Fararstjórar

 

Ari Trausti Guðmundsson

 
 Mynd: @Ragnar Th. Sigurðsson

Ari Trausti Guðmundsson er jarðeðlisfræðingur og hefur hefur starfað sem kennari, rithöfundur síðan 1980 og ráðgjafi í náttúruvísindum og umhverfismálum síðan 1993. Flestar bækur Ara Trausta fjalla um jarðfræði, eldfjallafræði, stjörnufræði, ferðaslóðir og fjallmennsku en einnig liggur eftir hann tugur skáldverka; smásögur, ljóðabækur og skáldsögur. 
 
Ari Trausti  hefur einnig starfað sem dagskrárgerðarmaður í útvarpi og sjónvarpi, m.a. að heimildarmyndum og þáttaröðum. Enn fremur er hann meðal reyndari fjallamanna landsins, kunnur fyrir ferðir á heimskautasvæðum og framandi slóðum, auk þess að hafa unnið að sýningum og söfnum heima og heiman.
 
Ari Trausti hefur ferðast níu sinnum til Ekvador, oftast með íslenska hópa, en einnig á eigin vegum, og er vel kunngur landi og þjóð, háfjöllum jafnt sem frumskógum. 


 


Guðrún G. Bergmann hefur starfað sem fararstjóri í sérferðum hjá Ferðaþjónustu bænda frá árinu 2005 og farið með hópa í nokkrar ferðir til Egyptalands, Perú og Bólivíu. Hún hefur opnað fyrir okkur spennandi markaði og nú eru það Ástralía og Nýja-Sjáland sem leiðin liggur til haustið 2011. Guðrún hefur víðtæka þekkingu af báðum löndum og þekkir vel til siða og menningar þar. Hún ferðaðist í tæplega 3 vikur um Nýja-Sjáland árið 2004 og árið 2009 varði hún rúmum mánuði í ferðalög um Ástralíu, með viðkomu í Singapore.
 
Guðrún hefur notið mikilla vinsælda sem fararstjóri, enda hafa góðir hæfileikar hennar í mannlegum samskiptum og skipulagshæfileikar hennar styrkt hana í því starfi. 


 
Inga Ragnarsdóttir


Inga Ragnarsdóttir

Inga Ragnarsdóttir er fædd 1955 í Reykjavík. Hún hefur starfað fyrir Ferðaþjónustu bænda/Bændaferðir frá 2004. Síðan þá er hún búin að fara í fjölda ferða til Kína og segir að töfrar Kína vaxi eftir því sem maður kynnist landinu nánar. Kína hefur óþrjótandi möguleika upp á að bjóða hvað varðar menningu, heimsspeki og sögu, svo ekki sé talað um það sem er að gerast þar í dag í þjóðlífi og efnahag. Hún býr yfir mikilli þekkingu um land og þjóð enda hefur Kína heillað hana frá því á unglingsárunum. Inga hefur einnig farið margar ferðir um mið Evrópu, þá sérstaklega um Þýskaland þar sem hún er nú búsett.


 

Íris Sveinsdóttir


Ég heiti Íris Sveinsdóttir og er hárgreiðslumeistari að mennt.  Ég rek hárgreiðslustofur bæði á Íslandi og í Þýskalandi, en þar bjó ég í rúm 20 ár þangað til að ég ákvað að flytja aftur heim til Íslands fyrir rúmum tveimur árum.  Eftir heimkomuna hóf ég leiðsögunám í Endurmenntun Háskóla Íslands og útskrifast þar nú í desember. Frá því ég fyrst man eftir mér hef ég ferðast. Foreldrar mínir þeyttust með mig og systur mína um landið þvert og endilangt og ekki þótti mér það leiðinlegt. Búandi í Evrópu notaði ég hverja frístund til ferðalaga. Það eru mikil forréttindi að getað sameinað vinnu og áhugamál og ekki skemmir fyrir að eiginmaður minn, Jón Guðmundsson, er mikill fjallamaður og eru ferðalög og útivist okkar aðal áhugamál.



Jóhanna Kristjónsdóttir


Jóhanna Kristjónsdóttir er fædd í Reykjavík 1940. Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1959 og prófi í hebresku frá HÍ 1962.Hún vann við blaðamennsku í áratugi og ferðaðist víða á þeim árum en ekki síst til Miðausturlanda og skrifaði mikið um málefni þess heimshluta. Árið 1995 hætti hún á Morgunblaðinu og fór  til Egyptalands til arabískunáms sem hún hélt síðan áfram í Sýrlandi og Jemen.
Jóhanna hóf að fara með hópa til Miðausturlanda 2002 og stofnað var Vináttu- og menningarfélag Miðausturlanda sem nú eru í á sjöunda hundruð félaga og farnar hafa verið 30 ferðir til tólf landa sl. fimm ár.

 

 

 
Jónína Guðmundsdóttir


Jónína Guðmundsdóttir er fædd árið 1951 og alin upp í Borgarfirðinum. Hún hefur alltaf haft brennandi áhuga á ferðalögum innanlands jafnt sem utan. Hún er stúdent frá MR og lauk síðan kennaranámi frá KHÍ.
Jónína hefur verið búsett í Keflavík og kennt ungmennum þar dönsku um margra ára skeið þar til hún tók við skólastjórn. Nú hefur hún söðlað um eftir rúmlega 30 ára starf að skólamálum og útskrifaðist sem leiðsögumaður frá Leiðsöguskóla Íslands vorið 2008.
Jónína hefur áhuga á fólki og mismunandi menningarheimum, tónlist og dansi m.a. og hefur farið sem fararstjóri til Egyptalands á vegum Bændaferða.

 


  
 
Marianne Eiríksson

 


Marianne Eiríksson fæddist 1964 í Schaffhausen í Sviss, við landamæri Þýskalands. Hún  er menntaður ferðamálafræðingur frá Sviss og hefur dvalið í Bretlandi, Ítalíu, Bandaríkjunum og víðar.  Hún kom til Íslands í fyrsta skipti 1985 og dvaldist á sveitabæjum í nokkra mánuði.  Siðan vann hún við að taka á móti svissneskum ferðamönnum á Íslandi 1989 og 1990.  Hún hefur búið á Íslandi síðan 1992 með íslenskum eiginmanni sínum.
Hún vann hjá Flugleiðum í Sviss og á Íslandi, og einnig á ferðaskrifstofum hér á landi.   Hún er útskrifuð frá leiðsöguskólanum og vinnur sem leiðsögumaður á Íslandi á sumrin og sem fararstjóri erlendis á veturna.

Undanfarin ár hefur hún  farið jólaferðir fyrir Ferðaþjónustu Bænda til Þýskalands, ásamt öðrum ferðum um Þýskaland, Sviss og Frakkland.

Lesa meira >> 


 


Pétur Óli Pétursson

Pétur Óli Pétursson hefur búið í mörg ár í Pétursborg, Rússlandi og er einn fárra Íslendinga á þessum slóðum. Hann á og rekur fyrirtæki í nágrenni Pétursborgar og byrjaði fyrir nokkrum árum, eiginlega fyrir tilviljun, að taka á móti íslenskum hópum og vinna sem fararstjóri. Þetta hefur vafið upp á sig og er Pétur Óli orðinn í dag líklega þekktasti íslenski fararstjórinn í Pétursborg. Hann er sérlega fróður um borgina, þekkir hreinlega hvern krók og kima og segir skemmtilega frá. Hann er skipulagður og skeleggur þegar á þarf að halda. Pétur er fæddur og uppalinn í Skagafirði, nokkuð sem hann er stoltur af og lætur gjarnan koma fram þegar tækifæri gefst.

Lesa meira >>
 

 
 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð