Zugspitz Ultratrail fjallahlaup – 103 km

 

21. – 26. júní 2012
Fararstjóri: Sævar Skaptason

 
Fjallahlaup eru alvöru áskorun fyrir utanvegahlaupara og að hlaupa skýjum ofar er ógleymanleg upplifun. Markmið ferðarinnar er að taka þátt í fjallahlaupi í kringum hæsta fjall Þýskalands, Zugspitze, en tvær vegalengdir eru í boði, Supertrail 71,5 km og Ultratrail 103 km. Heildar hæðarbreytingar Ultratrail leiðarinnar eru 6027 metrar sem er auðvitað ótrúleg upplifun og áskorun fyrir reynda hlaupara. Fyrir aðra metnaðarfulla hlaupara sem vilja samt sem áður njóta Zugspitze svæðisins og láta reyna á hlaupahæfileikana í slíkri hæð, geta tekið þátt í styttra hlaupinu sem er Supertrail leiðin og heildar hæðarbreytingar í því hlaupi eru 3720 metrar. Hið tilkomumikla Zugspitze fjalllendi hefur alltaf verið mjög sérstök áskorun fyrir fjallgöngufólk og síðustu árin fyrir fjallahlaupara. Hér geta hlauparar fundið út hvar þeirra takmörk liggja, sett sér markmið og upplifað náttúruna í leiðinni. Saman er þetta það sem er svo heillandi við Salomon Zugspitz Ultratrail hlaupið. Þátttaka í hlaupunum gefur punkta í UTMB hlaupið. Flogið verður til München og haldið sem leið liggur til Garmisch - Partenkirchen þar sem gist verður í 5 nætur. 
 
 

 

 

 
Svæðið
Salomon Zugspitz Ultratrail verður haldið í annað sinn 23. júní 2012. Leiðin liggur í kringum Zugspitz fjallið með sínum tilkomumiklu og fallegu fjallagörðum.  Zugspitze, sem er hæsta fjall Þýskalands (2,962m) er í þeim hluta Alpanna sem Þjóðverjar kalla Wettersteingebirge. Þau marka landamæri Bæjaralands í Þýskalandi og Tírols í Austurríki, rétt suðvestan við skíðabæinn Garmisch Partenkirchen. Við tindinn eru tveir jöklar, Schneeferner og Höllentalferner. Wettersteingebirge og Zugspitze voru nær óþekkt allt fram á 19. öld. Ástæðan er sú að meðan Þýskaland og Austurríki tilheyrðu þýska ríkinu, var Grossglockner í Austurríki hæsta fjall ríkisins. Fyrstur til að klífa Zugspitze var Josef Naus árið 1820 en hann var stjórnandi austurrísks leiðangurs. 1899-1900 var reist veðurathugunarstöð á tindinum sem hefur verið mönnuð allar götur síðan, nema á árum heimstyrjaldarinnar síðari. Árið 1923 var fyrsta kapallyftan tekin í notkun, Austurríkismegin. Seinna var annarri bætt við og gengur hún á fjallið Þýskalandsmegin. Í dag er stjörnuathugunarstöð á tindinum, auk veitingasala, sýningarsala, verslana og aðstaða fyrir ferðamenn (Heimild: http://is.wikipedia.org/wiki/Zugspitze)
 
Zugspitz Ultratail og Supertrail
Þessi hlaupaviðburður er sniðinn fyrir þríþrautarfólk, utanvegahlaupara, stafagöngufólk, og að sjálfsögðu fyrir maraþon –og fjallahlaupara.  Þetta er mikil og góð áskorun fyrir öflugt íþróttafólk því frábærum stígum geta hlauparar fundið út hvar persónleg takmörk liggja, náð markmiðinu, upplifað náttúruna og notið hrífandi útsýnis skýjum ofar – þetta er það sem er mest heillandi við Salomon Zugspitz Ultratrail hlaupið. Boðið er upp á tvær mismunandi leiðir sem hægt er að fara í kringum tindinn í þessari nýju hlaupakeppni.  Ultratrail leiðin, sem byrjar og endar í bænum Grainau, er 103,0 km og heildarhæðarbreytingar eru 6027 metrar sem er auðvitað ótrúleg upplifun fyrir reynda hlaupara.  Fyrir aðra metnaðarfulla hlaupara sem telja þessa leið vera of mikið fyrir sig, en vilja samt sem áður njóta Wetterstein fjallagarðsins og láta reyna á hlaupahæfileikana í slíkri hæð, er boðið upp á styttra hlaup sem er Supertrail leiðin. Sú leið byrjar í bænum Weidach, er 71,5 km löng og heildarhæðarbreytingar eru 3720 metrar.
 
Petzl næturhlaup
Samhliða Salomon Zugspitz Ultratrail hlaupinu er Petzl næturhlaupið sem fram fer á föstudagskvöldið 22. júní.  Það geta allir tekið þátt í því hlaupi, byrjendur, þáttakendur í Ultratrail eða Supertrail hlaupinu, áhugafólk og börn.  Allir fá höfuðljós til að hlaupa með í myrkrinu. Það er heilmikil stemming í kringum þetta næturhlaup sem er um 2,4 km langt og er þetta annar hápunktur fyrir gesti Grainau þessa helgina.
 
Nánari upplýsingar um hlaupin er á finna á slóðinni:
http://www.zugspitz-ultratrail.com/index.htm
 
 
Flugið
Flogið verður með Icelandair til München. Mæting í Leifstöð um 2 klst fyrir brottför. Frá München eru um 126 km til  Garmisch-Partenkirchen og má því gera ráð fyrir að rútuferðin taki um 2 klst.
 
21.06.2012 Keflavík – München  FI 532  07:20 – 13:05
26.06.2012 München – Keflavík  FI 533  14:05 – 16:00
 
 
Hótelið
Hótel Rheinischer Hof er huggulegt 4* fjölskylduhótel sem byggir á hefð frá 1953. Öll 38 herbergin á hótelinu eru með svölum, baði, hárblásara, baðsloppi, útvarpi, gervihnattasjónvarpi og dvd spilara.  Á hótelinu er útisundlaug og nýleg heilsulind með gufubaði, eimbaði, klefa með infrarauðu ljósi og hvíldarherbergi. Boðið er upp á ýmis konar nudd gegn gjaldi, s.s. ayurveda nudd,  shiatsu nudd og slökunarnudd.
 
Heimasíða hótelsins er:
http://www.rheinischerhof-garmisch.de/

 

   
 


 
 
 
Verð: 144.700 kr á mann í tvíbýli                   Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 14.200 kr
 
 
Innifalið í þátttökugjaldinu:
• Flug með Icelandair og flugvallarskattar
• Gisting í tveggja manna herbergi með baði
• Morgunverður á hverjum degi
• Kvöldverður fyrsta kvöldið
• Þáttökugjald fyrir hlaupið
• Íslensk fararstjórn
 
Ekki innifalið: 
Hádegisverðir. Kvöldverðir (nema fyrsta kvöldið).

 
 

 Bændaferðir starfa samkvæmt Almennum alferðaskilmálum SAF.

 
 

 


Flýtileiðir




Skipta um leturstærð