Á gönguskíðum við Achensee í Tíról

 

21. – 28. janúar 2012    
Fararstjórar: Anna Sigríður Vernharðsdóttir og Vernharður Anton Aðalsteinsson

 
Vetrarfrí á gönguskíðum í skemmtilegum félagsskap og fallegu umhverfi er sannkallaður draumur útivistarfólks, því hvað er betra en að vera úti, hreyfa sig og slaka síðan vel á í lok dags! Achensee er eitt af bestu skíðagöngusvæðum Austurríkis, enda eru skíðabrautir svæðisins 201 km langar og á öllum erfiðleikastigum. Svæðið við Achensee er einstaklega fallegt, enda dalurinn umlukinn tignarlegum fjöllum á nánast alla vegu. Gist verður á 4* hóteli í bænum Pertisau sem er sá bær við vatnið sem býður upp á bestu skíðagönguaðstöðuna. Brautirnar eru rétt fyrir utan hótelið og hægt er að drífa sig út á skíði og njóta útivistarinnar strax eftir morgunverð. Aðstaðan á hótelinu er til fyrirmyndar, en þar er mjög góð heilsulind og er því hægt að njóta þess að fara í sundlaugina, prófa eitt af gufuböðunum eða bara slaka á eftir ánægjulegan dag. Flogið er með Icelandair til München, en þaðan eru rétt um 140 km til Achensee. Daglega verður farið í spennandi ferðir og er að sjálfsögðu hægt að velja hvort farið er með fararstjórum eða upp á eigin spýtur.

  

 

 

 
Skíðasvæðið
Achensee er eitt af bestu gönguskíðasvæðum Austurríkis, enda eru skíðabrautir svæðisins 201 km langar, á öllum erfiðleikastigum, en aðallega þó bláar og rauðar brautir. Svæðið er í dalnum Achental sem er umlukinn tignarlegum fjöllum á nánast alla vegu og því koma margir hingað á hvaða árstíma sem er sökum náttúrufegurðar. Bæirnir við vatnið, sem er 6,8 km² að stærð, eru 5 og þó 3 þeirra séu með rúmlega 2.000 íbúa er það Pertisau sem er þekktastur fyrir bestu aðstöðuna til gönguskíðaiðkunar. Íbúar Pertisau eru ekki nema 596 en þar munum við einmitt gista á hóteli þar sem ein skíðabrautin er alveg við hótelið.
 
Brautirnar sem eru í 940 – 1.200 m hæð liggja almennt séð inn í dalina umhverfis vatnið og er tenging yfir til Maurach, eins stærri bæjanna. Skíðastrætóinn stoppar einnig beint fyrir utan hótelið og með gestakortinu sem er innifalið í gistingunni getum við tekið skíðastrætóinn yfir til Achenkirch og Steinberg, en gestakortið veitir okkur einnig frían aðgang að öllum brautum svæðisins. Það er að sjálfsögðu hægt að leigja gönguskíði í bænum Pertisau og þar eru jafnframt skíðaskólar sem bjóða upp á sérstök gönguskíðanámskeið og einkakennslu. Árlega eru haldnar skíðagöngukeppnir við Achensee, en til gamans má geta að eitt þekktasta fjallahlaup Austurríkis fer einnig fram á svæðinu á sumrin. 
 
Heimasíða Achensee svæðisins er: http://www.achensee.info/
 
Hótelið
Gist verður í 7 nætur á glæsilegu 4* Hotel Rieser Aktiv & Spa Resort í bænum Pertisau við Achensee. Öll herbergin eru útbúin sjónvarpi, útvarpi, síma, hárblásara og baðsloppi. Við fáum glæsilegt morgunverðarhlaðborð og fjögurra rétta kvöldverð, ásamt salathlaðborði. Hotel Rieser er frábærlega vel staðsett fyrir skíðagöngufólk, þar sem brautirnar liggja alveg við hótelið, en jafnframt stoppar skíðastrætóinn við hótelið. Heilsulindin býður upp á a.m.k. 5 gerðir af mismunandi gufuböðum (sauna), inni- og útisundlaug, slökunarsal og margt fleira. Þeir sem vilja geta keypt tíma í nudd eða hinar mismunandi heilsumeðferðir.
 
Heimasíða hótelsins er: www.hotel-rieser.com 
   
Flugið
Flogið verður með Icelandair til München og tekur flugið um 4 klst. Þaðan eru 143 km til Pertisau við Achensee, en það má gera ráð fyrir að rútuferðin taki um 2 ½ klst. 
 
21.01.2012         Keflavík – München         FI 532          07:20 – 12:05
28.01.2012         München – Keflavík         FI 533          13:05 – 16:00
 


 
 
Verð: 188.800 kr. á mann í tvíbýli.        Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 19.600 kr. 
 
 
Innifalið
• Flug með Icelandair til München og flugvallarskattar
• Ferðir á milli flugvallarins í München og hótelsins í Pertisau við Achensee
• Gisting í tveggja manna herbergi með baði á 4* hóteli í Pertisau við Achensee
• Glæsilegt morgunverðarhlaðborð
• Fjögurra rétta kvöldverður ásamt salathlaðborði
• Aðgangur að sundlaug hótelsins
• Aðgangur að heilsulind hótelsins sem er m.a. með mismunandi gufuböð
• Íslensk fararstjórn, þar sem fararstjórar sem verða með leiðbeiningar og hópnum innan handar.
 
 
Ekki innifalið
• Hádegisverðir
• Aukagjald fyrir skíði í flug, 3.900 kr./ € 28 á fluglegg
• Forfalla- og ferðatrygging

 

Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð