guðrúnu. Hún er einstök, bæði ljúf og skemmtileg. Ég hef samanburð úr nokkrum ferðum sem ég hef farið með öðrum ferðaskrifstofum. Guðrún ber þar af sem fararstjóri – 110% +.“



Flýtileiðir




Skipta um leturstærð