Eþíópía - forn og framandi


12. - 26. október 2012 
Fararstjóri: Jóhanna Kristjónsdóttir

 
Eþíópía er svo sannarlega einstök heim að sækja og frábrugðin nágrannalöndum sínum. Þjóðin hefur frá örófi alda þróað sína eigin trú, tímatal og tungumál. Á þessu ferðalagi gefur að líta stórbrotna náttúru og minjar sem eru margar á heimsminjaskrá UNESCO. Þær ber strax fyrir augu er við ferðumst til Bahir Dar, Tanavatns hins fagra og fossa Bláu Nílar. Á ferðalagi okkar fljúgum við einnig yfir Simien fjallgarðinn sem er án efa sá tignarlegasti í Afríku. Því næst heimsækjum við Lalibela aðra helgustu borg Eþíópíu þar sem er að finna steinkirkjur frá 12. öld höggnar í kletta á einstakan máta. Í Aksum, hinni fornu gefur að líta minjar um uppruna kristinnar trúar í Eþíópíu auk merkra fornminja og leifa af hinni helgu Maríukirkju við klaustrið þar sem boðorðin tíu eru sögð vera geymd. Næst liggur leiðin suður á bóginn til Arba Minch með dagsstoppi í Addis Ababa þar sem við skoðum Þrenningarkirkjuna og lítum síðan á varning á Merkato, stærsta markaði álfunnar. Ökum á jeppum og upplifum mjög fjölbreytta náttúru og einstakt fuglalíf, m.a.við Zwayvatnið á leið okkar til ættbálkanna í Omo dalnum. Ættbálkar landins eru taldir 85 talsins og þekkjast þeir af margbreytilegum líkamsskreytingum. Dvöl í Omo-dalnum er einstök og svo sannarlega eins og að hverfa inn í annan heim menningar og ekki spillir fyrir fjölbreytt náttúra þar sem fjöll eru gróin upp að tindum. Dvalið í Turmi og heimkynni Erbore, Hammer og Karo ættbálkanna skoðuð og að lokum er hátíðarkvöldverður og danssýning.  

 

 

 
12. október               Flug til Addis Ababa
Flug með Icelandair frá Keflavík kl. 7.40. Mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst fyrir brottför. Lending í London kl. 11.45. Flogið áfram með næturflugi til Addis Ababa kl. 21.00 með Ethiopian Airlines.
 
13. október              Addis Ababa
Lending á Bole alþjóðaflugvellinum í Addis Ababa kl. 6.45 að staðartíma. Gengið frá vegabréfsáritunum og haldið sem leið liggur á hótel. Farþegum gefst tækifæri á að hvíla sig til hádegis eftir langt ferðalag. Þegar að allir hafa snætt og hvílst tekur við skoðunarferð um Addis Ababa, m.a. í Þjóðminjasafn borgarinnar þar sem getur m.a. að líta eftirlíkingu af beinagrind apakonunar Lucy sem var uppi fyrir 3,5 milljón árum.
 
14. október              Bahir Dar – Fossar Bláu Nílar – Tanavatn
Að morgunverði loknum höldum við af stað til Bahir Dar en þangað er u.þ.b 45 mínútna langt flug. Í fluginu gefur að líta einkar stórbrotna náttúru eþíópísku hásléttunnar, skorna af árfarvegum og djúpum gljúfrum. Eftir viðkomu á hótelinu í Bahir Dar verður haldið að fossum Bláu Nílar, en fallhæð þeirra getur verið allt að 45 metrar þegar að mest er í ánni. Eftir léttan miðdagsverð við fossana höldum við í siglingu á Tanavatni þar sem gefur að líta fallegar eyjar sem margar eru í byggð.  Á þessum slóðum er að finna einstakt fuglalíf. Í Eþíópíu eru um 850 fuglategundir. Við förum í land á eyjunni URA en þar skoðum við m.a fallega íkonum skreytt klaustur.
 
15. október              Bahir Dar – Lalibela
Morgunflug til Lalibela annarrar helgustu borgar Eþíópíu, flugtími ca 45 mínútur.  Á leið okkar frá flugvellinum gefur að líta ægifagurt landslag. Í Lalibela skoðum við m.a 11 einstaklega fallegar kirkjur bæjarins sem grafnar eru inní fjöllin.  Kirkjurnar eru frá 12. öld og kallaðar 8. undur veraldar enda einstakur kletta arkítektúr þarna ferð.
 
16. október               Lalibela
Þennan dag erum við í Lalibela. Þeir sem það vilja geta skoðað kirkjurnar betur og farið upp í fjöllin að frægu munkaklaustri. Aðrir taka deginum rólega og skoða bæinn og líta á fallegan varning á markaði sem kvennasamtök Lalibela hafa sett á laggirnar.
 
17. október              Lalibela - Axum
Komum með flugi til Axum árla morguns. Axum á sér sögu aftur í fornaldir og er upprunaleg vagga kristinnar trúar í Eþíópíu. Hefjum skoðunarferð dagsins á að skoða leifar heilagrar Maríu kirkjunnar í nágrenni við klaustrið þar sem sagan segir að boðorðin 10 séu geymd.  Síðar um daginn skoðum við leifar af höll drottningarinnar af Saba. Endum daginn á skoðunnarferð um fornleifasafnið í Axum og hinar fornfrægu steinsúlur (óbeliskar) þar sem sú hæsta er 21 metri.
 
18. október              Axum – Addis Ababa
Eftir morgunverð leggjum við upp til Addis Ababa með flugi. Þegar að þangað kemur gefst farþegum tími til hvíldar og verður fararstjóri þeim innan handar sem vilja fara í skoðunarferð á eigin vegum.
 
19. október              Addis Ababa
Skoðunarferð um Addis Ababa og farið í Þrenningarkirkjuna sem er einstaklega falleg, fleiri eftirminnilegir staðir skoðaðir m.a. frá stjórnartíma Haile Selassie, fyrrum keisara. Gefum okkur svo góðan tíma á Merkato útimarkaðnum sem er sá stærsti í  Afríku.
 
20. október              Addis Ababa – Arba Minch
Ökum með jeppum sem leið liggur suður á bóginn um Omo dalinn til Arba Minch ( 7 klst. akstur). Stoppað við Zwayvatnið. Þar er mjög fjölbreytt fuglafána og einstakt tækifæri áhugasamra að skoða sig um á þessum slóðum. Einnig farið í heimsókn til ættbálka sem búa  í Omodalnum. Ættbálkarnir eiga sér langa sögu og á fáum stöðum hægt að upplifa eins mikla nálægð við þá. 
 
21. október              Arba Minch – Turmi
Byrjum daginn á að keyra til Turmi í Omodalnum. Hér heimsækjum við  Erbore og Hamer ættbálkana. Ættbálkar í landinu eru taldir um 85 talsins og líkamsskreytingar þeirra eru margbreytilegar og hver ættbálkur þekkist af skreytingunum. Á leið okkar gefur að líta mjög fallega náttúru þar sem fjöll eru gróin upp á tinda.
 
22. október              Turmi-Murle-Turmi
Eftir morgunverð er keyrt til Murle (70 km) og vitjað Karo ættbálksins. Við gefum okkur góðan tíma til að hnusa af mannlífinu í Murle og í grenndinni áður en keyrt er aftur til Turmi og gist þar. 
 
23. október              Turmi – Arba Minch
 Á leið okkar til Arba Minch heimsækjum við  Konsó ættbálkinn en þetta fólk þekkist langar leiðir, sérstaklega konurnar, af klæðaburði sínum. Þess má geta að þar voru íslenskir kristniboðar við störf í mörg ár. Konsó konur eru kunnar fyrir svokallaða stallamyndun og rækun þar af kappi.  Snæðum góðan kvöldverð við komuna til Arba Minch. 
 
24. október              Arba Minch – Addis Ababa
Um hádegi verður flogið til Addis Ababa. Hátíðarkvöldverður með danssýningu og leikið á þjóðleg hljóðfæri eins og masingo og fleiru skemmtilegu. Gist í Addis Ababa síðustu nóttina. 
 
25. október              Frjáls dagur og heimferð
Í dag eigum við frjálsan dag í Addis Ababa. Seint um kvöldið er síðan haldið út á flugvöll í næturflug  til London, en flogið er frá Addis Ababa kl. 00.40 eftir miðnætti.
 
26. október              Heimferð
Lending í London kl. 6.50 um morguninn og flogið áfram heim með Icelandair kl. 13.00. Lending í Keflavík kl. 15.00 að staðartíma. 
 
 
 


 

 
 
 
Verð: 515.500 kr. á mann í tvíbýli.                  Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 43.900 kr.
 
 
Innifalið
• Millilandaflug með Icelandair og Ethiopian Airline á almennu farrými
Ísland - London – Addis Ababa – London – Ísland
Innanlandsflug með Ethiopian Airline
• Flugvallarskattar fyrir alla ferðina
• Akstur til og frá flugvelli í Addis Ababa
• Allur akstur til og frá flugvöllum innanlands
• Allar rútu og jeppaferðir samkvæmt ferðalýsingu
• Morgunverður og kvöldverður allan tímann.
• 2 nestishádegisverðir
• 2 vatnsflöskur á dag
• Sigling á Tanavatni
• Skoðunarferðir og aðgangseyrir að öllum stöðum í ferðalýsingu
• Gisting á hótelum í 2ja eða 1manns herbergjum
• Farangursþjónusta
• Danssýning og kaffisiðasýning
• Þjórfé til burðarmanna og staðarleiðsögumanna
• Enskumælandi staðarleiðsögumaður
• Undirbúningsfundur með fararstjóra fyrir ferð
• Íslensk fararstjórn
 
 
Ekki innifalið 
• Minibar/kaffi á hótelum og persónuleg útgjöld.
• Drykkir, áfengir og óáfengir
• Þjórfé til aðalleiðsögumanns og bílstjóra
• Forfalla- og ferðatryggingar
• Vegabréfsáritun (um 30 dollarar) 
• Allt sem er ekki nefnt undir liðnum „innifalið“
 
 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð