Ekvador - milli fjalls og fjöru


16. október - 8. nóvember 2012     ÖRFÁ SÆTI LAUS!
Fararstjóri: Ari Trausti Guðmundsson

 
Ekvador er eitt allra litríkasta og forvitnilegasta land Suður-Ameríku, um 230 þúsund ferkílómetrar að stærð og með um 14 milljón íbúa. Meirihluti þeirra er af frumbyggjaættum. Landsvæðið nær yfir þurrlendi við Kyrrahafið, upp í hásléttur og jökulþakin eldfjöll og niður í hlýjan og rakan frumskóg Amazon-svæðisins. Í þessari ferð er farið um fyrrgreinda landshluta til þess að kynnast mannlífi, náttúru, menningu og sögu sem nær mörg þúsund ár aftur fyrir okkar tímatal. Ferðin hefst í Quito, en gamli borgarhlutinn er á heimsminjaskrá UNESCO. Síðan er ferðast norður í land á eldfjallaslóðir en þar á eftir allt suður til borgarinnar Cuenca, sem er talin með fegurri borgum álfunnar, skoðaðar inkarústir og þjóðgarðar, og bærinn Banos undir virka eldfjallinu Tungurahua heimsóttur í leiðinni. Stærsta borg landsins, Guyaquil er einn viðkomustaðurinn, ásamt fiskimannaþorpum norðar á ströndinni. Þar er farið í ýmsar skoðunarferðir, á sjó og landi. Að lokum er farið austur um í frumskóginn við Rio Napo þar sem Quechua-frumbyggjar kynna sitt land fyrir ferðahópnum. Ferðast er í rútum og með innanlandsflugi og í ferðinni er nokkrum sinnum gengið um byggð eða mishæðótt land í 1-3 klst., stundum í svala og allt að 4.000 m hæð en stundum í raka og 30 stiga hita. Auk leiðsagnar Ara Trausta Guðmundssonar njóta þátttakendur leiðsagnar heimamanna með sérþekkingu allan tímann. 
    

 

 

 
16. október              Keflavík – Amsterdam
Brottför frá Íslandi klukkan 07.55 með Icelandair til Amsterdam. Mæting í Leifsstöð 2 klst fyrir brottför. Lending í Amsterdam klukkan 12.55. Haldið beint á hótel í Amsterdam og gist í eina nótt. Frjáls tími það sem eftir lifir dags.
 
17. október               Amsterdam – Quito (M/K)
Vöknum snemma og snæðum morgunverð. Brottför frá Amsterdam klukkan 09.55 með KLM til Quito, en flugið tekur tæplega 12 klst. Lent á aðalflugvelli Quito (2.800 m) sem er í jarðri borgarinnar kukkan 14.35. Allir fá dvalarleyfisstimpil í passann. Flutningur á Hótel San  Sebastian (gott **** hótel sem eru “grunnbúðir” okkar í Quito), rétt við Mariscal-hverfið (búðir, veitingahús og kvöldlíf) og skammt frá Av. Amazonas sem er ein af aðalgötum borgarinnar. Tekur 20-25 mín. Um kvöldið er sérstakur kvöldverður með þar sem fulltrúi Nuevo Mundo Expeditions fer lauslega yfir ferðina. Gist er eina nótt í Quito.
 
18. október               Quito – miðbaugur – Otavalo-héraðið (M/H/K)
Lagt af stað snemma um morgun með Tomasi Palma, innlenda  fararstjóranum okkar, þaulreyndum eftir margar ferðir með Íslendinga. Fyrst er haldið á miðbaug, og hans vitjað með formlegum hætti. Þaðan um fagurt landslag norður til Otavalo-héraðs. Það minnir um margt á Alpana og er frjósamt og byggt Otavalo-frumbyggjum sem eru þekktir fyrir handverk og dugnað. Þennan dag notum við m.a. til að heimsækja vefara og tónlistarmenn. Gist er í tvær nætur í Pinsaqui, einni af glæsilegustu “hacienda” landsins - fjölskyldureknum búgarði frá nýlendutímanum -  sem er m.a. þekktur vegna þess að Simon Bolivar dvaldi þar.
 
19. október              Ibarra – öskjuvatnið Cuicocha (M/H/K)Við höldum til “hvítu borgarinnar” Ibarra (81.000 íb., 2.225 m) – aðallega til að skoða okkur um. Eftir hádegi höldum við til glæsilega Cuicocha-öskjuvatnsins og göngum þar í fáeinar klukkustundir. Stígurinn er öldóttur og hæðin yfir hæð Quito en við förum hægt enda tilgangurinn náttúruskoðun og holl hreyfing.
 
20. október              Otavalo - Quito (M/H/K)
Á þessum laugardegi er einn stærsti útimarkaður Ekvador haldinn í bænum Otavalo (um 2.000 m hæð). Þar fæst flest sem nöfnum tjáir að nefna en ferðamenn skoða fatnað, vefnað, leirmuni, skartgripi, leðurvörur og fleira í þessum dúr. Þarna má prútta og þykir fullkomlega eðlilegt enda verð haft í hærra lagi því markaðurinn er afar vinsæll meðal ferðamanna. Mest er þó varið í að skoða litríkt mannlíf og vöruval. Síðan leggjum við af stað til Quito og komum þangað síðdegis. Fyrirhugaður er svo kvöldverður og létt skemmtun í gömlu ljósum prýddu borginni. Gistum á Hótel San Sebastian í eina nótt.
 
21. október              Quito – Cotopaxi þjóðgarðurinn  (M/H/K)
Aftur morgunhress brottför frá Quito en nú í suður, ekki langt, eftir Eldfjallabrautinni sem er í raun hluti af Panamerican Highway. Fyrirhuguð er heimsókn í Cotopaxi-þjóðgarðinn við rætur hæsta virka eldfjalls heims (5.897 m). Landslagið er bæði fagurt og stórbrotið og fjallið jöklum krýnt. Við skoðum okkur um og göngum í leit að kólbrí-fuglum, skimum eftir Andes-kondórum og mörgu öðru til að skoða, í 3.700 til 4.000 m hæð. Spinnum af fingrum fram. Sveitahótelið Cuello de Luna bíður okkar, með arineldi, mat og drykk.
 
22. október              Baños – Tungurahua eldfjallið (M/H/K)
Enn er haldið í suður og svo austur, um borgirnar Latacunga og Ambato til bæjarins Baños sem er m.a. þekktur fyrir jarðböð og heitar sundlaugar. Hann er laglegur og stendur við rætur eldfjallsins Tungurahua (5.023 m). Þar hófst eldgos 1999 og hefur gosið í fjallinu með hléum æ síðan. Síðari hluti dagsins er nýttur til skoðunarferðar og göngu um nágrennið. Gisting er í fjölskyldureknu og litríku gistiheimili, Hotel Viña del Rio.
 
23. október              Riobamba – El Tambo – Ingapica    (M/H/K)
Áfram er haldið um tilkomumikið fjallendi, hlykkjótta vegi og borgirnar Riobamba og Caramba til El Tambo og loks Ingapirca í miðhluta Ekvador. Á leiðinni gæti hæsta fjall landsins, Chimborazo (6.230 m) sýnt sig. Í Ingaprica förum við á vit Inkanna því þar eru stærstu rústir frá tímum þeirra í Ekvador. Aftur gistum við í “hacienda” – að þessu sinni í Posada Ingapirca.
 
24. október              Azogues – Cuenca   (M/H/K)
Dagurinn hefst á fornleifaskoðuninni og síðan liggur leiðin (stutt) um bæinn Azogues til þeirrar borgar sem margir segja þá fallegustu í landinu, Cuenca, með merkum byggingum og dómkirkju sem er afar glæsileg. Við komum okkur fyrir til tveggja nátta á ****hóteli í gömlu heldrimannahúsi, Hotel Santa Lucia, í miðborginni og skoðum svo hana eftir lyst og veðri.
 
25. október              El Cajas þjóðgarðurinn  (M/H/K)
Dagsferð til El Cajas þjóðgarðsins sem er afar þekktur fyrir vötn, fjöll, kletta og sérstætt gróðurfar, m.a. eldgömlu pappírstrén. Þar er gönguferð næsta ógleymanleg (í um 3.500 m hæð). Við snúum til baka eftir hentugleikum.
 
26. október               Cuenca – Guyaquil  (M/H)
Ekið er frá Cuenca smáspöl til baka en svo beint í vestur, bratt niður úr Andesfjöllunum, um hvert gróðurbeltið eftir annað, niður í hlýjuna þar sem bananaekrur og frjósamir ávaxtaakrar blasa við. Húsagerðin breytist í takt við hæðina. Stansað eftir hendinni. Hótel dagsins heitir Grand Hotel Guyaquil (***hálf), rétt við Dómkirkjuna í stærstu borg landsins og skemmtilega strandgötu með alls kyns mannvirkjum - Malécon. Þangað höldum við í göngu og lítum við í Parque Iguana, ef unnt er, og heilsum upp á kembur (ígúana-eðlur). Að þessu sinni er kvöldverður hafður frjáls.
 
27. október              Santa Elena – Salango – P. Lopez (M/H/K)
Við verðum sótt af “Kyrrahafsáhöfn” Mantaraya Lodge sem verður heimili í þrjár nætur í Machalilla-þjóðgarðinum – eins konar örþorp með einkasundlaug. Ökuleiðin til Puerto Lopez, um Santa Elena og meðfram ströndinni býður upp á margt áhugavert útsýnið. Komið er m.a. við í fiskiþorpinu Salango. Þar eru minjar eftir gríðarmiklar fornleifarannsóknir sem afhjúpa mörg atriði meira en 5.000 ára sögu strandbyggðar, m.a. hinar öflugu Manteno-menningar. Eftir kvöldverð verður sagt frá þjóðgarðinum og ýmsu sem þar er hægt að taka sér fyrir hendur.
 
28. október              Puerto Lopez – Aqua Blanca náttúruverndarsvæðið      (M/H/K)
Enn er kominn sunnudagur. Hann notum við til að heimsækja þorp í þjóðgarðinum. Það kallast Aqua Blanca og er inni í hlýja, sígræna þurrskóginum. Um 400 manns búa í þorpinu og verkefni þeirra er m.a. að varðveita landgæði, fornminjar og aðstoða við heimsóknir í afskekktari hluta þjóðgarðsins. Þar höldum við í göngu um nágrennið og skoðum náttúruna og menningarsöguna. Tilvalið að fara í fótabað í heitri laug staðarins. Við skipuleggjum lengd göngunnar á staðnum og höfum meðferðis nestisbox. Á heimleið er stansað við Los Frailes en það er náttúruvætti á ströndinni þar sem sæskjaldbökur verpa frá maí til janúar. Þarna er hægt að hvílast á ströndinni, svamla í sjónum eða fara í gönguferð eftir ströndinni.
 
29. október              Silfureyjan Isla de la Plata  (M/H/K)
Sjóferðardagur. Silfureyjan, Isla de la Plata, er friðland fugla og annarra dýra, á landi og í sjó. Ferðin frá Puerto Lopez til eyjarinnar í yfirbyggðum, stórum báti tekur um eina og hálfa klukkustund. Í eynni stendur valið milli langrar eða stuttrar göngu um stíga þar sem bláfættar súlur, freigátufuglar, albatrosar, smáeðlur og annað er fyllilega ósnortið af mannaferðum - rétt eins og á Galapagos-eyjunum – þ.e. dýrin fælist ekki gestinn. Leiðsögn fylgir. Allir sem vilja geta svo synt með grímu (snorklað) í Drake-víkinni, innan um fiska og önnur sjávardýr, eða slappað af við ströndina. Hádegisverðurinn kemur upp úr kössum en góður kvöldverður bíður í Mantaraya Lodge.
  
30. október              Pile – San Lorenzo de Manabi  (M/H/K)
Við ökum til þorpsins Pile og kynnumst hattagerð – Panamahattar eru ekvadorskir. Svo er frjáls tími í bænum San Lorenzo de Manabi með sína fallegu sandströnd en við röltum líka upp að vita staðarins (Skandinavíu-vitanum) á klettahöfða, útsýnisins vegna. Gist á hotel El Faro Escandinavo en það er einkar vinalegt og fallega staðsett.
 
31. október              Montechristi - Manta – Quito  (M/H)
Dagurinn hefst með viðkomu í bænum Montechristi til að sjá lokin á framleiðsluferli hattanna frægu. Eftir hádegisverð er ekið á flugvöll við Manta. Flugið til Quito er stutt og þægilegt en útsýni ekki amalegt ef skýjafar er lítið. Kvöldverður og dagurinn frjást að öðru leyti en því að stuttur fundur býr okkur undir Amasón-ferðina.
 
1. nóvember               Tena – Rio Napo-fljótið – Amazon frumskógurinn       (M/H/K)
Ekið rakleiðis austur úr Quito, yfir eystri Andesfjallgarðinn (allt upp í 4.000 m) og bratt niður um djúpa dali, þokuskóg og inn í regnskóginn. Við stönsum í bænum Tena og hittum þar fyrir Quechua-frumbyggja frá Rio Blanco. Þeir fara með okkur að Rio Napo-fljótinu (ein af stærri upptakakvíslum Amasón) og upp ána á bátum. Við lendum á leirbakka og þar hefst 1,5-2,0 klst gönguferð um skóginn til Rucu Kausay. Það er þyrping tréhúsa á stólpum sem byggð eru handa ferðamönnum. Þarna gistum við í uppbúnum rúmum undir flugnaneti í opnum sérhúsum. Fjölskylda Agustin Grefa, shamans og oddvita, sér um okkur og fer eitt og annað fram í samkomuhúsinu þar sem margt er skrafað, eldað og skoðað. Lítil á rennur framhjá staðnum og afurðir skógarins eru hafðar í matinn.
 
2. – 3. nóvember              Rio Blanco – Rucu Kausay  (M/H/K)
Þessa daga fræðumst við um frumskóginn og lífið í honum og um nýtingu jurta í margvíslegu skyni, m.a. lækninga. Við kynnumst störfum shamansins (hann m.a. les hvern gest með hjálp drykks sem kallast ayhuasca), göngum m.a. um stíga djúpt inni í ósnertum lundum og böðum okkur í heilögum flúðum. Þarna er heitt og rakt og lífríkið með ólíkindum.
  
4. nóvember              Tena – Quito  (M/H/K)
Eftir morgunverð kveðjum við Quechua-frumbyggjana og frá Tena er ekið í um 5. – 6 klst. tilbaka til Quito, en þangað er komið síðdegis. Snæðum lokakvöldverð saman og gistum í tvær nætur á San Sebastian hótelinu. 
 
5. nóvember              Dagur í Quito   (M)
Eftir morgunverð er farið í skoðunarferð um Quito. Haldið til gamla borgarhlutans (á Heimsminjaskrá) og gengið um torg, kirkjur og klaustur og með forsetahöllinni. Síðan er frjáls tími það sem eftir lifir dags, en þennan dag er einungis morgunverður innifalinn.
 
6. nóvember              Quito – Amsterdam  (M)
Við eigum frjálsan tíma í Quito fyrir hádegi, til að pakka og útrétta áður en haldið er heim á leið. Upp úr hádegi er farið út á flugvöll, KLM-vélin fer í loftið klukkan 17.20 og á flugvellinum greiða allir brottfararskatt (ca. 41 USD - ekki innif. í verði ferðar). Flogið er yfir nótt beint til Curacao eða Bonaire og þaðan til Amsterdam.
 
7. nóvember              Amsterdam
Flugið frá Quito til Amsterdam tekur samtals um 14 klst og áætluð lending er kl. 13.20. Haldið beint á hótel og síðan er frjáls tími. 
 
8. nóbember              Amsterdam – Keflavík (M)
Eftir morgunverð er haldið heim. Flug frá Amsterdam klukkan 13.20 og lending í Keflavík klukkan 15.30 að staðartíma, en flugið tekur rétt um 3 klst.
 
M = morgunverður, H = hádegisverður, K = kvöldverður
 
 
 


  

 
Verð: 797.800 kr. á mann í tvíbýli.                   Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 94.900 kr.
Hámarksfjöldi í ferðina er 25 manns.
 
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair. Keflavík – Amsterdam – Keflavík
• Flug með KLM. Amsterdam – Quito – Amsterdam
• Flugvallarskattar fyrir alla ferðina
• Innanlandsflug frá Manta til Quito í Ekvador
• Allar skoðunarferðir samkvæmt ferðalýsingu
• Allur aðgangseyrir að þjóðgörðum og söfnum samkvæmt ferðalýsingu
• Siglingar samkvæmt ferðalýsingu
• Gisting alla ferðina samkvæmt ferðalýsingu
• Allar máltíðir samkvæmt ferðalýsingu
• Enskumælandi staðarleiðsögumaður
• Undirbúningsfundur með fararstjóra fyrir ferð
• Íslensk fararstjórn
 
Í flugi með KLM eru einnig allar máltíðir innifaldar, þó það sé ekki merkt við það sérstaklega í ferðalýsingu.
 
 
Ekki innifalið 
• Þjórfé – fararstjóri safnar upphæð (rætt á fundi þátttakenda)
• Forfalla- og ferðatryggingar
• Brottfararskattur þegar haldið er heim frá Ekvador
• Allt sem er ekki nefnt undir liðnum „innifalið“




 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.  

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð