Draumheimur Kaliforníu



4. - 16. apríl 2012     UPPSELT!
Fararstjóri: Guðrún Bergmann

 
Kalifornía er líklega í hugum margra þekkt fyrir Hollywood og kvikmyndir. Við fljúgum til Seattle þar sem við gistum í eina nótt og fljúgum þaðan til San Francisco, þar sem bíður okkar sannkölluð draumaferð. Skoðum allt það helsta í hinni fallegu San Francisco en þar má helst nefna Golden Gate brúna, Fischerman‘s Wharf ásamt Chinatown. Haldið þaðan meðfram ströndinni til Los Angeles, farið á staði eins og Hollywood, Rodeo Drive í Beverly Hills og Olvera Street. Áfram er haldið til San Diego og Phoenix. Við skoðum eitt stærsta sandöldusvæði í Norður-Ameríku ásamt því að stoppa í Sedona, þar sem glæsilegir, risastórir rauðir klettar einkenna umhverfið. Síðan er komið að hápunkti ferðarinnar sem er hið stórfenglega Grand Canyon, sem margir segja eitt af náttúruundrum veraldar. Þá borgar sig að fara snemma á fætur og sjá sólarupprásina í þessu stórbrotna landslagi. Því næst er ekið til Las Vegas, sem er ein þekktasta spilaborg í Ameríku, gist þar í tvær nætur og gefst þá færi á að kíkja aðeins í spilavítin og jafnvel freista gæfunnar. 
  
 

 

 

 
4. apríl              Brottför til Seattle
Brottför frá Keflavík með Icelandair kl. 17.00 og lending í Seattle kl. 17.45 að staðartíma. Flugið til Seattle tekur tæpa 8 tíma. Farið með rútu beint á hótelið sem er staðsett í nágrenni við flugvöllinn. Gisting í eina nótt.
 
5. apríl              Seattle – San Francisco
Við hefjum daginn snemma þar sem okkar bíður flug til San Francisco. Við komuna til San Francisco tekur á móti okkur staðarleiðsögumaður sem fylgir hópnum allan tímann í Bandaríkjunum. Farið verður í skoðunarferð um þessa fallegu borg ásamt því að snæða hádegismat í Kínahverfinu. Seinni partinn förum við á hótelið þar sem við gistum næstu tvær nætur.
 
6. apríl              Frjáls dagur í San Francisco
Hér gefst einstakt tækifæri til að skoða San Francisco á eigin vegum. Borgin er fjórða stærsta borg Kaliforníuríkis og hefur uppá svo ótal margt að bjóða, m.a. er hægt að skoða hina þekktu en alræmdu fangelsiseyju Alcatraz, prófa fallegu sporvagnana sem gefa borginni svo skemmtilegan blæ eða ganga um Fischerman‘s Wharf og skoða mannlífið. 
 
7. apríl              San Francisco – Bakersfield
Ökum meðfram Kyrrahafsströndinni til Monterey sem er vinsæll ferðamannastaður. Þaðan er leiðin 17-Miles Drive farin, en þessi leið liggur meðfram ströndinni og er útsýnið hreinlega frábært. Stoppað í Carmel, sem er ákaflega fallegur bær þar sem listir og menning hafa fengið að blómstra um langt skeið.Haldið áfram til Bakersfield en þar gistum við eina nótt.
 
8. apríl              Bakersfield - Los Angeles
Dagurinn hefst á því að við förum sem leið liggur til Santa Barbara. Þar er farið til Mission Santa Barbara sem telst til fallegustu spænsku bygginga í Kaliforníu. Hér gefst tími til að fara aðeins í bæinn. Höldum áfram til Los Angeles þar sem farið verður í bæjarferð og er farið á staði sem margir þekkja, eins og Hollywood, Grauman’s Chinese Theatre eða einnig þekkt sem Mann‘s Chinese Theatre. Þá heimsækjum við Beverly Hills, Rodeo Drive og Olvera Street, sem er í elsta hluta Los Angeles og stundum er gatan nefnd fæðingarstaður Los Angeles. Gistum hér í eina nótt.
 
9. apríl              Los Angeles – San Diego
Ferðinni er heitið til San Diego sem er önnur stærsta borg Kaliforníu. Þrátt fyrir stærð borgarinnar þá má segja að vinalegt yfirbragð einkenni þessa snyrtilegu borg. Við gistum þar í tvær nætur og hótelið er staðsett í göngufjarlægð frá gamla bænum eða Old Town. Það er því upplagt að skoða mannlífið áður en við snæðum saman kvöldverð við höfnina. 
 
10. apríl              San Diego
Eftir morgunverð hittum við staðarleiðsögumann sem mun sýna okkur það markverðasta í San Diego, borðum sameiginlegan hádegisverð og skoðum okkur um. Seinni part dags er frjáls tími.  
 
11. apríl              San Diego – Phoenix
Þetta er fremur langur dagur en leiðin sem farin verður þennan dag er um 570 km. Á leiðinni til Phoenix verður komið við í Yuma sem oft kallast vin í eyðimörkinni og er þekktur sem heilsubær. Rétt áður en komið er að fylkismörkunum til Arizona er komið til sandöldusvæðisins Imperial Sand Dunes, en það eru risastórar sandöldur og eitt stærsta sandöldusvæði í Norður-Ameríku. Haldið áfram til Phoenix sem er stórfengleg borg í Arizona fylki. Gist þar í eina nótt.
 
12. apríl              Phoenix – Grand Canyon
Haldið er inn í Sonora eyðimörkina, eina heitustu og stærstu eyðimörk Norður-Ameríku, en þess má geta að hún er 311.000 km2 að stærð eða um þrisvar sinnum stærri en Ísland! Hún hefur að geyma mikinn fjölbreytileika einstæðra dýra og plantna, t.d. kaktusa, pálma og margar fleiri. Sedona bíður okkar þar sem risastórir rauðir klettar eru einkennandi fyrir landslagið. Hægt er að segja að einn af hápunktum ferðarinnar sé á þessum degi, því komið er að því að skoða hið stórfenglega Grand Canyon. Farið er á einn fallegasta útsýnisstaðinn, þar sem hægt er að sjá hvernig Colorado áin hefur mótað landslagið og gjána í gegnum árhundruðin. Sumir telja Grand Canyon eitt af náttúruundrum veraldar og er náttúrufegurðin hreint stórfengleg. Gist í Grand Canyon þjóðgarðinum.
 
13. apríl              Grand Canyon – Las Vegas
Við kveðjum fallegu gljúfrin en næsti áfangastaður er ein þekktasta spilaborg Ameríku, Las Vegas. Borgin er uppfull af hótelum, spilavítum og er mikið úrval sýninga. Aðalgatan í Las Vegas heitir The Strip og er 6,8 km löng en þar er frábært að ganga um og skoða ótrúlegan margbreytileika hótela og spilavíta. Við borðum kvöldverð saman áður en við höldum á vit ævintýranna í þessari skemmtilegu borg. Gisting í 2 nætur.
 
14. apríl              Las Vegas – Hoover stíflan
Fyrir þá sem vilja versla áður en heim er haldið þá höldum við í búðir fljótlega eftir morgunverð. Eftir það keyrum við sem leið liggur að Hoover stíflunni, þar fáum við leiðsögn um þetta mikla mannvirki sem tók fleiri þúsundir manna að byggja á árunum 1931 - 1936. Seinni part dags gefst frjáls tími sem hægt er að nýta að vild. Það er upplagt að vera búin að bóka sig á einhverja áhugaverða sýningu þennan dag eða fara út að borða á einum fjölmargra veitingastaða borgarinnar.
 
15. apríl              Las Vegas – Keflavík
Eftir morgunverð höldum við á flugvöllinn, en við fljúgum til Seattle kl. 09.15 og áætluð lending þar er kl. 12.00. Brottför frá Seattle til Keflavíkur er kl. 16.30.
 
16. apríl              Heimkoma
Lendum á Íslandi að morgni mánudags kl. 6.45 á Keflavíkurflugvelli. 
  


 
 
Verð: 444.400 kr. á mann í tvíbýli.               Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli 99.800 kr.
 
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair, Keflavík – Seattle - Keflavík
• Flug með Alaska Air, Seattle – San Francisco / Las Vegas - Seattle
• Flugvallarskattar fyrir alla ferðina
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði
• 9 morgunverðir
• 3 hádegisverðir
• 6 kvöldverðir
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu
• Aðgangseyrir samkvæmt ferðalýsingu ( 17 miles drive, Mission in Santa Barbara, Imperial Sand Dunes, Grand Canyon og Hoover dam ).
• Enskumælandi staðarleiðsögn
• Undirbúningsfundur með fararstjóra fyrir ferð
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið:
Aðrar máltíðir, sjá innifalið. Esta ferðaheimild. Þjórfé.

 
 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.


 
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð