Ari Trausti Guðmundsson

 

 

 
 Mynd: @Ragnar Th. Sigurðsson
Ari Trausti Guðmundsson er jarðeðlisfræðingur og hefur hefur starfað sem kennari, rithöfundur síðan 1980 og ráðgjafi í náttúruvísindum og umhverfismálum síðan 1993. Flestar bækur Ara Trausta fjalla um jarðfræði, eldfjallafræði, stjörnufræði, ferðaslóðir og fjallmennsku en einnig liggur eftir hann tugur skáldverka; smásögur, ljóðabækur og skáldsögur. 
 
Ari Trausti hefur einnig starfað sem dagskrárgerðarmaður í útvarpi og sjónvarpi, m.a. að heimildarmyndum og þáttaröðum. Enn fremur er hann meðal reyndari fjallamanna landsins, kunnur fyrir ferðir á heimskautasvæðum og framandi slóðum, auk þess að hafa unnið að sýningum og söfnum heima og heiman.
 
Ari Trausti hefur ferðast níu sinnum til Ekvador, oftast með íslenska hópa, en einnig á eigin vegum, og er vel kunnugur landi og þjóð, háfjöllum jafnt sem frumskógum.
 


 

 
Árið 2012 fer Ari Trausti í ferðina Ekvador - milli fjalls og fjöru 16. október - 8. nóvember 
 


 

 

 
 Mynd: @Ragnar Th. Sigurðsson
 

 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 



Flýtileiðir




Skipta um leturstærð