Dulúð Indlands & Nepal

 

23. mars – 6. apríl 2012     UPPSELT!
Fararstjóri: Inga Ragnarsdóttir

 
Frá tignarlegum höllum stærsta lýðræðisríkis heims til hæstu tinda Himalayafjalla sameinar þessi ævintýraferð undur Indlands og töfrandi náttúru Nepals. Báðar þjóðir eiga sér langa og merka sögu með dulda og framandi menningararfleifð, sérstaka siði og trúarvenjur. Fjölskrúðugar frásagnir hindúatrúarinnar og búddismans heilla ekki síður en konungshallir og glæsibyggingar hinna fyrrum voldugu mógúla. Ferð okkar hefst í Delí þar sem við skoðum m.a. forsetahöllina og upplifum ævintýralegan markað í Gömlu Delí. Í Jaipur heimsækjum við Amber Fort kastalann og Hawa Mahal, eða „höll vindanna“, förum á fílsbak og njótum andstæðna gamla og nýja tímans. Komum til Agra og skoðum Taj Mahal, eitt þekktasta grafhýsi í heimi og heimsækjum Fatehpur Sikri, forna, yfirgefna sandsteinaborg. Síðast en ekki síst förum við til elstu borgar heims, Varanasi, sem er pílagrímaborg og helgasti staður Hindúa, eða hin svokallaða „borgin eilífa“. Höldum til Nepal, lands stórbrotinnar náttúru og sérstakrar menningar sem ákveðin dulúð hvílir yfir. Við fáum notið óviðjafnalegs landslags, þar sem skiptast á fagrir frjósamir dalir, skógi vaxnar hæðir og tignarlegir tindar hæstu fjalla heims. Við kynnumst hinni sérstöku menningu sem er samofin einlægu trúarlífi og upplifum m.a. hof hinnar „lifandi gyðju“ í Katmandú.
 

 

 

 
23. mars              Flug til Delí
Flug með Icelandair frá Keflavík kl. 7.45. Mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför. Lending í Helsinki kl. 13.10. Flogið áfram til Delí kl. 20.10 með Finnair. Næturflug.
 
24. mars              Skoðunarferð um Nýju og Gömlu Delí              M/H/K
Lending í Delí kl. 06.40 að staðartíma og ekið sem leið liggur á hótel. Eftir morgunverð leggjum við upp í skoðunarferð um Nýju Delí sem er sá hluti borgarinnar sem árið 1911 varð hin nýja höfuðborg breska heimsveldisins á Indlandi. Við skoðum mikilfenglegar byggingar, þ.á.m. Indlandshliðið sem reist var til minningar um fallna indverska hermenn, forsetahöllina og þinghúsið. Seinni part dags skoðum við svo Gömlu Delí. Þessi múslímski hluti borgarinnar er gjörólíkur þeim nýrri. Heimsækjum Id kah moskuna og musteri Jainareglunnar. Ferðumst svo um ævintýralegan markað í hjólavögnum (jinrikisha). Gistum eina nótt í Delí. 
 
25. mars              Jaipur                   M/H/K
Hefjum daginn á góðum morgunverði og leggjum svo upp í indversku ævintýraferðina okkar og keyrum sem leið liggur til Jaipur, höfuðborgar Rajasthan héraðsins, sem er hvað
þekktust sem bleika borgin, en byggingar eldri hluta Jaipur eru allar málaðar bleikar og hefur verið haldið í þá hefð síðan Edward VII, prinsinn af Wales, eiginmaður Viktoríu Bretadrottningu sótti borgina heim 1876. Einnig er hún þekkt sem borg andstæðna, þar sem fílar og rafknúin farartæki eru t.a.m. hlið við hlið á umferðarljósum! Komum á hótel seinni part dags. Röltum um markaði borgarinnar og slökum á eftir ferðalag dagsins. Gist verður í Jaipur í 2 nætur. 
 
26. mars              Jaipur – Amber Fort               M/H/K
Við heimsækjum Amber Fort, áður höfuðstað fyrrum konungsfjölskyldunnar í Jaipur. Amber Fort liggur hátt, umkringd klettum og virkisveggjum og ferðumst við á fílsbaki upp tröppurnar. Við förum svo í borgarhöllina, en hún hýsir nú mikið safn fornra Rajasthan búninga, mughal og Rajput vopna. Nú liggur leiðin að hinni fögru byggingu Hawa Mahal, oftast nefndri höll vindanna. Að lokum skoðum við hina fornu stjörnuathugunarstöð Jantar Mantar.
 
27. mars              Agra (5 - 6 klst. akstur)                M/H/K
Í dag er stefnan tekin í austurátt til Agra sem staðsett er við ána Yamuna, þar eyðum við næstu 2 dögum og heimsækjum m.a. Taj Mahal og Agra Fort. Á leið okkar komum við til draugaborgarinnar Fatehpur Sikri sem var yfigefin vegna vatnsskorts eftir aðeins 14 ára búsetu árið 1585. Fatehpur Sikri, Taj Mahal og Agra Fort eru á heimsminjaskrá UNESCO. Gistum 1 nótt í Agra.
 
28. mars              Agra – Taj Mahal                  M/H/K
Byrjum daginn snemma því við sólarupprás eru töfrar hins fræga Taj Mahal, meistaraverks mógúlskrar byggingarlistar, engu líkir. Mógúllinn Shah Jahan lét reisa þessa frægu byggingu í minningu um persneska eiginkonu sína. Að byggingunni komu alls 20 þúsund handverksmenn og tók það 17 ár að reisa grafhýsið, en efniviðurinn var fluttur frá gervöllu Indlandi og öðrum hlutum Asíu. U.þ.b 3 milljónir ferðamanna heimsækja Taj Mahal árlega. Seinna um daginn heimsækjum við svo ekki síður merkan stað, en þá höldum við til Agra Fort sem er einnig einstaklega mikilfengleg bygging með mikla sögu og ekki spillir fyrir einstakt útsýni m.a. yfir til Taj Mahal. Við tökum svo næturlestina til Varanasi. Svefnklefar eru um borð í lestinni.
 
29. mars              Varanasi – Sarnath                 M/H/K
Varanasi, ein elsta borg Indlands og jafnframt sú heilagasta, er áfangastaður okkar í dag. Leið okkar liggur beint á hótelið þar sem gefst tækifæri til að koma sér fyrir og snæða morgunverð. Við skoðum svo hina fögru borg Varanasi, en borgin var miðstöð menntunar og trúarlífs, og er sótt heim af fjölda pílagríma til að baða sig í helgu vatni árinnar Ganges. Seinni part dags verður farið til Sarnath á slóðir Búdda og saga hans og heimkynni skoðuð. Fyrri part kvölds höldum við niður að hinni heilögu á, Ganges, til að vera viðstödd svokallaða „arati“ athöfn sem er framkvæmd af fimm hindúaprestum. Gistum eina nótt í Varanasi.  
 
30. mars              Varanasi – Delí              M/H/K
Árla morguns er ferðinni heitið að ánni Ganges þar sem við stígum um borð í báta og siglum meðfram bökkum árinnar. Við sólarupprás upplifum við helga stund þar sem hundruð pílagríma baða sig í helgu vatni árinnar og votta guði sólarinnar virðingu sína. Margir lýsa þessari siglingu sem ferð inn í annan heim. Eftir siglingu göngum við um þröng stræti borgarinnar. Seinni partinn verður flogið til Delí og dvalið á hóteli nálægt flugvellinum í eina nótt.
 
31. mars              Delí – Katmandú                 M/H/K
Eftir morgunverð verður flogið til Katmandú og dvalið þar í 4 daga. Hér gefst tími til að hvíla sig fyrir könnunarleiðangra næstu daga um þetta fagra konungsríki Himalayafjallanna, sem liggur á milli Indlands og Tíbet. Seinni partinn skoðum við bæinn og förum að Hofa markaðstorginu. Gistum í 4 nætur í Katmandú.
 
1. apríl              Durbar torg – Swayambhunath               M/H/K
Hefjum skoðunarleiðangur dagsins við hið glæsilega Durbar torg sem er krýningarstaður nepalskra konunga. Þar er fjöldi mikilfenglegra bygginga, s.s konungshöllin og hof hinnar dýrkuðu „lifandi gyðju“. Heimsækjum einnig Swayambhunath hofið, einn helgasta stað búddatrúarmanna sem liggur hátt í hlíðinni, stuttan spöl vestur af Katmandú. Þetta er mikilfengleg sjón, elsti hluti byggingarinnar er u.þ.b 2000 ára gamall og upp að musterinu liggja 365 tröppur. Það er dágóður gangur að stúpunni en vel þess virði því fegurðin allt um kring er mikil og gott útsýni.
 
2. apríl              Bhaktapur - Changu Narayan               M/H/K
Heimsókn til borgarinnar Bhaktapur ( Khwopa) sem oft er nefnd gimsteinn Nepals, borg menningarinnar eða hin lifandi arfleifð. Borgin er eins og opið safn því þar er að finna ægifagrar konunglegar minjar, fjölbreytta menningu og djúpar rætur siðvenja og haga innfæddra. Borgin er á heimsminjaskrá UNESCO. Við heimsækjum líka Changu Narayan, elsta musteri Nepal.
 
3. apríl              Dhulikhel – Patan (Lalitpur)               M/H/K
Byrjum daginn á að aka til Dhulikhel sem er talinn einn besti útsýnisstaður í heimi. Þar gefst einstakt tækifæri til að njóta óviðjafnalegs útsýnis yfir dalinn og til tignarlegra Himalayafjallanna, sannkölluð paradís fyrir náttúruunnendur. Því næst liggur leiðin til Patan, ægifagrar og ævafornrar borgar, byggða á þriðju öld. Þar er einstök blanda áhrifa hindúa og búdda frá örófi alda, sýnileg í byggingarlist og ríkri listarfleifð. Á leið okkar tilbaka komum við í flóttamannabúðir og á  handverksmarkaði.
 
4. apríl              Katmandú – Delí                 M/H/K
Eftir morgunverð kveðjum við Katmandú og tökum flug til Delí. Við komuna til Delí er haldið beint á hótel. Frjáls tími. Fararstjóri verður innan seilingar. Gistum hér í eina nótt. 
 
5. apríl              Delí – Helsinki                 M
Eftir ævintýralega ferð er komið að heimferð. Haldið út á flugvöll snemma að morgni og flogið til Helsinki kl. 10.30 með Finnair og lent þar kl. 15.20 að staðartíma. Gist á hóteli nálægt flugvellinum eina nótt.
 
6. apríl              Heimferð
Flogið heim með Icelandair kl. 15.30 og lending í Keflavík kl. 15.55 að staðartíma.
 

 

 
 
 
Verð: 448.300 kr. á mann í tvíbýli.                           Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli 64.400 kr.
Athugið að ekki er hægt að fá einbýli í næturlestinni til Varansi. 
 
 
Innifalið:
• Áætlunarflug með Icelandair og Finnair á almennu farrými
Ísland - Helsinki – Delí – Helsinki – Ísland
• Áætlunarflug á almennu farrými Delí – Katmandú - Delí
• Flugvallarskattar fyrir alla ferðina
• Akstur til og frá flugvelli í Delí
• Akstur til og frá flugvelli í Katmandú
• Allar rútuferðir samkvæmt ferðalýsingu í loftkældri rútu
• Lestarferð með næturlest (annað farrými) til Varanasi
• Skoðunarferðir og aðgangseyrir samkvæmt ferðalýsingu
• Gisting á góðum hótelum samkvæmt landsmælikvarða
• Fullt fæði allan tímann í Indlandi og Nepal, þ.e. morgunverður, hádegisverður og kvöldverður.
• Enskumælandi staðarleiðsögn á Indlandi og í Nepal
• Gisting í eina nótt í Helsinki með morgunverði
• Ferðir til og frá flugvelli í Helsinki
• Undirbúningsfundur með fararstjóra fyrir ferð
• Íslensk fararstjórn 
 
Ekki innifalið: 
• Minibar/kaffi á hótelum og persónuleg útgjöld.
• Þjórfé fyrir erlenda fararstjórann og rútubílstjóra
• Vegabréfsáritun
• Forfalla- og ferðatryggingar
• Allt sem er ekki nefnt undir liðnum „innifalið“
 
 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 
 
 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð