Á gönguskíðum í Lermoos í Tíról

 

21. - 28. janúar 2012    UPPSELT!
Fararstjórar: Íris Marelsdóttir sjúkraþjálfari og Árni Ingólfsson

 
Það má með sanni segja að Zugspitz Arena svæðið sé Tíról eins og það gerist best!  Svæðið liggur á breiðri og sólríkri hásléttu sem er umlukin fjórum tignarlegum fjallgörðum. Þar á meðal er Zugspitz, en fjallið sem er austurrískt og þýskt í senn, er hæsta fjall Þýskalands og jafnframt nyrsti jökull Alpafjallanna. Þetta svæði er eitt vinsælasta útivistarsvæðið í Tíról og býður upp á samtals 110 km langar skíðagöngubrautir á öllum erfiðleikastigum. Svæðið tengist síðan Reutte skíðagöngusvæðinu þar sem brautirnar eru samtals rúmlega 100 km. Zugspitz Arena er því tilvalið fyrir þá sem vilja njóta útivistar í  yndislegu alpalandslagi. Milli fjallanna liggja nokkrir ekta  austurrískir bæir og er Lermoos einn þeirra. Þessi fallegi og rómantíski bær liggur í 1000 m hæð rétt við tindana Zugspitz (2963m) og Grubigstein (2223m)  og telur hann um 1100 íbúa. Gist verður á glæsilegu 4*stjörnu hóteli í bænum en þar er fjölbreyttur matseðill og  þægileg herbergi.   Á hótelinu er heilsulind með gufubaði, sauna, nuddpotti, sundlaug og margt fleira. Flogið er með Icelandair til München og ekið sem leið liggur til Lermoos en þangað eru um 150 km. Daglega verður boðið uppá áhugaverðar ferðir með fararstjórum en auðvitað getur hver og einn farið á eigin vegum um svæðið.    
 

 

 

 
Skíðasvæðið
Á Zugspitz Arena svæðinu má finna fjöldan allan af skíðagöngubrautum sem henta jafnt byrjendum sem og lengra komnum, en brautirnar eru þó aðallega bláar og rauðar. Frá Ehrwald til Heiterwang er að finna vandaðar skíðagöngubrautir og teljast svæðin Ehrwalder Alm, Ponöfen í Ehrwald og Bergwang sérlega snjóörugg. Gönguleiðakerfið er bæði einfalt og þægilegt og býður uppá bæði lengi og styttri leiðir. Frá Lermoos er t.d. hægt að skíða „Zugspitz-Loipe“ og er þá farið í gegnum Gris til Lähm, tekinn þar einn hringur á „Brändleloipe“ og farið svo til baka til Lermoos. Eins er hægt að fara til nærliggjandi svæða s.s. til Reutte og Lechtal á gönguskíðum og svo með strætó til baka en samanlagt eru skíðabrautir svæðanna þriggja um 300 km. 
 
Eftir góða skíðagöngu er upplagt að njóta stórkostlegs útsýnis frá Zugspitze með því að skella sér í ferð með kláfi frá Ehrwald. Á örfáum mínútum fer „Himmelstürmerin“, en svo nefnist kláfurinn, með ferðalanga upp í tæplega 3000 m og á leiðinni er hægt að skoða magnað landslag hins austurríska Tíróls sem og Bæjaralands í Þýskalandi. Þegar upp er komið er hægt að slaka á á Panoramaveröndinni og láta sólina kyssa kinnarnar. 
 
Heimasíða Zugspitz Arena er: www.zugspitzarena.com 
Heimasíða Lermoos er: www.lermoos.at        
Heimasíða Reutte er: http://www.reutte.com/
 
 
Hótelið
Í þessari ferð verður gist á 4* hótelinu Edelweiss í bænum Lermoos. Hótelið er á fallegum stað umlukið fjallgörðum Zugspitz Arena svæðisins í Tíról, Austurríki. Auðvelt er að komast frá hótelinu á gönguskíðasvæðið sem er sannkölluð vetrarparadís. Herbergin á hótelinu eru öll með sturtu/baði, gervihnattasjónvarpi, útvarpi, síma, öryggishólfi og hárblásara. Á hótelinu er að finna glæsilega heilsulind með sundlaug, ýmsum tegundum af gufuböðum, nuddpotti og fleira. Hægt er að panta nudd og aðrar heilsumeðferðir gegn gjaldi. Hótel Edelweiss er stærsta hótelið í Lermoos og því eru fleiri en einn veitingastaður á hótelinu. Skíðaherbergi er að sjálfsögðu einnig á hótelinu, þar sem búið er að biðja um sérstaka smuraðstöðu fyrir hópinn. Búið er að panta herbergi með svölum fyrir hópinn og baðslopp fyrir dvölina..
 
Heimasíða hótelsins: www.edelweiss.at
 
Flugið
Flogið verður með Icelandair til München og tekur flugið um 4 klst. Þaðan eru 150 km til Lermoos, en það má gera ráð fyrir að rútuferðin taki um 2,5 klst.
 
21.01.2012          Keflavík – München          FI 532          07:20 – 12:05
28.01.2012          München – Keflavík          FI 533          13:05 – 16:00

 


 
 
Verð: 182.400 kr. á mann í tvíbýli.         Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 19.600 kr. 
  
 
Innifalið
• Flug með Icelandair til München og flugvallarskattar
• Ferðir á milli flugvallarins í München og hótelsins í Lermoos
• Gisting í tveggja manna herbergi með sturtu/baði á Hotel Edelweiss
• Glæsilegt morgunverðarhlaðborð
• Kvöldverður með valmatseðli ásamt forrétta-, salat- , osta- og eftirréttahlaðborði
• Aðgangur að heilsulind hótelsins sem býður m.a. upp á mismunandi gufuböð
• Baðsloppur fyrir dvölina
• Íslensk fararstjórn, þar sem fararstjórar verða með leiðbeiningar og hópnum innan handar.
 
 
Ekki innifalið
• Hádegisverðir
• Aukagjald fyrir skíði í flug, 3.900 kr./ € 28 á fluglegg
• Forfalla- og ferðatrygging

 

Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð