Skíðasvæðið
Schladming-Dachstein svæðið er eitt stærsta skíðasvæði Austurríkis og hefur verið valið til að halda heimsmeistarakeppnina í alpagreinum 2013! Skíðabærinn Schladming er staðsettur hjá hinu svokallaða 4-fjalla-skíðalyftusvæði sem samanstendur af fjöllunum Planai, Hochwurzen, Hauser Kaibling og Reiteralm. Á þessu svæði er að finna skíðabrekkur sem eru samtals 121 km langar og tæplega 50
skíðalyftur sem flytja fólk á milli fjölbreyttra skíðabrauta. Teygja brekkurnar sig frá 800 upp í 2015 m hæð, og henta þær jafnt byrjendum sem og lengra komnum. Á svæðinu er einnig að finna 7,5 km langa sleðabrekku og snjóbretta- og freestylegarða. Vel upplýstar brekkurnar bjóða einnig upp á að njóta þess að skíða síðla kvölds í næturbjörtum himni. Fararstjórar munu aðstoða við leigu á skíðum, kaupum á skíðapassa og skráningu í skíðaskóla sé þess óskað.
Heimasíða Schladming er: www.schladming.at
Hótelið
Hótel Mitterhofer er glæsilegt fjögurra stjörnu hótel sem hefur verið
starfrækt í meira en 120 ár. Hótelið er notalegt með 37 herbergjum og hafa öll herbergin baðkar/sturtu, sjónvarp, öryggishólf, síma, hárþurrku og aðgang að interneti. Öll herbergin eru með svölum. Á hótelinu er heilsulind með útisundlaug, mörgum gerðum af gufuböðum, sauna, heitum potti, svæði þar sem hægt er að slaka á og ýmsu fleira. Á hótelinu er einnig að finna fallegan vetrargarð, leiksvæði fyrir börn og aðra afþreyingu, s.s. borðtennis. Hótelið er í rúmlega 10 mín. göngufjarlægð frá miðbæ Schladming þar sem finna
má ýmsa aprés-ski bari, verslanir, banka og pósthús. Skíðabrekkurnar eru einungis í 300m fjarlægð frá hótelinu og er það mikill kostur að geta farið beint í skíðalyftuna á morgnana, en svo er hægt að rölta í bæinn og fá sér Glühwein eða skoða mannlífið.
Heimasíða hótelsins er: www.mitterhofer.at

Flugið
Flogið verður með Icelandair til München og tekur flugið um 4 klst.
Þaðan eru 220 km til Schladming, en gera má ráð fyrir að rútuferðin taki rúmlega 2:45 klst.
11.02.2012 Keflavík – München FI532 07:20 – 12:05
18.02.2012 München – Keflavík FI533 13:05 – 16:00
Verð: 208.200 kr. á mann í tvíbýli. Rútuferðir til/frá hóteli í Schladming innifaldar!
Aukagjald fyrir einbýli er 34.250 kr.
Innifalið: 
• Flug með Icelandair til München og flugvallaskattar.
• Rútuferðir á milli flugvallarins í München og hótelsins í Schladming.
• Gisting í tveggja manna herbergi með baði á fjögurra störnu hóteli í Schladming.
• Morgunverðarhlaðborð.
• Síðdegishressing.
• Vel útilátinn kvöldverður með austurrískum og alþjóðlegum réttum; sérstakur barnamatseðill.
• Aðgangur að öllu því sem heilsulindin hefur upp á að bjóða
• Skíðakennsla hjá Inga Jónssyni, þar sem hópnum verðir skipt niður í smærri hópa.
• Íslensk fararstjórn.
Ekki innifalið:
• Hádegisverðir
• Skíðapassi (6 daga skíðapassi fyrir fullorðinn € 210)
• Aukagjald fyrir skíði í flug, 3.900 kr./ € 28 á fluglegg
• Forfalla- og ferðatrygging
Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.