Skíðasvæðið
Skíðabærinn Gerlos er í hjarta Zillertal Arena sem samanstendur af 4 skíðasvæðum tengdum saman, Zell am Ziller, Gerlos, Königsleiten og Gerlosplatte. Skíðabrekkur svæðanna eru samtals um 166 km á öllum erfiðleikastigum og ættu því allir að geta fundið brekkur við sitt hæfi. Skíðasvæðið liggur frá 1.300 m upp í 2.500 m yfir sjávarmáli og er þekkt fyrir fjölbreytni og snjóöryggi. Lengsta skíðabrekkan er um 10 km löng og liggur hún alveg niður í dalinn þar sem hægt er að taka lyftu aftur upp á skíðasvæðið. Á svæðinu eru einnig margar skemmtilegar sleðabrekkur og snjóbretta- og freestylegarðurinn Arena HOTZONE.TV. Einnig er upplagt að njóta yndislegs útsýnis yfir Zillertaler fjallgarðinn úr nýlegum veitingaskála sem staðsettur er í 2.200 m hæð í Königsleiten áður en skíðað er niður. Fararstjórar ferðarinnar munu aðstoða samferðamenn við að leigja skíði, kaupa skíðapassa og fara í skíðakennslu við hæfi. Fyrir þá sem vilja munu þeir einnig skipuleggja skíðaferðir um svæðið, þar sem hægt er að fylgja þeim hluta úr degi eða allan daginn. Þeir munu síðan að sjálfsögðu gera eitthvað skemmtilegt með hópnum og má þar nefna ómissandi sleðaferð og kvöldgöngu.
Heimasíða Gerlos svæðisins er: www.gerlos.at

Hótelið
Hotel Tirolerhof er huggulegt þriggja stjörnu alpahótel í austurrískum stíl. Hótelið er heimilislegt með 40 herbergjum og eru öll herbergin með sturtu/baðkeri, sjónvarpi, öryggishólfi, hárþurrku og síma. Öll herbergin eru með svölum. Á hótelinu er einnig nýleg 300 m² heilsulind með mismunandi gufuböðum og svæði þar sem gott er að slaka á og fá sér te eða ávaxtasafa eftir góðan dag í fjöllunum. Einnig er þar hlýlegur veitingastaður ásamt bar og sólstofu.
Hótelið er staðsett í bænum Gerlos sem liggur í 1.300 m hæð yfir sjávarmáli. Stutt ganga er í bæinn þar sem finna má verslanir, pósthús og fjölmarga aprés-ski bari. Ekkert kostar í skíðarútuna sem gengur frá hótelinu og tekur það hana innan við 5 mín. að keyra að helstu skíðalyftunum á svæðinu. 
Heimasíða hótelsins er: www.tirolerhof-gerlos.at
Flugið
Flogið verður með Icelandair til München og tekur flugið um 4 klst.
Þaðan eru 200 km til Gerlos, en gera má ráð fyrir að rútuferðin taki um 2 ½.
04.02.2012 Keflavík – München FI532 07:20 – 12:05
11.02.2012 München – Keflavík FI533 13:05 – 16:00
Verð: 184.400 kr. á mann í tvíbýli. Rútuferðir til / frá hóteli í Gerlos innifaldar!
Aukagjald fyrir einbýli er 34.250 kr.
Innifalið: 
• Flug með Icelandair til München og flugvallarskattar
• Rútuferð á milli flugvallarins í München og hótelsins í Gerlos
• Gisting í tveggja manna herbergi með baði á þriggja stjörnu hóteli í Gerlos
• Morgunverðarhlaðborð
• Vel útilátinn kvöldverður ásamt salathlaðborði
• Aðgangur að öllu því sem heilsulindin hefur upp á að bjóða
• Íslensk fararstjórn.
Ekki innifalið:
• Hádegisverðir
• Skíðapassi (6 daga skíðapassi fyrir fullorðinn € 205)
• Aukagjald fyrir skíði í flug, 3.900 kr./ € 28 á fluglegg
• Forfalla- og ferðatrygging
Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.