16. september Flug til Shanghai
Flug með Icelandair frá Keflavík kl. 07.25. Mæting í Leifsstöð 2 klst fyrir brottför. Lending í Frankfurt kl. 12.50 að staðartíma (+2 klst). Seinna um daginn tekur við flug áfram til Kína með Air China til Shanghai (10,5 klst).
17. september Shanghai (K)
Hópurinn lendir um hádegisbil að staðartíma í Shanghai (+8

klst). Við eyðum deginum í Shanghai, mikilvægustu viðskiptaborg þessa stóra lands. Borgin Shanghai hefur breyst mikið, en við kynnumst samt einnig hinni hefðbundnu Shanghai, förum á þekktustu verslunargötu Kína, Nanjing Road, en á þessari 4 km löngu götu eru u.þ.b. 4.000 verslanir og vöruhús svo það er margt að sjá. Þarna er einnig hin þekkta gata „The Bund“ sem Evrópubúar kölluðu Wall Street Shanghai. Gistum tvær nætur í Shanghai.
18. september Shanghai (M/H/K)
Í dag skoðum við borgina og byrjum á því að fara í gamla bæinn þar sem við upplifum hið hefðbundna Kína. Leið okkar liggur til Mandarin Yu, sem er eini hefðbundni kínverski garðurinn í Shanghai frá Ming tímanum. Einnig skoðum við Longhua hofið sem er elsta hofið í Shanghai. Eftir kvöldverð sjáum við síðan eina af hinum þekktu loftfimleikasýningum.
19. september Shanghai – Wuhan (M/H/K)
Við byrjum daginn á að fljúga til Wuhan, höfuðborgar Hubei héraðs. Hér skoðum við Guiyan búddahofið sem var byggt á 16 öld, en þar má meðal annars sjá stóra jaði styttu sem hofið er nefnt eftir. Að því loknu skoðum við Qingchuan skálann sem er við stóru Yangtze brúna og mynni Han árinnar. Gistum í Wuhan í eina nótt.
20. september Wuhan – Yichang (M/H/K) 
Nú förum við með rútu til Yichang. Fyrri hluti dagsins er að mestu í rútu og verður áhugavert að sjá hvernig lífið á landsbyggðinni er. Eftir hádegismat skoðum við merkilegan fornleifafund í borginni Jingzhou sem fannst í grafhýsi frá tíma Han-veldisins. Seinna um daginn komum við okkur fyrir í skipinu okkar sem er 5* samkvæmt landsmælikvarða. Gisting um borð næstu fjórar nætur.
21. – 23. september Sigling á Yangtze (M/H/K)
Yangtze fljótið er lengsta fljót Asíu og þriðja lengsta í heimi. Hin frægu gljúfur eru þrjú talsins og í allt 192 km löng. Lagt er upp frá Yichang og siglt upp Xiling-gljúfur, þá Wu-gljúfur og síðast Qutang-gljúfur. Xiling er lengst þeirra eða 75 km, en það er straummikið og út frá því liggja hliðargljúfur sem koma skyndilega í ljós á meðan siglt er áfram. Wu er 44 km með fagra dali til beggja hliða og er ljóðræn fegurðin mikilfengleg. Qutang er styst, 8 km að lengd, en stórfenglegast með snarbröttum veggjum beggja vegna og tignarlegum klettum.
Fyrsta daginn í siglingunni fer skipið í gegnum fimm þrepa skipastiga, sem í dag er stærsti skipastigi í heimi. Einnig verður hin merkilega Yangtze-stífla skoðuð, en þess má geta að virkjunin er 26 sinnum stærri en Kárahnjúkavirkjun og stærsta byggingafram

kvæmd af þessu tagi í heimi.
Á minni bátum siglum við næsta dag upp hliðarfljót og skoðum landslagið. Síðasta daginn heimsækjum við drauga- og djöflaborgina Fengdu sem stendur á fjallinu Min.
24. september Chongqing – Xi’an (M/H/K)
Fyrri hluta dags komum við til Chongqing. Borgin, sem sumir segja stærstu borg Kína, gnæfir yfir Yangtze og er ein stærsta hafnarborgin innanlands. Förum í bæjarferð og heimsækjum Er-Ling garðinn, en þaðan er flott útsýni yfir mynni Jialing fljótsins, stærsta hliðarfljót Yangtze. Seint um daginn fljúgum við svo til Xi’an, þar sem gist verður í þrjár nætur.
25. september Xi’an – Terrakotta herinn (M/H/K)
Við byrjum daginn á að skoða borgarmúrinn sem er nokkurs konar sýnishorn af Kínamúrnum. Seinna um daginn bíður okkar einn af hápunktum ferðarinnar, en þá skoðum við einn merkasta fornleifafund heims, Terrakotta-herinn. Það er hreint ótrúlegt að standa fyrir framan styttur stríðsmanna í fullri stærð í árásarstellingu. Þessi her var uppgötvaður fyrir tilviljun árið 1974, þegar byggja átti brunn á svæðinu. Samtals eru verurnar eða stytturnar sem tilheyra svæðinu taldar vera um 7.000 og eru allar með mismunandi svipbrigði.
26. september Bændaheimsókn og markaður (M/H/K)
Í dag förum við út fyrir borgina og fáum nasaþefinn af því hvernig lífið á landsbyggðinni gengur fyrir sig. Við heimsækjum bændur þar sem grænmeti er m.a. ræktað í gróðurhúsum. Einnig borðum við hádegisverð að hætti heimamanna hjá bónda. Um eftirmiðdaginn höldum við aftur til Xi’an þar sem skoðum við hinn 64 m háa Da Yan Pagoda eða „hinn stóra v illigæsaturn“. Seint um daginn höldum við ferð okkar áfram í næturlest í áttina til Beijing/Peking, þar sem gist verður í svefnvögnum á fyrsta farrými að landsmælikvarða (fjögur rúm í hverjum klefa).
27. september Beijing / Peking (M/H/K)
Að morgni dags komum við til Peking, borgarinnar sem stundum er kölluð „miðja alheimsins“. Hér skoðum við Torg hins himneska friðar sem er í hjarta borgarinnar og síðan Keisarahöllina eða Forboðnu borgina svokölluðu, sem er stærsta og þýðingarmesta bygging Kína. Við skoðun þessarar hallar verður manni ljóst hvílíkan mátt hinir fornu keisarar höfðu. Einnig verður farið með léttivögnum eða „rickshas“ gegnum gömlu borgina og þá getum við séð hvernig lífið var í Kína fyrir hundruðum ára. Gistum í tvær nætur í Peking.
28. september Kínamúrinn og Sumarhöllin (M/H/K)
Ekki er hægt að fara til Kína án þess að standa á Kínamúrnum fræga! Nú er komið að því og við byrjum á að fara til Juyong skarðsins, þaðan sem er útsýni yfir hluta múrsins þar sem hann hlykkjast í landslaginu. Þegar við komum aftur til höfuðborgarinnar heimsækjum við Sumarhöllina. Þetta mannvirki notaði keisarinn aðallega sem sumaraðsetur og er það með sínum 290 hekturum einn af fallegustu stöðum í Peking.
29. september Beijing / Peking (M/H/K)
Í dag skoðum við hið fræga Lamahof og síðan förum við í gönguferð um Hutong bæjarhlutann í elsta hluta borgarinnar. Um kvöldið fáum við framreidda „Pekingönd“, sérrétt borgarinnar og njótum þess að snæða síðustu kvöldmáltíðina í Kína áður en haldið er út á flugvöll.
30. september Heimferð
Flogið í næturflugi með Air China kl. 01.40 til Frankfurt og lending þar um morguninn kl. 6.30 að staðartíma. Síðan er flogið áfram heim með Icelandair kl. 14.00 og lending í Keflavík kl. 15.35.
Sjá allar upplýsingar um verð og innifalið á næsta flipa hér fyrir ofan.