Á gönguskíðum í Ramsau við Dachstein

 

28. janúar - 4. febrúar 2012    UPPSELT!
Fararstjórar: Steinunn H. Hannesdóttir íþróttakennari og Hanna Marteinsdóttir sjúkraþjálfari

 
Vetrarlandslagið í bænum Ramsau við Dachstein er einstaklega fallegt. Bærinn liggur á Ramsauer Hochplateu hásléttunni í 1000 – 1300 m hæð þar sem tignarlegir hvítir alpatindar gnæfa til suðurs. Svæðið sem er mjög snjóöruggt og sólríkt var valið af ADAC SkiGuide sem eitt af 3 bestu gönguskíðasvæðum Alpanna! Gönguskíðabrautirnar teygja sig yfir þrjú mismunandi hæðarsvæði og því svo sannarlega að finna brautir við allra hæfi. Flogið er með Icelandair til München en þaðan er tæplega 3 klst akstur til Ramsau. Gist er í 7 nætur á ekta austurrísku 4* alpahóteli sem er að auki sannkallað heilsuhótel. Skíðagöngubrautir liggja beint við hótelið og stutt er í verslanir og aðra þjónustu. Daglega verður farið í spennandi ferðir og að sjálfsögðu er hægt að velja hvort farið er með fararstjórum eða upp á eigin spýtur. Í þessari ferð fer því saman útivist, hreyfing, góður matur og skemmtilegur félagsskapur í sannkölluðu ævintýralandslagi!
 

 

 

 

 
Skíðasvæðið
Ramsau er fallegur 2.800 íbúa bær sem liggur við rætur Dachstein jökulsins (2.748 m). Svæðið er mjög snjóöruggt á þessum tíma og var heimsmeistaramótið í norrænum greinum haldið þar árið 2007. Skíðabrautirnar eru fjölbreyttar, fyrst og fremst bláar og rauðar og samtals eru brautir svæðisins um 220 km langar. Þær liggja á þremur mismunandi hæðarsvæðum, Ramsauer Hochplateau í 1.200 m, Almenregion í 1.700 m og Dachsteingletscher í 2.700 m yfir sjávarmáli. Hafa þær fengið gæðastimpil austurríska svæðisins Steiermark. Svæðin liggja öll í suður og eru því einkar sólrík og björt. Á Dachstein jöklinum er útsýnispallur með veitingaskála ( 2.700 m) þar sem hægt er að fara upp með lyftu og njóta stórfenglegs útsýnis til allra átta; það sést til Slóveníu til suðurs og Tékklands til norðurs. Á Dachstein jöklinum eru einnig gönguskíðabrautir þar sem gaman er að spreyta sig. Hið einstaka samspil ljóss og lita sem endurspeglast í Dachstein jöklinum gerir Ramsau am Dachstein að orkulind þinni.
 
Heimasíða Dachstein svæðisins: www.skiregion-ramsau.at
 
Hótelið
Gist verður á hinu glæsilega 4* Matschner hóteli í bænum Ramsau en gönguskíðabrautirnar liggja beint fyrir utan hótelið. Á Matschner hótelinu eru 70 hlýlega innréttuð herbergi með baði (sturtu), útvarpi, sjónvarpi, síma, öryggishólfi og netaðgangi. Öll herbergin eru reyklaus og með svölum. Á hótelinu er vetrargarður, bar og verönd þar sem upplagt er að hittast og eiga notalega stund. Gestir hafa aðgang að stórri heilsulind sem er tengd við hótelið með undirgöngum þar sem hægt er að slaka á eftir góðan skíðadag. Í heilsulindinni er að finna m.a. sundlaug, setulaug, barnalaug og 600m2 stórt saunasvæði. Ennfremur er hægt að bóka ýmsar tegundir af nuddi gegn gjaldi.. 
 
Heimasíða hótelsins: www.matschner.at
  
Flugið
Flogið verður með Icelandair til München. Frá München eru um 220 km til Ramsau am Dachstein og þar af eru um 190 km á hraðbrautum. Það má því gera ráð fyrir að rútuferðin taki um 3 klst.
 
28.01.2012          Keflavík – München          FI 532          07:20 – 12:05
04.02.2012          München – Keflavík          FI 533          13:05 – 16:00
 



 
 
Verð: 214.800 kr. á mann í tvíbýli.        Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 19.600 kr. 
 
 
Innifalið
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar.
• Ferðir á milli flugvallarins í München og hótelsins í Ramsau.
• Gisting í tveggja manna herbergi með baði á fjögurra stjörnu hóteli í Ramsau.
• Glæsilegt morgunverðarhlaðborð með heilsuhorni.
• Eftirmiðdagshressing.
• Fjögurra rétta kvöldverður með valmatseðli, eftirrétta- og salatbar.
• Aðgangur að heilsulind og baðsloppar.
• Íslensk fararstjórn, sjúkraþjálfari og íþróttakennari sem verða með leiðbeiningar og hópnum innan handar.
 
 
Ekki innifalið
• Hádegisverðir.
• Kaupa þarf sérstakt kort fyrir gönguskíðabrautir svæðisins (vikukort € 29 ).
• Aukagjald fyrir skíði í flug, 3.900 kr./ € 28 á fluglegg
• Forfalla- og ferðatrygging.  
 

 

Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.


 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð